Verndun vatnsfalla og jarðhitasvæða
Mánudaginn 24. apríl 1989

     Frsm. félmn. (Hjörleifur Guttormsson):
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nál. frá félmn. um till. til þál. um verndun vatnsfalla og jarðhitasvæða, en það er prentað á þskj. 905:
    ,,Nefndin hefur fjallað um tillöguna og sent hana til umsagnar. Svör bárust frá eftirtöldum: Landsvirkjun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Náttúruverndarráði, Orkustofnun, Skipulagi ríkisins og Stéttarsambandi bænda. Allir taka þessir aðilar jákvætt undir meginefni tillögunnar.
    Í umsögnum Landsvirkjunar og Orkustofnunar kemur m.a. fram að erfitt sé að meta áhrif virkjunar á umhverfið fyrr en frumhönnun eða yfirlitsrannsókn hefur farið fram. Slíkt mat geti verið tímafrekt og kostnaðarsamt. Skipulagsstjórn telur mjög æskilegt að rannsókn á umhverfisáhrifum þeirra orkumannvirkja, sem helst komi til greina að ráðast í á næstu áratugum, verði hraðað.
    Stéttarsamband bænda leggur áherslu á að við gerð áætlunarinnar verði haft samráð við landshlutasamtök og viðkomandi sveitarstjórnir.
    Nefndin mælir með því að tillagan verði samþykkt með breytingu sem flutt er á sérstöku þingskjali.
    Þetta er gert á Alþingi 9. apríl 1989 og undirritað af fulltrúum í félmn.
    Brtt. sem vísað er til er á þskj. 906 við till. til þál. um verndun vatnsfalla og jarðhitasvæða og þar er lagt til að tillögugreinin orðist svo:
    ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að láta undirbúa á vegum Náttúruverndarráðs í samráði við yfirvöld orkumála áætlun um verndun vatnsfalla og jarðhitasvæða, fossa og hvera. Drög að slíkri áætlun verði lögð fyrir Alþingi til kynningar fyrir árslok 1990 og áætlunin fullbúin til staðfestingar síðar.``