Forseti (Guðrún Helgadóttir):
Forseti vill upplýsa að nú bíða 15 fyrirspurnir skriflegs svars. Þar af eru eins og ég áður sagði þrjár orðnar mjög gamlar, þ.e. þingmál 16, 17 og 70, en hinar eru mjög nýleg mál sem bera númerin 488. mál, 493. mál, 479. mál, 474. og 475. mál og 449. og 399. mál, 359. mál, 350. mál, 329. mál, 308. mál, 260. mál. Hv. þm. sjá að hér er um tiltölulega nýframlögð mál að ræða nema þessi þrjú. Ég vænti þess að svör berist við þeim svo fljótt sem unnt er.