Danfríður Skarphéðinsdóttir:
    Virðulegi forseti. Ég tek undir með þeim hv. þm. sem hér hafa talað og ítreka beiðnir sínar um svör við fyrirspurnum. Það vill svo til að þær tvær fyrstu sem forseti nefndi áðan, mál þessa þings nr. 16 og 17, voru bornar fram af mér og þar sem ég sé að hæstv. fjmrh. er staddur hér nú vil ég ítreka að þessar fyrirspurnir liggja enn og þeim er ósvarað og ég vænti þess að fá svör við þeim hið allra fyrsta.