Sjúkraliðar
Þriðjudaginn 25. apríl 1989

     Heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra (Guðmundur Bjarnason):
    Herra forseti. Ég mæli fyrir frv. til l. um breytingu á lögum nr. 58/1984, um sjúkraliða, sem er 222. mál Nd. og hefur þegar fengið þar afgreiðslu. Í lögum nr. 58/1984 um sjúkraliða, þar sem m.a. er fjallað um starfsheiti sjúkraliða og réttindi þeirra og skyldur, segir það eitt í 5. gr. laganna að sjúkraliðar skuli aðeins starfa undir stjórn og á ábyrgð hjúkrunarfræðings. Á þennan hátt er sjúkraliðum ætlað að starfa sem aðstoðarmenn hjúkrunarfræðinga og að fullu á þeirra ábyrgð. Mikillar óánægju hefur gætt hjá sjúkraliðum vegna þessa. Hafa sjúkraliðar talið að fyllsta ástæða sé til þess að sjúkraliðar geti starfað sem aðstoðarmenn annarra sérfræðinga en hjúkrunarfræðinga, t.d. lækna, þroskaþjálfa, iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara svo að eitthvað sé nefnt, og enn fremur, sem er kannski meginmálið, að þeir eigi að starfa á eigin ábyrgð þótt störfin séu unnin undir stjórn sérfræðinga.
    Við gerð kjarasamninga vorið 1987 komu fram kröfur af hálfu Starfsmannafélags ríkisstofnana fyrir hönd Sjúkraliðafélags Íslands um endurskoðun laga nr. 58/1984, um sjúkraliða, með hliðsjón af því sem hér hefur verið drepið á. Þá gaf þáv. heilbr.- og trmrh., Ragnhildur Helgadóttir, vilyrði fyrir því að þessi þáttur laganna um sjúkraliða yrði endurskoðaður sérstaklega í samráði við félagið. Í bókun með samningunum frá apríl 1987 kom eftirfarandi fram, með leyfi forseta:
    ,,Við undirbúning samningsins kom fram að heilbrmrn. muni fyrir október 1987 í samvinnu við samningsaðila vinna að breytingum á lögum og reglugerðum er snerta störf sjúkraliða.``
    Ekki tókst að standa við bókun þessa á tilskildum tíma og var hún því endurnýjuð við gerð kjarasamninga á sl. ári.
    Á undanförnum mánuðum hefur ráðuneytið unnið að þessu ákvæði samkomulagsins í samráði við Sjúkraliðafélag Íslands. Að tilhlutan ráðuneytisins var útbúið frv. til l. um breytingu á lögum um sjúkraliða sem tekur mið af því að sjúkraliðar starfi undir stjórn tiltekins hjúkrunarfræðings, en beri ábyrgð á störfum sínum sjálfir gagnvart þeim hjúkrunarfræðingi. Nokkurrar óánægju gætti með frv. þegar það var lagt fyrir Alþingi, bæði af hálfu sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga. Í athugasemdum við lagafrv. sem liggur fyrir Alþingi kemur fram í lokamálsgr. að samstaða hafi náðst um frv. þetta við stjórn Sjúkraliðafélag Íslands. Ráðuneytið var þeirrar skoðunar að samstaða hefði náðst um frv., þ.e. stjórn Sjúkraliðafélagsins hefði sætt sig við efnið eins og það lá þá fyrir, þar sem með frv. væri stefnt að því að skilgreina betur starfssvið og ábyrgð sjúkraliða og opna fyrir möguleika til starfa þeirra án þess að hjúkrunarfræðingar séu til staðar. Það kom hins vegar á daginn að félagið taldi sig ekki hafa fallist á frv. eins og það var lagt fram á þinginu og sendi ráðuneytinu og heilbrigðis- og trygginganefndum þingsins athugasemdir sínar þar um.

    Heilbr.- og trn. Nd. hefur flutt brtt. við frv. og hefur sú brtt. verið samþykkt af Nd. Eftir þá breytingu hljóðar 1. gr. frv. svo, með leyfi forseta:
    ,,Sjúkraliði starfar á hjúkrunarsviði og vinnur undir stjórn þess hjúkrunarfræðings sem fer með stjórn viðkomandi stofnunar, deildar eða hjúkrunareiningar og ber ábyrgð á störfum sínum gagnvart honum. Þar sem hjúkrunarfræðingur hefur ekki fengist til starfa að undangenginni auglýsingu getur sjúkraliði borið ábyrgð á störfum sínum gagnvart þeim sérfræðingi sem hlotið hefur viðurkenningu heilbrmrn. Þó skal aldrei ráða sjúkraliða til þessara starfa lengur en til eins árs í senn og er þá skylt að auglýsa aftur eftir hjúkrunarfræðingi. Komi upp ágreiningur um ráðningu sjúkraliða skv. 2. mgr. skal ráðuneytið skera úr um þann ágreining.``
    Í brtt. þeirri sem heilbr.- og trn. flutti við frv. er reynt að taka tillit til óska bæði Sjúkraliðafélagsins og hjúkrunarfélaganna. Ég tel að Sjúkraliðafélagið eða vona það a.m.k. geti sætt sig við frv. með þeim breytingum sem heilbr.- og trn. Nd. lagði til, enda fullnægt því meginskilyrði bókunarinnar að sjúkraliðar beri sjálfir ábyrgð á störfum sínum. Með þessu verður sjúkraliðum einnig gert mögulegt að starfa vð heilbrigðisstofnanir án þess að þar starfi hjúkrunarfræðingur að uppfylltum ákveðnum skilyrðum um auglýsingu eins og fram kemur í greininni eins og hún hljóðar nú, en samkvæmt gildandi lögum er sjúkraliðum óheimilt að starfa sem slíkum öðruvísi en á staðnum sé hjúkrunarfræðingur sem ekki eingöngu hefur með stjórn þeirra að gera heldur ber fulla ábyrgð á störfum þeirra.
    Ég tel rétt að það komi hér einnig fram að frv. var upphaflega kynnt fyrir stjórnum hjúkrunarfélaganna, þ.e. Hjúkrunarfélagi Íslands og Félagi háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga. Stjórnir þessara félaga ásamt hjúkrunarforstjórum stærri sjúkrahúsanna í Reykjavík og á Akureyri hafa komið athugasemdum sínum við frv. á framfæri við heilbr.- og trn. þingsins auk þess sem heilbr.- og trn. bárust fjölmargar umsagnir. Ef ég man rétt úr framsöguræðu hv. frsm. nál. í Nd. voru þær umsagnir um eða yfir 60 talsins. Í brtt. heilbr.- og trn. Nd. er reynt að taka tillit til þeirra athugasemda sem þar komu fram.
    Herra forseti. Að svo stöddu sé ég ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um frv. þetta, en ítreka að frv. er lagt fram til að standa við gefin fyrirheit við gerð kjarasamninga.
    Ég legg til að málinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.