Frsm. minni hl. menntmn. (Birgir Ísl. Gunnarsson):
Herra forseti. Það frv. sem hér liggur fyrir felur í sér breytingu á þeim reglum sem hafa gilt um ráðningar við Háskóla Íslands. Það gefur auga leið að það er nauðsynlegt að slíkar reglur séu skýrar, þær séu líklegar til að hindra ágreining og að tryggt sé að umsækjendur um störf við Háskóla Íslands fái réttláta meðferð. Mér finnst mjög vafasamt að frv. þetta tryggi þessi markmið. Ég harma reyndar að það virðist hafa verið mikil fljótaskrift á þessu frv. Því hefur verið breytt bæði í Ed. og nú er aftur lagt til að breyta því í Nd. og er auðvitað nauðsynlegt að vanda verk eins og þetta betur en hæstv. menntmrh. hefur gert varðandi frv. Ég nefni sem dæmi að í Ed. hafði hæstv. menntmrh. frumkvæði að því að kveðið var á um með skýrum hætti að ráðherra hefði algert neitunarvald ef honum féllu ekki í geð tillögur Háskóla Íslands um einstakar ráðningar og þá ætti að byrja alveg upp á nýtt.
Ég, sem skipa minni hl., get ekki fallist á frv. eins og það liggur fyrir og flyt því brtt. á sérstöku þskj. Í Ed. flutti minni hl. menntmn. þar, þ.e. Halldór Blöndal 2. þm. Norðurl. e., brtt. á þskj. 639.
Meiri hl. menntmn. hefur hins vegar tekið upp aðra brtt. hv. þm. Halldórs Blöndals, brtt. sem skiptir mjög miklu máli og ég fagna að samstaða skuli vera um. Sú brtt. felur í sér, ef að lögum verður, að skylt er hér eftir að dómnefndarmenn uppfylli hin sérstöku dómaraskilyrði einkamálalaganna, þ.e. séu ekki í of miklum tengslum við umsækjendur, engir hagsmunir séu þar á ferð og fleiri slík skilyrði sem upp eru tekin í einkamálalögunum. Ég fagna þessu mjög vegna þess að einmitt hafa risið upp varðandi embættaveitingar við Háskóla Íslands deiluefni þar sem talið var að þessa hefði ekki verið nægilega gætt. Því er mjög ánægjulegt ef um það næðist samkomulag á hv. Alþingi að skilyrði eins og þessi yrðu sett inn í lög.
Hin brtt. sem ég hef tekið upp og hef flutt á þskj. 885 felur í sér þá breytingu að í stað þess að ráðherra sé skylt að fylgja tillögum meiri hluta deildarfundar þurfi nú aukinn meiri hluta til þess að ráðherra sé skylt að fylgja tillögum Háskólans. Það eru æðimörg dæmi um að eitt eða tvö atkvæði skilji að umsækjendur í atkvæðagreiðslum á deildarfundum og virðist þá oft tilviljun ráða hver verður ofan á. Þess vegna hef ég ekki talið rétt að ráðherrann sé bundinn í slíkum tilvikum og eðlilegt að matið sé þar lagt í hans hendur. Þess vegna hef ég lagt til að aukinn meiri hluti, þ.e. *y2/3*y viðstaddra á deildarfundi, þurfi að greiða umsækjanda atkvæði, þ.e. niðurstaða deildarfundar sé alveg ótvíræð til að hendur ráðherra séu bundnar.