Flm. (Ragnhildur Helgadóttir):
Herra forseti. Frv. á þskj. 804 er flutt af fjórum þingmönnum Sjálfstfl. og tilgangur þess er að láta afnema ekkjuskattinn svonefnda. Við viljum láta afnema hið hróplega ranglæti sem birtist í því þegar fólk missir maka sinn að þá lendi það allt í einu í miklu hærri skatti af sömu eign og það hafði áður greitt af með maka sínum. Stundum ber svo við að skatturinn meira en tvöfaldist á eftirlifandi maka þó að gjaldþolið sé auðvitað stórlega minnkað eins og ekki þarf að útskýra. Þessu ranglæti var komið á í vetur í jólaönnunum og menn sáust ekki fyrir í stuðningi sínum við blessaða ríkisstjórnina sem er óðum að verða óvinsælli og óvinsælli. Þá þótti mönnum þetta nauðsynlegt en hafa áttað sig síðar því að fleiri frv. hafa komið fram um nánast sama efni. M.a. sama daginn og þetta frv. var lagt fram, þann 11. þessa mánaðar, var lagt annað frv. fram sem tók til þessa að öðru leytinu til, en að hinu leytinu til nýtingar persónufrádráttar. Um það efni var einnig flutt frv. á sl. vori. Það var flutt af Maríu Ingvadóttur, sem sat á þingi sem varaþingmaður, og var þá að sjálfsögðu við þágildandi skattalög.
Ég bendi á að þetta frv. er að forminu til flutt við 81. gr. laganna sem fjallar um skattlagningu hjóna þegar innheimtur er eignarskattur. Það er formsatriði hvort greinin er flutt við það ákvæði eða 83. gr., en með því að flytja breytinguna við 81. gr. næst fram að ákvæðið tekur einnig yfir ógift sambúðarfólk og þess vegna töldum við að með því að orða það við þá grein næðum við tilganginum betur. Enn fremur næðum við því marki líka að þá héldist áfram sama fríeignarmarkið, ef svo má segja, þannig að skatturinn af eigninni yrði óbreyttur.
Auðvitað er aðalatriðið að eignarskatturinn er í eðli sínu afar ranglátur. Það er margbúið að skattleggja fólkið, fyrst tekjurnar svo í óbeinu sköttunum þegar keypt er byggingarefni þannig að sama spýtan er skattlögð aftur og aftur og aftur í lífi fólks og seinast þegar það fellur frá í erfðafjárskatti. ( Forseti: Nú er klukkan orðin þrjú og ég verð að biðja hv. þm. um að ljúka máli sínu á hálfri mínútu eða svo ellegar halda fram máli sínu síðar ef hann kýs það frekar.) Þetta eru harðir kostir, herra forseti, en með því að ég veit að það þarf að hafa hraðar hendur til að málið fái umfjöllun í fjh.- og viðskn. um leið og sams konar skattamál sem var lagt fram sama dag veit ég að þetta þarf að gerast ef forseti er staðráðinn í því að slíta fundi Nd. nú. Ég geri ráð fyrir að annars liði einhver dagafjöldi til þess að það gengi. Ég vonast til þess að hann líti svo á að þessar tvær þrjár seinustu setningar mínar fjalli um þingsköp, enda gera þær það þó að þær séu inni í þessari sömu ræðu og þess vegna reiknist þær ekki mér til frádráttar.
Ég leyfi mér að leggja til að málinu sé vísað til fjh.- og viðskn. og það litla skref sem hér er lagt til að stigið verði verði samþykkt í þeirri nefnd. Hér er gengið skemmra en í mörgum frv. sama efnis. Það er gengið svo skammt að ég tel siðferðilega óframbærilegt að fella þetta mál. --- Og að sjálfsögðu
legg ég til að málinu verði vísað til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.