Kristín Einarsdóttir:
Virðulegur forseti. Síðast þegar við ræddum skýrslu utanrrh. hafði verið að birta til í samskiptum risaveldanna og í afvopnunarmálum. Þessa sáust einnig merki í utanríkisstefnu okkar Íslendinga. Þáv. utanrrh. í ríkisstjórn Þorsteins Pálssonar, Steingrímur Hermannsson, hafði sýnt það á nokkrum sviðum að hann tæki tillit til, þessarar þróunar, t.d. með afstöðu á alþjóðavettvangi. Ákvarðanir hans höfðu með jákvæðum hætti tekið mið af ályktun Alþingis frá 23. maí 1985 og hann sýndi nokkra djörfung með því að breyta um áherslur á ýmsum umdeildum sviðum. Þegar svo ný ríkisstjórn var mynduð sl. haust, sem telur sig sjálfkjörinn málsvara jafnréttis og félagshyggju, reiknuðu ýmsir með að verulega yrði tekið til hendinni á sviði utanríkismála. Margir reiknuðu með því að þessi ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar og með aðild Alþb. yrði a.m.k. ekki eftirbátur grannþjóða okkar á Norðurlöndum sem sumar hverja lúta stjórn sósíaldemókrata. Þessar vonir hafa nú hins vegar brugðist með hrapallegum hætti og snúist upp í andhverfu sína á mörgum mikilvægum sviðum eins og ég mun víkja að hér á eftir.
Við ræðum hér skýrslu utanrrh. og utanríkismál í tengslum við hana, seint á þingi miðað við það sem áætlað var. Samkvæmt starfsáætlun Alþingis var ætlunin að ræða utanríkismál um miðjan marsmánuð en síðan hefur umræðunni verið seinkað tvívegis. Ég hefði talið það æskilegt að umræða um skýrslu utanrrh. færi fram mun fyrr á þinginu, jafnvel í upphafi þings, svo ljóst sé hvernig utanrrh. hyggst fara með stefnu ríkisstjórnarinnar í þessum mikilvæga málaflokki.
Það hefur verið áberandi í vetur hve oft ákvarðanir utanrrh. hafa orðið tilefni til umræðna utan dagskrár vegna afstöðu hans á alþjóðavettvangi. Í þeim efnum hefur hann talið mikilvægast að nota vald sitt m.a. til að greiða atkvæði á vettvangi Sameinuðu þjóðanna með þeim hætti sem fullyrða má að sé í andstöðu við meirihlutavilja þjóðarinnar. Það sem honum finnst greinilega skipta mestu máli er að hans persónulegu viðhorf komist á framfæri. Að hlusta á aðra virðist ekki vera hans sterka hlið, hvað þá heldur að taka mið af því sem aðrir segja eða skoðunum annarra.
Stefna núv. ríkisstjórnar í utanríkismálum með hæstv. utanrrh. í broddi fylkingar hefur verið að láta sem þíðan í samskiptum stórveldanna sé ekki staðreynd og því sé engin ástæða til að einhver merki sjáist um þá þíðu í afstöðu Íslands til alþjóðamála né í því sem er að gerast í vígbúnaði hér á landi.
Hernaðarumsvif hafa aukist verulega hérlendis á seinni árum. Nýjar vígvélar, olíuhöfn, ratsjárstöðvar og flugskýli sem þola kjarnorkuárás bera vott um þá staðreynd að Ísland er nú notað sem víghreiður. Ísland er einn möskvinn í hernaðarneti stórveldanna. Á undanförnum árum höfum við flækst æ fastar í því neti. Nú er kominn tími til að snúa við blaði.
Við lestur skýrslu utanrrh. er varla hægt að segja að maður fyllist bjartsýni, hernaðarhyggjan er þar allsráðandi. Varla er þar að finna vott af afvopnunar-
eða friðarvilja heldur frekar þvert á móti. Ráðherrann telur jafnvel að rétt sé að Atlantshafsbandalagið endurnýi birgðir skammdrægra kjarnavopna. Þetta er að vísu í samræmi við yfirlýsta stefnu Atlantshafsbandalagsins en við heyrum nú að Þjóðverjar séu að mótmæla þessari stefnu og segi að það sé ekki í samræmi við vilja almennings í Vestur-Þýskalandi að endurnýjun verði á kjarnorkuvopnabirgðum bandalagsins. Og sams konar fréttir berast nú frá Belgíu. Við Íslendingar megum á sama tíma búa við það að ríkisstjórnin mælir með frekari kjarnorkuvígvæðingu. Er þá e.t.v. komin skýringin á því hvers vegna ráðherrann hæstv. vildi ekki greiða atkvæði hjá Sameinuðu þjóðunum gegn frekari tilraunum með kjarnorkuvopn og uppsetningu kjarnavopna.
Hvað segir Alþb. um þessa frammistöðu sem það ber ábyrgð á í ríkisstjórninni? Hefur orðið stefnubreyting á þeim bæ? Á undanförnum árum hafa utanríkisráðherrar verið spurður um það hvort á Íslandi séu eða muni verða staðsett kjarnavopn. Svörin hafa verið misjafnlega óljós. Síðast fyrir nokkrum vikum spurði ég hæstv. utanrrh. með hvaða hætti því hefði verið komið á framfæri á alþjóðavettvangi að á Íslandi megi ekki staðsetja kjarnavopn. Hann svaraði fyrirspurn minni á þann veg að ljóst er að íslensk stjórnvöld hafa aldrei komið því á framfæri með ótvíræðum og formlegum hætti á alþjóðavettvangi að hér megi ekki staðsetja kjarnavopn. Og þá að sjálfsögðu ekki flytja þau inn á íslenskt yfirráðasvæði, þ.e. á íslenskt land eða landhelgi. Þetta er í fyllsta samræmi við það sem ráðamenn hjá NATO halda fram og augljóst af hernaðaráætlunum sem herstöðin er hluti af. Ísland er því ekki kjarnorkuvopnalaust svæði eins og reynt hefur verið að telja okkur trú um og skiptir engu máli þótt íslenskir ráðherrar segi það á fundum eða í hanastélsboðum með kollegum sínum á erlendri grund að Íslendingar vilji ekki hafa kjarnavopn í landi sínu. Yfirlýsingar íslenskra ráðherra virðast því eingöngu vera gerðar til að slá ryki í augu fólks.
Þótt lítið fari fyrir afvopnunar- og friðarvilja af hálfu íslensku
ríkisstjórnarinnar vekja afvopnunarviðræðurnar í Vín vissar vonir um að árangur geti orðið í afvopnun á landi. Það er hins vegar verulegur galli á þeim viðræðum að alls ekki virðist mega ræða um afvopnum í höfunum á þessum fundum. Eftir upplýsingum íslenskra embættismanna sem starfa að þessum málum að dæma er fyrst og fremst um að kenna tregðu innan NATO að afvopnun í höfunum er ekki til umræðu á Vínarfundi eða annars staðar. Það hlýtur að vera okkur sérstakt kappsmál að afvopnunarviðræðurnar takmarkist ekki við landher eingöngu heldur nái til allra þátta vígbúnaðar. Ég tel eðlilegt að Ísland hafi frumkvæði í þessum málum og krefjist tafarlausra viðræðna um þessi mál. Við getum alls ekki sætt okkur við að bíða eftir því hvenær stórveldunum þóknast að byrja að ræða þessi mál.
Fyrsta merki um stefnu ríkisstjórnarinnar í
afvopnunarmálum birtist í ákvörðun hæstv. utanrrh. mánuði eftir að þing kom saman sl. haust. Þá ákvað ráðherrann hæstv. að í atkvæðagreiðslu hjá Sameinuðu þjóðunum skyldi Ísland ekki styðja tillögu um kjarnorkuafvopnun, svokallaða frystingu kjarnavopna. Sú ákvörðun var í fullu ósamræmi við þann vilja sem komið hefur fram, bæði hér á Alþingi og ekki síður annars staðar í þjóðfélaginu. Þar kaus ráðherrann að nota vald sitt til að taka afstöðu án þess að taka tillit til skoðana meiri hluta þjóðarinnar.
Annar herflugvöllur er algjör nauðsyn, var það næsta sem yfir okkur dundi frá ráðherranum. Herflugvöllur sem hann segir að sé í raun ekki herflugvöllur. Engin herflugvél muni koma þar nema í neyðartilvikum og ef komi til styrjaldar. Ef þessi svokallaði varaflugvöllur verður byggður mun varla líða langur tími þangað til herflugvélar og dátar þurfa að æfa sig í að nota völlinn því annars er ekkert gagn að honum. Og ætli þess yrði langt að bíða að sérstakt herlið þyrfti að æfa varnir gegn árás á hervöllinn og átta sig á aðstæðum hér á landi eins og talið er nauðsynlegt að varalið herliðsins á Keflavíkurflugvelli gerir nú í sumar?
Það næsta sem dundi yfir íslenskan almenning voru fréttir um mikla heræfingu sem hefjast ætti á þjóðhátíðardaginn. Að vísu var fljótlega borið til baka að heræfingin sjálf byrji þann dag heldur var látið nægja að kveðja liðið út í minningu Jóns Sigurðssonar. Þessum háu herrum hefur e.t.v. verið bent á að skothríð á fæðingardegi hans þætti Íslendingum ekki viðeigandi. En eðli og umfang heræfinganna breytist ekki þótt dagurinn sé fluttur til eða dátunum fækkað um þriðjung eins og hæstv. ráðherra greindi frá í ræðu sinni í gær. Eftir sem áður verða þetta tvöfalt umfangsmeiri heræfingar þessa varaliðs en áður hafa farið fram hér á landi.
Hvernig getur það farið saman við óskir Íslendinga um afvopnun á höfunum að hér skuli eiga að fara fram einhverjar umfangsmestu heræfingar frá stríðslokum? Er það dæmi um friðarvilja okkar að leyfa slíkar heræfingar? Getur það verið að öll ríkisstjórnin standi að baki þessari ákvörðun? Og ég spyr enn: Hefur orðið stefnubreyting hjá Alþb. hvað varðar þessi mál?
Utanrrh. reynir í skýrslu sinni að gera lítið úr þessum fyrirhuguðu heræfingum. Hann telur að þúsund manna heræfing skipti ekki neinu máli, sé bara smáæfing og því taki varla að ræða hana. Sú fækkun dátanna sem kunngerð var í gær er líklega gerð til þess að auðveldara sé fyrir Alþb. og hluta Framsfl. að kyngja stóru yfirlýsingunum. Segja má að sú staðreynd að búið er að veita leyfi til heræfinganna komi alls ekki á óvart því ekki virðist mega hrófla við Bandaríkjamönnum og hernaðarbrölti þeirra hérlendis. Ráðherra virðist vaða í þeirri villu að heræfingin sé liður í því að þjálfa óbreytta Bandaríkjamenn í að verja okkur Íslendinga. Það þarf ekki að kafa djúpt í þessi mál til að sjá að tilvist þessa varaliðs er auðvitað liður í vörnum Bandaríkjanna og hefur ekkert með varnir almennings
á Íslandi að gera. Það sama gildir auðvitað um bandaríska herliðið sem er hér á landi. Hvernig dettur líka nokkrum manni í hug að þessir menn sem hingað koma í framhaldi af þjóðhátíðinni og ætla að dvelja innan hergirðingarinnar við æfingar kynnist í raun aðstæðum hér á landi? Þeir eru auðvitað hingað komnir til að æfa sig að verja herstöðina sem er talin mikilvægur hlekkur í vörnum Bandaríkjanna.
Kvennalistakonur eru andvígar hugarfari hermennskunnar. Okkur ber að stöðva allar hernaðarframkvæmdir hér á landi þegar í stað og stefna að friðlýsingu Íslands án vígbúnaðar. Við verðum að gera það upp við okkur hvert við stefnum. Í mínum huga er enginn vafi á því hvert við eigum að stefna og ég er sannfærð um að meiri hluti þjóðarinnar er mér sammála. Notum komandi vordaga og þjóðhátíðina til að uppræta hugarfar hermennskunnar í stað þess að ala á því eins og nú er gert af íslenskum stjórnvöldum.
Fyrir fáeinum dögum vorum við óþyrmilega minnt á kjarnorkuvígbúnaðinn í höfunum þegar sovéskur kafbátur fórst suður af Bjarnarey. Slys eins og þarna átti sér stað er því miður ekkert einsdæmi því eins og fram hefur komið hafa orðið mörg hundruð meiri og minni háttar slys af þessu tagi.
Ég tók eftir því að ráðherrann talaði um að takmarka þyrfti ferðir kjarnorkuknúinna kafbáta sem nota ætti til árása. Ég vil benda hæstv. ráðherra á að ef bátur eða skip er kjarnorkuknúið getur orðið meiri háttar mengunarslys
þó ekki séu vopn um borð í bátnum. Brýna nauðsyn ber því til að við gerum eitthvað raunhæft í málunum. Nú er kominn tími til athafna.
Á sama tíma og ráðherrann ákvað að Íslendingar styddu ekki tillögu um stöðvun kjarnorkuvígbúnaðarins gerði hann okkur að algjöru viðundri með því að styðja ekki tillögu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna um fordæmingu á hermdarverkum Ísraelsmanna á hernumdu svæðunum. Varla þarf að fara mörgum orðum um það sem hefur verið að gerast fyrir botni Miðjarðarhafs undanfarna mánuði. Það er algjörlega óviðunandi að við Íslendingar stöndum hjá og látum sem ekkert sé frammi fyrir slíkum voðaverkum.
Á þingi Sameinuðu þjóðanna nýverið urðu ákvarðanir ráðherrans fyrir hönd Íslands tilefni þess að maður þurfti enn einu sinni að skammast sín í þessu máli. Ráðherrann hæstv. virðist ekki geta metið það á hlutlausan hátt hvað Ísraelsmenn eru að gera fólki á þessu svæði. Hvers eiga börn að gjalda sem þarna eru myrt í hundraðatali fyrir að kasta grjóti að hermönnum gráum fyrir járnum? Lítur ráðherra hæstv. á aðgerðir barnanna sem hryðjuverk sem megi leggja að jöfnu við þau hryðjuverk sem eiga sér stað á þessu svæði af hálfu Ísraelsmanna?
Nú hafa Palestínumenn lýst yfir stofnun sjálfstæðs Palestínuríkis. Í tengslum við það lýstu þeir yfir viðurkenningu á Ísraelsríki með vísan til samþykktar Sameinuðu þjóðanna nr. 181 frá 1947 og samþykktar öryggisráðsins nr. 242 og 338. Fyrri afstaða PLO til þessara samþykkta var talin hafa staðið í vegi fyrir að
hægt væri að hefja umræður um lausn á deilunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Fljótlega kom í ljós að Ísraelsmenn töldu þessar yfirlýsingar ekki nægjanlegar og þrjóskast enn við að fallast á viðræður þar sem PLO er viðræðuaðili. Í skýrslu utanrrh. segir m.a. um þennan atburð, með leyfi forseta:
,,Ríki þetta fékk þegar í stað viðurkenningu flestra arabaríkja þótt fullyrða megi að slík viðurkenning sé í andstöðu við viðurkenndar reglur og venjur í þjóðarétti.``
Hvað á ráðherrann við með ,,flest arabaríki``? Hafa engin önnur ríki viðurkennt Palestínuríki og enn fremur hafa ekki öll arabaríkin gert það? Hvað er átt við með þessu orðalagi? Samkvæmt mínum heimildum hafa a.m.k. 87 ríki viðurkennt hið nýja ríki. Það væri fróðlegt að vita hvað ráðherrann á við með því orðalagi sem þarna kemur fram. Einnig vil ég inna hæstv. ráðherra eftir því í hvaða viðurkenndu reglur og venjur hann er að vitna í þessu sambandi. Mér fannst ekki ljóst á ræðu hans í gær hvað þar væri átt við.
Annars finnst mér allur kaflinn um Miðausturlönd bera vott um mikla vanþekkingu á því sem þar er að gerast. Það mætti halda að ráðherrann hafi lítið sem ekkert fylgst með framvindu mála þar. Vonandi fer ráðherrann að láta sér segjast í þessu máli sem og fleirum svo við þurfum ekki að fyrirverða okkur enn frekar en orðið er vegna afstöðu Íslands á alþjóðavettvangi. Í því sambandi vil ég minna á að nú er til meðferðar í utanrmn. tillaga um málefni Palestínu og vonandi getum við fljótlega tekið af skarið um stefnu Alþingis varðandi þetta mál.
Eitt stærsta mál fyrir þjóð eins og okkur Íslendinga eru samskiptin við aðrar þjóðir. Þessi samskipti eru bæði mikil og margþætt og varða margs konar samstarf, svo sem á sviði vísinda, menningar og viðskipta. Í þessu samstarfi og samvinnu er mikilvægt að við höldum vöku okkar, missum ekki fjárhagslegt sjálfstæði og seljum ekki landið og sjálfstæði okkar í hendur útlendinga. Fáar þjóðir eru eins háðar viðskiptum við aðrar þjóðir og við Íslendingar. Við erum mjög háð innflutningi en höfum fyrst og fremst okkar dýrmætu sjávarafurðir til að selja til útlanda. Sífellt stærri hluti útflutnings okkar fer til landa Evrópubandalagsins en útflutningur til Bandaríkjanna hefur jafnframt dregist saman. Mikilvægt er fyrir okkur að líta til fleiri markaða þannig að við höfum ekki öll eggin í sömu körfunni.
Það er yfirlýst stefna Kvennalistans að aðild að Evrópubandalaginu komi ekki til greina. Með aðild að slíku bandalagi mundu Íslendingar fórna yfirráðum yfir auðlindum sínum og efnahagsmálum og þar með sjálfstæði sínu.
Aðild okkar að EFTA getur haft verulega þýðingu fyrir samskipti okkar við Evrópubandalagið. Okkur er nauðsyn á að hafa góð samskipti við Evrópubandalagið og EFTA-þjóðirnar, en við verðum að gæta þess vandlega að fórna ekki sjálfsákvörðunarrétti þjóðarinnar.
Á fundi forsrh. EFTA-landanna í Osló í síðasta
mánuði samþykktu ráðherrarnir að efla samtökin og vinna að því að auka samvinnu við EBE. Á þessum fundi náðist sá mikilvægi árangur að samþykkt var fríverslun með fisk innan EFTA. Íslenski forsrh. gerði fyrirvara við ályktun Oslóarfundarins að því er varðaði afnám á hömlum á sviði fjármagnshreyfinga, þjónustu og fólksflutninga. Þessi fyrirvari var mjög eðlilegur í ljósi þess hve lítið og viðkvæmt íslenskt efnahags- og peningakerfi er. Athyglisvert er að viðskrh. í ríkisstjórninni virðist ekki taka mark á orðum þess ráðherra sem fer með forsæti í ríkisstjórninni og hefur hann ítrekað sagt í ræðu og riti að Íslendingar hafi samþykkt yfirlýsingu Oslóarfundarins án fyrirvara. E.t.v. veit hæstv. viðskrh.
ekki betur. En hvað með hæstv. utanrrh.?
Ég tel mikilvægt að það komi fram við þessa umræðu hvort hæstv. utanrrh. tekur mark á fyrirvara hæstv. forsrh. Þetta er sérstaklega mikilvægt þar sem utanrrh. fer með þessi mál fyrir hönd Íslands og mun fyrir Íslands hönd verða í forsæti EFTA seinni helming þessa árs. Ég vil ítreka þetta þar sem fram kom í máli hv. síðasta ræðumanns að hann telur að enginn fyrirvari hafi þarna verið gerður og hefur greinilega allt aðra skoðun á þessum málum en hæstv. forsrh., og ég m.a.
Ein af þeim fréttum sem vöktu ugg meðal þjóðarinnar voru frásagnir af því að hæstv. sjútvrh. hefði á fundi með fulltrúum Evrópubandalagsins hafið máls á því að Íslendingar væru til viðtals um veiðiheimildir við flota Evrópubandalagsins innan íslenskrar fiskveiðilögsögu. Þar fór ráðherrann inn á hættulega braut. Ég vil nota tækifærið til að vara við slíku frumhlaupi og vona að þarna hafi verið um mistök að ræða sem komi ekki fyrir aftur.
Nýlega kynnti hæstv. utanrrh. svokallaðar skipulagsbreytingar á utanríkisþjónustu í utanrmn. sem trúnaðarmál. Ég er nú þeirrar gerðar að ég tek hátíðlega þann trúnað sem mér er sýndur og geri það einnig í þetta skipti. Mér skildist að ráðherrann væri að sýna okkur í utanrmn. tillögur sínar til þess að hlusta á það sem við hefðum um tillögur hans að segja og jafnvel taka tillit til þess, hafa samráð eins og gert er ráð fyrir að ríkisstjórnin hafi við utanrmn. Trúnaðarmálið birtist svo nokkrum dögum seinna í Alþýðublaðinu. Ég held að rétt sé að taka til endurskoðunar hugtökin trúnaðarmál og samráð að því er varðar samskipti utanrmn. og hæstv. utanrrh.
Þegar skipulagsbreytingar ráðherrans eru skoðaðar nánar kemur í ljós að þær eru í raun ekkert annað en umbúðir utan um þá ákvörðun að enn einn alþm. fari í sendiherrastöðu. Ég tel það með öllu óviðunandi að alþingismenn eigi á þennan hátt að ganga inn í stöður, hvort sem er innan utanríkisþjónustunnar eða annars staðar, og þannig sé gengið jafnvel fram hjá reyndu fólki á viðkomandi sviði. Oft virðast þessar ráðningar frekar verða til þess að losa sæti eða vera liður í einhverjum hrossakaupum, jafnvel til að reyna að leysa upp stjórnmálaflokka. Hættulegt er ef slík sjónarmið eiga að vera ráðandi þegar mat er lagt á hver skuli hljóta ákveðin störf. Í
endurskipulagstillögum ráðherrans, sem, eins og ég sagði áðan, birtust í Alþýðublaðinu, er einnig talað um að þessi viðbót við sendiherrastöður muni ekki þýða fjölgun starfsmanna utanríkisþjónustunnar. Þetta hlýtur að þýða að fækkun mun verða í starfsliðinu á öðrum stöðum. Ekki hefur enn verið upplýst hvar það verður, en við fáum þá væntanlega að heyra það í Alþýðublaðinu fljótlega.
Framlög Íslendinga til þróunarmála hafa verið skammarlega lág og eru það enn þrátt fyrir nokkra raunhækkun samkvæmt fjárlögum í ár. Þau eru samt langt frá að ná því marki sem Alþingi setti sér í ályktun á 107. löggjafarþingi. Þá var samþykkt ályktun um aðm stefnt skyldi að því að framlag Íslands til uppbyggingar í þróunarríkjum verði 0,7% af þjóðarframleiðslu. Það er því lítil reisn yfir því framlagi sem rennur til þessara mála þetta árið. Ég vil benda á það að á seinni árum hefur aðstoð við þróunarríkin í æ ríkara mæli beinst að aðstoð við konur. Ástæðan er ekki síst sú að þeir sem hafa starfað í þessum löndum gera sér betur og betur grein fyrir því mikilvæga hlutverki sem konur gegna í þessum þjóðfélögum, sem og öðrum.
Við afgreiðslu fjárlaga í janúar sl. lögðum við kvennalistakonur til að framlag til Þróunarsamvinnustofnunar Íslands yrði hækkað til að hægt yrði að ljúka við Kvennahúsið í Mindelo á Grænhöfðaeyjum. Þetta hús á að vera skóli og þjálfunarstöð fyrir konur, en eins og kunnugt er er aðstaða kvenna á eyjunum vægast sagt afar erfið. Sameinuðu þjóðirnar hafa einnig lagt áherslu á hlutverk kvenna í því að stuðla að friði í heiminum. Ein af þeim tillögum sem samþykktar hafa verið á þingum Sameinuðu þjóðanna tengist yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna frá 1982 um þátttöku kvenna í því að stuðla að friði í heiminum. Í tillögunni kemur fram hvatning til ríkisstjórnar til að kynna yfirlýsinguna og koma á framfæri boðskap hennar. Ég hef ekki orðið vör við framkvæmd þessarar tillögu hér á landi. Valdbeiting, ofbeldi og virðingarleysi við það sem lífsandann dregur hefur um of verið ríkjandi í stjórn heimsins. Að baki liggur hugarfar sem er í hrópandi andstöðu við menningu kvenna sem þiggur lífskraft sinn frá endurnýjun lífsins, verndun þess og viðhaldi. Það er því engin tilviljun að Sameinuðu þjóðirnar leggja áherslu á þátttöku kvenna í friðarstarfi. Út um allan heim starfa friðarhreyfingar sem að mestum hluta eru bornar uppi af konum. Auðvitað eru karlar þar einnig virkir þátttakendur.
Hlutverk kvenna á öllum sviðum þjóðfélagsins er mikilvægt, en hlutverk þeirra að stuðla að friði í heiminum er nýr tónn í friðarbaráttu og við hann bindum við miklar vonir. Við verðum að rísa gegn þeirri hernaðarhyggju sem mótar afstöðu þeirra sem fara með völdin. Við getum ekki falið örfáum mönnum líf okkar og framtíð. Því tökum við afstöðu með þeim sem vinna að friði í heiminum og stefnum að friðlýsingu Íslands án vígbúnaðar í heimi án hernaðarbandalaga.