Utanríkismál
Þriðjudaginn 25. apríl 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti hlýtur að hafa talað óskýrt hér áðan. Á fundi sem haldinn var í gær varð samkomulag um að þessari umræðu lyki á þessum degi. Ef allir þeir tíu ræðumenn sem hér eru á mælendalista tala í 1*y1/2*y tíma lýkur þessari umræðu kl. 9 í fyrramálið. Ég vil biðja menn að hugsa um það hvort ekki er hægt að reyna að hafa hemil á mælsku sinni þannig að allir þeir sem hafa tilkynnt sig á mælendaskrá fái að láta skoðanir sínar í ljós.