Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Áður en ég kem að efni þeirrar skýrslu eða þeirra skýrslna sem hér eru til umræðu hefði ég gjarnan viljað segja eitt eða tvö orð um vinnubrögðin og skipulag vinnunnar hér.
Það var upphaflega svo að ætlunin var að halda kvöldfund hér í gærkvöldi en síðan var fallist á beiðni ákveðinna þingmanna um að sá fundur yrði ekki haldinn í gær heldur yrði umræðunni haldið áfram í dag og henni lokið í kvöld. Ég veit ekki um ástæðurnar fyrir ósk þessara hv. þm. fyrir frestun á umræðunni, en hafi hún eingöngu verið sú að þeir hafi talið að fjölmiðlar mundu ekki veita máli þeirra svo ríka athygli í gærkvöldi sem gerast mundi í dag leyfi ég mér að lýsa því yfir að það er að mínu mati ekki næg ástæða til frestunar. En um þetta verður auðvitað ekkert fullyrt.
Ég vildi í öðru lagi víkja að því að ég held að brýnt sé orðið að við hv. þm. endurskoðum þær vinnureglur sem við fylgjum þegar ræddar eru skýrslur af þessu tagi. Ég held að reynslan hér í dag hafi sannað það enn einu sinni svo að ekki verður um villst hversu brýnt er að breyta þessum reglum. Hér talaði einn hv. þm. hátt í tvo klukkutíma. Hér á ég við hv. 2. þm. Austurl. Hjörleif Guttormsson. Hann er því miður ekki í salnum svo að ég get ekki beint orðum mínum til hans. En þegar ræðutími er takmarkaður að því leytinu til að þessum umræðum á að ljúka í kvöld eða nótt eða fyrir fundartíma á morgun, eins og hv. þm. Hjörleifur Guttormsson orðaði það hér í dag þegar hann hótaði því líka að taka aftur til máls hér síðar, verður þetta auðvitað umhugsunarefni, að einn þingmaður skuli tala hátt í tvo klukkutíma um þetta mál. Í ræðu hans var fátt sem vakti athygli og ekkert nýtt. Raunar heyrðum við hann flytja þessa ræðu hér fyrir fáeinum vikum þegar til umræðu voru fyrirhugaðar æfingar varaliðs á vegum varnarliðsins á Miðnesheiði. Þá flutti hann okkur þessa ræðu. Hann hefur flutt hana hér einu sinni eða tvisvar á ári í mörg undanfarin ár, svo lengi sem ég hef átt sæti á hinu háa Alþingi, og þar var eins og ég segi fátt sem vakti athygli og ekkert nýtt.
En það sem mér þykir taka í hnúkana er tillitsleysið gagnvart öðrum þingmönnum, það voru margir á mælendaskrá, hið fullkomna tillitsleysi sem þessi hv. þm., Hjörleifur Guttormsson, sýnir öðrum þingmönnum með ræðuflutningi á borð við þann sem hann ástundar í umræðum af þessu tagi þegar hann talar aldrei skemur en í hálfa aðra klukkustund og stundum töluvert mikið lengur. Hann hafði mörg orð um það hér í ræðu sinni í dag að hann gæti ekki sagt allt sem honum lá á hjarta vegna þess að hann ætlaði að taka tillit til þeirra tilmæla að menn styttu mál sitt og talaði bara í tæpar tvær klukkustundir.
Ég held að það sé alveg óhjákvæmilegt, virðulegi forseti, að þær reglur sem gilda um umræður um skýrslur af þessu tagi, skýrslu utanrrh. og fleiri skýrslur, verði endurskoðaðar, að umræður um þær verði með þeim hætti að flokkarnir komi sér fyrst saman um það hversu löngum tíma skuli verja til
umræðnanna, við getum sagt 10 klukkustundum eða 12 klukkustundum eða eitthvað nærri því laginu, að flokkarnir komi sér saman um heildartímann. Síðan komi flokkarnir sér saman um skiptingu þessa tíma milli flokkanna. Þingflokkarnir hver um sig komi sér síðan saman um skiptingu tímans innbyrðis milli sinna þingmanna og talsmanna. Ég held að hv. þm. Hjörleifur Guttormsson hafi enn einu sinni sannað fyrir okkur hér í dag hversu ómögulegt þetta fyrirkomulag er sem nú er við lýði, þegar hann sýnir samþingismönnum sínum þessa dæmalausu ókurteisi sem hann gerir ár eftir ár. Víst skal það viðurkennt að ýmsir aðrir þingmenn vildu gjarnan tala á öðrum tíma en á kvöld- eða næturfundum þegar hér er fátt um fólk í salnum og við bætist kannski líka að fjölmiðlar sýna þeim málum minni áhuga sem koma hér fram seint á kvöldum eða nóttum. Ég held, virðulegi forseti, að nú sé mjög brýnt að við breytum þessum reglum þó ekki sé nema bara vegna þess hvernig hv. þm. Hjörleifur Guttormsson fer fram í þessum umræðum. Mér þykir vænt um að hann skuli hafa komið hér í salinn og hlýtt á þessi orð mín.
Virðulegi forseti. Það er ekki ágreiningur um þá meginstefnu sem fylgt hefur verið í utanríkismálum hér á landi undanfarna áratugi. Þorri þjóðarinnar stendur að baki þeirri stefnumótun og þeirri stefnu sem þar er fylgt. Það er aðeins einn stjórnmálaflokkur, Alþb., að sumu leyti Kvennalisti líka --- en ég sé að það er enginn hv. þm. þess stjórnmálaflokks hér í salnum nú um stundir þannig að ekki er svo auðvelt við þær að ræða. En Alþb. hefur sérstöðu í utanríkismálum, hefur þar dagað uppi eins og nátttröll á heiði, misst jarðsamband og veruleikaskynjan og sem betur fer er það svo að áhangendum og fylgjendum þeirrar stefnu í utanríkismálum fer óðum fækkandi.
Ég hlýddi á nokkurn hluta ræðu hv. þm. Hjörleifs Guttormssonar. Hann talaði þar um kjarnorkuslys, alvarlegt mál sem ástæða er til að gefa fyllsta gaum. Hins vegar kom mér það nokkuð spánskt fyrir sjónir að heyra hann tala um sprenginguna sem varð um borð í bandarísku herskipi þar sem 47 sjóliðar biðu bana eins og þar hefði orðið kjarnorkuslys. Ég veit ekki hvort hv. þm. hefur einhverjar upplýsingar sem við hin höfum ekki um að þarna hafi orðið
kjarnorkuslys en þetta er auðvitað óábyrgur og ómerkilegur málflutningur í hæsta máta. Það hefur ekkert komið fram sem betur fer sem bendir til þess að neitt slíkt hafi átt sér stað, ekkert. Og ég endurtek: Sem betur fer. Og það er ómerkilegt að reka hér hræðslupólitík í lagi eins og hv. þm. gerði, að gefa í skyn að þarna hafi orðið miklu alvarlegra og válegra slys en varð. Nóg var nú samt.
Mér þótti það líka skrýtið að heyra þennan hv. þm. vitna í orð Williams Arkins, sem starfar hjá einhvers konar rannsóknastofnun svokallaðri vestur í Bandaríkjunum, eins og þar væri um heilagan sannleika að ræða. Þetta er maðurinn sem kom því inn hjá fréttamönnum Ríkisútvarpsins á sínum tíma að hann hefði örugga vitneskju um það að á
Keflavíkurflugvelli væru geymd kjarnorkuvopn. Þetta er maðurinn sem kom hér svo ári síðar og sagði við okkur allmarga þingmenn niðri í þingflokksherbergi Framsfl.: Því miður, herrar mínir, mér þykir það ákaflega leitt, en þetta var allt saman rangt sem ég sagði hér í fyrra. Svo kemur hv. þm. Hjörleifur Guttormsson og vitnar í þennan svokallaða fræðimann eins og þar sé um óskeikula heimild að ræða.
Hv. þm. Hjörleifur Guttormsson og raunar hv. þm. Kristín Einarsdóttir ræddu bæði um varaflugvöll sem hér hefur borið á góma og er eðlilega fjallað um í þessum umræðum. Hv. þm. sagði og eftir honum var haft í útvarpi að ef utanrrh. hæstv. léti fara fram þá forkönnun sem um er talað mundi það mál valda stjórnarslitum. Ég trúi því ekki fyrr en ég heyri þau orð töluð úr munni einhvers ábyrgari talsmanns Alþb. en hv. 2. þm. Austurl. er í þessum efnum því að auðvitað trúir því ekki nokkur maður að Alþb. láti það varða stjórnarslitum þó að hæstv. utanrrh. gegni þeirri sjálfsögðu skyldu sinni, að ég tel, að láta slíka forkönnun fara fram. Ég tel það ekkert álita- eða áhorfsmál. Það ber að gera. Það er mín skoðun. Engum sem þekkir sögu Alþb. í stjórnarsamstarfi við aðra flokka flýgur það í hug að Alþb. mundi láta slíka könnun valda stjórnarslitum, og ég segi sem betur fer. Þar fengi þó skynsemin að ráða enda þótt hv. þm. Hjörleifur Guttormsson tali á annan veg.
Hv. þm. Kristín Einarsdóttir, sem ég sé að er komin hér í salinn, talaði um frumhlaup hæstv. sjútvrh., að hann skyldi hafa vogað sér að ræða sjávarútvegsmál og mál sem varða fiskveiðar við einhverja af talsmönnum Efnahagsbandalagsins. Raunar voru nú fleiri sem höfðu um þetta stór orð á sínum tíma þegar hæstv. sjútvrh. gegndi þeirri sjálfsögðu skyldu sinni að ræða þessi mál við ýmsar af þeim þjóðum sem við eigum mikil viðskipti við og þar sem við eigum margvíslegra hagsmuna að gæta. Ég man ekki betur en hv. 1. þm. Suðurl. hafi haft um þetta ýmis orð í blaðaviðtölum og dæmt það mjög hart. Ég er satt að segja alveg hissa á þessum ummælum hv. þm. vegna þess að ég sé nákvæmlega ekkert athugavert við það að sjávarútvegsráðherra okkar Íslendinga ræði þessi mál við aðrar þjóðir. Það var ekki verið að falbjóða eitt eða neitt. Það var ekki verið að bjóða það sem við höfum engum að bjóða, það sem er ekki til skiptanna fyrir okkur og dugar okkur ekki, er ekki til sölu eða falboðið öðrum. Þess vegna finnst mér þetta fráleit og óréttmæt gagnrýni á hæstv. sjútvrh. og ég sé ekki hvað það getur skaðað, hvern það getur skaðað eða hvernig það má til nokkurs tjóns verða að fulltrúi okkar ræði þessi mál við aðrar þjóðir. Mér finnst satt að segja það að gagnrýna það og hafa á móti því svo ótrúleg þröngsýni og svo ótrúleg skammsýni að það er með ólíkindum, enda hef ég ekki heyrt hv. 1. þm. Suðurl., eftir þessa fyrstu hrinu þegar þetta bar að, nefna þetta á nafn. ( ÞP: Gagnrýnin beindist að forgjöf forsrh.) Ég held að allir hafi skilið hvað hv. 1. þm. Suðurl. var að fara þegar hann gagnrýndi sjútvrh., en það ber auðvitað að meta að hann sá að sér, hann sá að þetta
var rangt, að þetta var ekki réttmætt. Auðvitað ber ekkert að hafa á móti því að við ræðum við aðrar þjóðir en það er kannski bara í stíl við þá einangrunarstefnu, stefnu einangrunar og afturhalds, sem bæði Kvennalistinn og Alþb. fylgja í utanríkismálum, að hafa á móti því að talað sé við aðrar þjóðir.
Þá gagnrýndi hv. þm. Kristín Einarsdóttir þær gjörðir hæstv. utanrrh. að hann skyldi hafa fengið stjórnmálamenn til liðs við utanríkisþjónustuna og til starfa þar. Það er auðvitað ekkert nýtt. Það hefur gerst oft áður í áranna rás og það er ekkert séríslenskt fyrirbæri. Ef menn horfa til landanna hér í kringum okkur er það mjög algengt að menn sem sinnt hafa stjórnmálum taka við störfum í utanríkisþjónustu.
Það var helst að heyra á málflutningi hv. þm. Kristínar Einarsdóttur að það eitt að menn hefðu setið á Alþingi og starfað þar um skeið gerði þá í rauninni óhæfa til annarra starfa því að hún sagði: ,,Svo eru þingmenn jafnvel teknir fram fyrir aðra starfsmenn.`` Nú veit ég ekki hvað hv. þm. hugsar sér þegar hún hættir störfum á Alþingi eftir reglum Kvennalistans. Sjálfsagt bíður hennar eitthvert starf einhvers staðar í opinbera kerfinu, sumir hafa lag á því að láta geyma sér störf og það getur auðvitað verið réttmætt í einhvern tíma. Það getur ekki verið réttmætt í langan tíma. Ég held að það sé mjög rangt og í grundvallaratriðum, ég vil næstum segja hættuleg skoðun, að halda því fram að þeir menn sem sinnt hafa hér trúnaðarstörfum á Alþingi séu til annarra starfa
óhæfir að þingsetu lokinni. Ég held hins vegar að það hafi þvert á móti gefið góða raun í afar mörgum tilvikum að fá menn úr stjórnmálalífi til þátttöku t.d. í starfi utanríkisþjónustunnar, það hefur gefið góða raun í grannlöndum okkar, það hefur gefið góða raun hér líka og sé hreint ekkert sem mælir gegn því að alþingismenn geti gengið til ýmissa starfa, t.d. á vegum hins opinbera, þótt ekki hafi þeir gengið upp þann hefðbundna tröppugang stofnananna sem hv. þm. virðist telja forsendu þess að menn geti starfað í utanríkisþjónustunni t.d. (Gripið fram í.) Ég hlýddi á mál hv. þm. í dag og það var mjög auðvelt að skilja hvað hún var að fara.
Það væri vissulega freistandi, virðulegi forseti, að víkja hér að ýmsum atriðum öðrum í skýrslu utanrrh. Ég mun ekki gera það í ljósi þess að ég ætla ekki að tala mjög lengi.
Á bls. 60 er fjallað um hvalamálið í þessari skýrslu ráðherra. Ég vil bara lýsa þeirri skoðun minni hér skýrt og skorinort að við eigum að ljúka við þá vísindaáætlun sem nú er í gangi, hiklaust. Og þar eiga engar vöflur að vera á okkur. Við höfum ekki kynnt okkar málstað svo sem vera ber. Ég hef oft vakið athygli á því áður hér á hinu háa Alþingi. Þar þurfum við að gera betur. Þar hefur einstaklingur sýnt athyglisvert framtak, Magnús Guðmundsson kvikmyndagerðarmaður, sem vakið hefur mikla athygli. Hið opinbera þarf þar að fylgja á eftir miklu betur en gert hefur verið.
Hv. þm. Friðjón Þórðarson, sem talaði hér áðan, vék að störfum Vestnorræna þingmannasambandsins. Ég átti þar sæti um nokkurt skeið en verð satt að segja að lýsa nokkrum vonbrigðum með það starf sem þar átti sér stað, ekki vegna þess að þar hafi ekki verið vel og skynsamlega unnið og samþykktar hinar ágætustu tillögur, heldur vegna þess að við sátum þarna á fundum, samþykktum tillögur um ýmisleg efni, sendum þær síðan stjórnvöldum í þessum þremur löndum, Færeyjum, Grænlandi og Íslandi, og síðan var nákvæmlega ekkert með þær gert. Þarna vantar einhvern hnykk til þess að a.m.k. sé höfð uppi viðleitni til þess að framkvæma þau mál sem þessar samþykktir fjalla um vegna þess að þau eru ekki öll flókin eða viðamikil eða kosta mikið fé í framkvæmd. Sumt af þessu er tiltölulega einföld mál og satt að segja verður ekki annað séð en að það sé kannski fyrst og fremst áhugaleysi, viljaskortur, eða það að þetta lendir með einhverjum hætti uppi á milli í embættismannakerfinu og lítið verður úr framkvæmdum.
Hér liggja einnig fyrir til umræðu, virðulegi forseti, tvær skýrslur aðrar, þ.e. skýrsla Norðurlandaráðsdeildar um norræna samstarfið og skýrsla samstarfsráðherra Jóns Sigurðssonar um Norðurlandasamstarfið innan ráðherranefndanna.
Nú mætti um þetta langt mál hafa og margt segja en norrænt samstarf verður jafnan fyrir nokkurri gagnrýni og henni harðastri frá þeim sem þekkja það minnst. Ég lýsi hiklaust þeirri skoðun að þetta samstarf hefur reynst okkur gagnlegt og gott og í rauninni verjum við til þess sáralitlu fjármagni, of litlu vegna þess að við fáum það margfalt til baka. Þetta norræna samstarf er nú að ýmsu leyti á tímamótum. Það er á tímamótum vegna þess að í Evrópu er að gerast ákaflega ör þróun sem ég þarf ekki að fara mörgum orðum um hér, svo mikið sem hún hefur verið rædd hér á ýmsum stigum, og auðvitað verðum við sem störfum á vettvangi Norðurlandaráðs og í hinu norræna samstarfi að fylgjast þar með, fylgjast vel með því sem þar er að gerast og hafa áhrif á þá þróun sem á sér stað í Evrópu og beina henni inn á þær brautir sem við viljum fara eftir því sem við höfum vald og krafta til og aðlaga okkur að þeim breytingum sem eru að eiga sér stað.
Umræður um alþjóðamál setja í æ ríkara mæli mark sitt á starfið í Norðurlandaráði og hefur sú breyting gerst býsna fljótt og á mjög skömmum tíma í rauninni. Sem dæmi um mál sem hafa beinlínis svipt okkur í norræna samstarfinu inn í alþjóðlegt samstarf eru umhverfismálin þar sem vandamálin virða auðvitað engin landamæri og þar hefur Norðurlandaráð að ýmsu leyti tekið athyglisvert frumkvæði sem fylgja þarf eftir af fullri festu. Íslendingar hafa þar unnið vel og skipulega, leyfi ég mér að segja, og það hefur borið árangur og bar sérstaklega árangur á aukaþinginu um umhverfismál sem haldið var á Helsingjaeyri sl. haust. Og það er öruggt mál að umhverfismálin mun bera hátt í umræðum á þingi Norðurlandaráðs sem fram fer í Reykjavík árið 1990.
Nefnd sem skipuð hefur verið innan Norðurlandaráðs, sem forsætisnefndin skipaði, nefnd um alþjóðleg samskipti sem stundum er kennd við formann sinn Karin Söder, hefur skilað áliti um það hvernig fjalla skuli um alþjóðleg samskipti á vettvangi Norðurlandaráðs. Um álit nefndarinnar er ekki fullkomin samstaða innan þingflokkanna í Norðurlandaráði eða flokkahópanna eins og stundum er sagt. Þar hefur komið í ljós nokkur ágreiningur um það hvort skipa skuli sérstaka nefnd til að fjalla um þessa hluti. Því máli hefur nú verið vísað til laganefndar Norðurlandaráðs og enn fremur fjalla þingflokkarnir í ráðinu um þessi efni.
Þar sem sá er þetta mælir gegnir nú formennsku í laganefndinni kemur þetta mál óneitanlega til kasta hans og hér er um mál að ræða sem erfitt kann að
reynast að leysa þannig að í fullri sátt sé því ágreiningur er um ýmis atriði sem væntanlega leysist þó og vonandi í haust.
Laganefnd Norðurlandaráðs fjallar um mál sem varða samræmingu löggjafar, hún fjallar um neytendamál, jafnréttismál og málefni flóttamanna. Til meðferðar í nefndinni er nú tillaga um jafnréttismál sem ég hef flutt, jafnréttismál á alþjóðavettvangi, um það að Norðurlandaráð beiti sér fyrir aukinni samvinnu Norðurlandanna í þeim alþjóðastofnunum sem fjalla um jafnréttismál og jafnframt fyrir því að styrkja þær stofnanir sem fyrir eru á þessu sviði eins og alþjóðakvennanefndina í Vínarborg og jafnvel stefna að því að á vegum Sameinuðu þjóðanna starfi sérstök stofnun sem fjalli eingöngu um jafnréttismál í framhaldi af þeim ráðstefnum sem Sameinuðu þjóðirnar hafa beitt sér fyrir í þeim efnum.
Þá er um það fjallað líka í nefndinni hvernig megi fylgja eftir því ágæta starfi sem unnið var á Nordisk Forum þar sem komu 10.000 norrænar konur sl. sumar í Osló. Þá vildi ég einnig geta um tillögu, sem samþykkt var á síðasta þingi Norðurlandaráðs og verið hafði til meðferðar í laganefndinni, um bann við útflutningi á hættulegum varningi frá Norðurlöndunum. Það er nefnilega svo að eitthvað hefur verið um það að ýmiss konar varningur, sem ekki er leyfður til sölu eða neyslu á heimamörkuðum hér, hefur verið fluttur út til annarra landa og nú hefur Norðurlandaráðið tekið afstöðu gegn slíku.
Annað mál sem er til meðferðar nú innan Norðurlandaráðs og ágreiningur er um er það hvaða reglum skal fylgja í sambandi við kosningar í trúnaðarstörf í ráðinu. Vinstri sósíalistar eða kommúnistar eiga nú ekki lengur fulltrúa í forsætisnefnd ráðsins og gætir auðvitað lítillar ánægju í þeirra hópi með þá niðurstöðu. Þrátt fyrir miklar samningaumleitanir á síðasta þingi tókst ekki að ná samkomulagi um þetta mál. Forsætisnefndinni tókst ekki að leysa það og hefur því nú verið vísað til laganefndar sem fengið hefur það hlutskipti að gera tillögur að nýjum kosningareglum í Norðurlandaráði og hvernig endurspegla megi valdahlutföllin í ráðinu með sem raunhæfustum hætti í forsætisnefndinni og ýmislegt fleira í því sambandi og á nefndin að hafa
skilað áliti um það fyrir 1. okt. í haust.
Ég hef þá drepið á nokkur þeirra mála sem eru efst á baugi á vettvangi laganefndar í Norðurlandaráði.
Mig langar aðeins að lokum, virðulegi forseti, að víkja nokkrum orðum að menningarmálaþættinum, en það samstarf hefur lengi verið okkur mikilvægt og kannski mikilvægast.
Í mörg ár hefur sjónvarpssamvinna, einkum sjónvarpssamvinna um gervihnött, verið til umræðu í Norðurlandaráði. Það mál er nú nánast að engu orðið vegna þess að samstaða tókst ekki. Hins vegar eiga Norðurlandabúar margir hverjir kost á því að horfa á þetta 12--20 sjónvarpsrásir frá öðrum löndum, en enga norræna. Að vísu er það svo að búið er að skjóta Tele-x-hnettinum á loft sem átti að þjóna sem sjónvarpshnöttur fyrir austurhluta Norðurlanda, en þar er ekkert sjónvarp, og hnötturinn svífur á sinni braut eða á sínum stað öllu heldur því að hann er kyrr yfir miðbaugi, verkefnalítill, en notast þó sem fjarskiptahnöttur. Þetta er ein sorgarsaga. Ég held að samt sé ekki of seint að snúa vörn í sókn í þessu máli vegna þess að það eru auðvitað mörg tækifæri til þess að leigja sjónvarpsrásir í ýmsum gervihnöttum og koma á fót norrænni sjónvarpsrás þar sem væru kannski fyrst og fremst fréttir, íþróttir og kvikmyndir. Ég held að þetta væri tiltölulega einfalt, gæti orðið vinsælt efni og gæti fært Norðurlöndin nær hvert öðru. Ég held að þetta þurfi ekki að vera svo ákaflega dýrt og ég held að þetta sé raunhæf hugmynd.
Annað atriði í þessu sambandi vil ég nefna og það er að fagna þeirri ákvörðun samstarfsráðherranna, sem tekin var í tengslum við þingið í Stokkhólmi, að stofnsetja norrænan sjónvarps- og kvikmyndasjóð með 30 millj. kr. framlagi. Þar á auðvitað eftir að koma til enn meira fjármagn þannig að sjóðurinn geti gefið það af sér að hann verði einhvers megnugur í gerð efnis fyrir kvikmyndahús og sjónvarp. Þar fullyrði ég að er gott mál á ferð sem við eigum áreiðanlega og íslensk kvikmyndagerð eftir að njóta góðs af á komandi árum.
Eitt atriði enn vildi ég nefna og það er hið svokallaða Nordjob eða vinnuskiptaáætlun fyrir ungt fólk á Norðurlöndunum, framtak eða hugmynd sem upphaflega kom frá svokallaðri Gyllenhammar-nefnd. Þetta hefur tekist ákaflega vel en hins vegar vil ég nefna það hér og leggja á það áherslu að stjórnvöld þurfa að styðja betur við bakið á þessu framtaki og láta nokkurt fé af hendi rakna þannig að við getum rækt okkar skyldur í þeim efnum, Íslendingar, og ungt fólk héðan eigi þess kost að fara til sumarstarfa á Norðurlöndum og norrænir unglingar að koma hingað til starfa. Það eru góðir sumarskólar sem borga sig vel.
Þá vildi ég að lokum, virðulegur forseti, aðeins nefna það að ég hef nokkrum sinnum vakið máls á því að ég tel nú brýnt að við Íslendingar njótum raunverulegs jafnréttis í Norðurlandaráði þannig að við getum, ef við viljum, talað íslensku á fundum og þingum ráðsins og það verði síðan þýtt jafnóðum
eins og gert er með finnsku. Það er auðvitað alveg staðreynd sem er augljós að við höfum fæst okkar
hinar norrænu tungur svo á takteinum að við getum stokkið blaðalaust upp í ræðustól til andsvara þegar á þarf að halda, þó að við gerum það, og þá vill það nú stundum verða svo að maður segir ekki það sem maður vildi sagt hafa, heldur segir maður það sem maður getur sagt. Mér er alveg ljóst að innan íslensku Norðurlandaráðsdeildarinnar er ekki endilega einhugur um þetta mál. En jafnrétti er í rauninni ekki nema milli þeirra þriggja þjóða sem tala hin skyldu mál og kannski Finna sem geta talað sitt móðurmál ef þeir vilja og það er þýtt jafnóðum, bæði á nefndarfundum og þingunum, en Færeyingar, Grænlendingar og Íslendingar, og raunar Samar líka, þurfa að tala önnur mál en sitt eigið og það háir mönnum hvort sem menn viðurkenna það fúslega eða ekki, því að, eins og ágætur maður sagði við þann sem þetta mælir, helmingurinn af andlegu orkunni fer stundum í það bara að þýða. Við stöndum því ekki jafnfætis og við sitjum ekki við sama borð og ég mun fylgja þessu máli eftir innan íslensku nefndarinnar. Reynist það ekki hafa meiri hluta þar gerist auðvitað ekkert frekar í málinu, en ég hygg að þetta sé nú samt mál sem fyrr eða síðar muni ná fram að ganga.