Geir H. Haarde:
Virðulegi forseti. Það er óneitanlega ærið sérkennilegt í umræðum um skýrslu utanrrh. tiltekinnar ríkisstjórnar að verulegur fundartími skuli fara í að hlýða á ræður meintra stuðningsmanna ríkisstjórnarinnar um þessa skýrslu og um gjörðir og athafnir utanrrh. Eitt af því sem hæstv. núv. ríkisstjórn hefur kallað yfir sig er að hafa Alþb. með sér í ríkisstjórn en ég skal koma nánar að því eilítið síðar.
Mætti ég ekki minna forseta á það að hv. 8. þm. Reykv. Eyjólfur Konráð Jónsson bar fram þá ósk fyrir kvöldmat í dag að kallað yrði á hæstv. fjmrh. sem hefur nú látið töluvert til sín taka á erlendum vettvangi í eigin nafni og Íslands eftir atvikum. Hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson bað um að fá fjmrh. á fundinn til þess að geta lagt fyrir hann spurningar um utanríkismál. Ég bara rétt minni á þetta, virðulegi forseti, því að nú eru sennilega liðnir einir sex eða sjö tímar síðan þessi ósk var fram borin.
Ég vil byrja umfjöllun mína um ræðu og skýrslu utanrrh. með að fagna þeirri almennu greiningu á alþjóðamálum sem þar kemur fram. Hún er í höfuðatriðum í samræmi við þá afstöðu og greiningu á þessum málum sem flestir stuðningsmenn Sjálfstfl., Alþfl. og Framsfl. hafa fylgt í mjög langan tíma, að breyttu breytanda að vísu. Ég nefni lítið dæmi úr þessari skýrslu þessu til áréttingar, en á bls. 8 í skýrslunni segir m.a., með leyfi forseta: ,,Allt frá stríðslokum hefur ójafnvægi á sviði hefðbundinna herja í Evrópu Sovétmönnum í vil verið helsta undirrót erfiðleika í samskiptum austurs og vesturs.`` Ég ætla ekki að lesa lengra hér en það var þessi tilvitnun fyrst og fremst en síðan er önnur á bls. 52 um markmið Íslendinga í öryggis- og varnarmálum sem er auðvitað full ástæða til að taka undir. Þar segir að hornsteinn stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum sé þátttaka okkar í varnarsamstarfi vestrænna þjóða. Tilgangur þess samstarfs hafi ætíð verið að tryggja frið í okkar heimshluta og innan ramma varnarsamningsins við Bandaríkin frá 1951 höfum við lagt fram okkar skerf til varnarsamstarfs ríkja Atlantshafsbandalagsins.
Það eru auðvitað grundvallaratriði sem þessi sem ástæða er til þess að undirstrika og sem full samstaða er um með utanrrh. og til að mynda okkur sjálfstæðismönnum, þó svo að raddir aftan úr forneskju heyrist nú því miður enn á hv. Alþingi þegar komið er að þessum málum. Atlantshafsbandalagið hefur starfað í 40 ár. Það hefur uppfyllt þær kröfur sem til þess voru gerðar og þær vonir sem við það voru bundnar hafa ræst. Fyrir tilverknað þessa bandalags og þess frjálsa samstarfs lýðfrjálsra ríkja sem þar er að finna er skriður kominn á raunverulegar viðræður um afvopnun og á sínum tíma tókst að halda aftur af þeim öflum í álfunni sem vildu leggja undir sig og brjóta á bak aftur frjáls lýðræðissamfélög í Evrópu.
Um þetta er ekkert deilt í dag nema á fundum einhverra sérvitringa sem koma saman til þess að halda upp á gamlar endurminningar um þessi mál. Það
er engu að síður ástæða til þess að árétta þetta, m.a. vegna þeirrar 100 mínútna ræðu sem hv. þm. Hjörleifur Guttormsson, stuðningsmaður þessarar ríkisstjórnar, flutti um þetta efni. Það hlýtur að vera erfitt að vera alþýðubandalagsmaður og stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar og hæstv. núv. utanrrh. og þurfa að skrifa upp á þau ummæli sem standa í skýrslu utanrrh. á bls. 10, með leyfi forseta:
,,Fyrirrennarar mínir í starfi hafa á undanförnum árum leitast við að auka hlutdeild Íslendinga við þróun áætlana varðandi varnir landsins svo og við starfrækslu ratsjár- og fjarskiptastöðva. Samfara þessu hafa Íslendingar leitast við að gerast virkari aðilar að Atlantshafsbandalaginu. Haldið verður áfram á sömu braut í tíð núv. ríkisstjórnar.`` Ég fagna þessu. Ég get ekki annað en skilið að það sé erfitt að vera alþýðubandalagsmaður með sjónarmið hv. 2. þm. Austurl. og þurfa að bera ábyrgð á þessum skrifum og þessari stefnumörkun sem í þeim felst.
Það fer þó ekki hjá því að hv. 2. þm. Austurl. og hans skoðanabræður hafi einhver áhrif á störf utanrrh. Það kom fram varðandi ákvörðun ráðherra um æfingar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli og þess varaliðs sem hingað á að koma komi til ófriðar, að ráðherrann hefur vikið frá fyrri áformum að því er virðist eingöngu til þess að koma til móts við Alþb., nema hann sé þá líka að koma til móts við forsrh. sinn og koma honum út úr þeirri klípu sem ummæli hans um þetta efni höfðu óneitanlega komið honum í. Það er nú búið að fjalla um þetta fyrr í umræðunum. Ég skal ekki gera þessar æfingar að frekara umtalsefni en litlu verður Vöggur eflaust feginn og Alþb. getur þá tuggið á því beini sínu sem utanrrh. hefur í það kastað að varaliðinu sem kemur til Íslands í júní hafi verið fækkað um hvorki meira né minna en 200 manns.
Hins vegar mun væntanlega fljótlega á það reyna hvort áhrifamáttur Alþb. nær lengra en til þess að takmarka þátttökuna í þessum æfingum varnarliðsins. Það mun á það reyna hvort neitunarvald Alþb. í ríkisstjórninni nær til að mynda til þess að koma í veg fyrir þá forkönnun á alþjóðlegum varaflugvelli í samstarfi við Mannvirkjasjóð Atlantshafsbandalagsins sem ákvörðun þarf að taka um innan tíðar. Ég minni á að við nokkrir þingmenn höfðum flutt þáltill. um að
Alþingi taki af skarið í þessu máli og hreinlega feli utanrrh. að heimila þessa forkönnun til að það leiki enginn vafi á því hver vilji Alþingis er í þessum málum hvað svo sem einstakir þingmenn Alþb. láta frá sér fara um þetta efni. Ég treysti því að utanrrh. láti ekki Alþb. kúga sig í því máli þó svo hann hafi gefið eftir að hluta til varðandi æfingarnar fyrirhuguðu í júní og, eins og ég sagði, þá eflaust líka til þess að bjarga forsrh. sínum úr klípu.
Virðulegi forseti, þegar verið var að fjalla um skýrslu þáv. utanrrh. í fyrra gerði ég nokkuð að umtalsefni í ræðu minni með hvaða hætti atkvæði Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum hafði verið varið í nokkrum málum sem þá komu til umfjöllunar. Ég rakti það í mjög ítarlegu máli hvernig afstaða hafði
verið tekin til einstakra tillagna hjá Sameinuðu þjóðunum og færði rök fyrir því að sú stefnubreyting sem virtist vera orðin hjá íslensku ríkisstjórninni frá því sem var í tíð ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar væri óábyrg. Því var í engu svarað af hálfu þáv. utanrrh. nema með einhverjum almennum orðum þegar farið var rækilega yfir hverja einustu tillögu sem ég gerði athugasemdir við. Hins vegar hefur hæstv. núv. utanrrh. svarað þessu fyrir sitt leyti í verulegum mæli með því að breyta afstöðu Íslands aftur í fyrra horf, a.m.k. að því er varðar þær tillögur þar sem afstöðubreytingin var einna fáránlegust. Ég nefni sem dæmi tillögu, sem ég lagði reyndar fram fyrirspurn um í þinginu í fyrra, frá Úkraínu og fleiri ríkjum. Þó að Úkraína sé ekki sjálfstætt ríki á hún aðild að Sameinuðu þjóðunum af sögulegum ástæðum. Þar urðu hrapalleg mistök að mínum dómi í fyrra sem utanrrh. hefur nú leiðrétt og ég fagna því.
Sama er að segja um nokkur önnur mál eftir því sem ég fæ séð í fljótu bragði en þó ekki öll því að í a.m.k. tveimur eða þremur tilvikum hefur utanrrh. haldið sig við þá afstöðu sem forveri hans tók jafnvel þó að samstarfsríki okkar innan Atlantshafsbandalagsins hafi tekið aðra afstöðu. Ég nefni hér til að mynda tillögu nr. 43/78e, stöðvun kjarnorkuvopnakapphlaupsins og kjarnorkuafvopnun sem flutt er af Argentínu, Bangladesh og fleiri ríkjum. Þar vorum við á móti í hittiðfyrra. Því var breytt í fyrra yfir í hjásetu og þannig hefur það verið í haust þó svo að Noregur og flest NATO-ríki hafi verið á móti.
Nú er að vísu erfitt að fjalla um þessi mál löngu eftir að þessar atkvæðagreiðslur eru um garð gengnar og kannski ekki hægt um vik að vera með gagnrýni eftir á þegar menn hafa ekki aðgang að upplýsingum um leið og málin eru afgreidd. Það er þó auðvitað þannig um flest þau mál sem snerta afvopnun --- og það veit ég að ráðherrann er mér sammála um --- að þá eiga lýðræðisríkin innan Atlantshafsbandalagsins auðvitað samleið.
Hér er önnur tillaga sem Tékkóslóvakía hefur flutt, tillaga nr. 43/78c, um alþjóðlega samvinnu um afvopnun. Þar kemur fram að ráðherrann hefur ekki látið sér nægja að sitja hjá heldur hefur hann stutt þessa tillögu þó svo að öll NATO-ríki önnur en Noregur og Danmörk hafi annaðhvort setið hjá eða verið á móti. Ísland var til skamms tíma á móti þessari ályktun, enda tel ég að um hana eigi við sömu röksemdir og um tillögu Úkraínu og fleiri aðila sem ég gat um áðan og hef rætt nokkrum sinnum á Alþingi. Ég furða mig því hvernig hér hefur verið staðið að málum og að þetta skuli hvergi hafa komið fram fyrr en í þessari skýrslu um þátttöku Íslands á síðasta þingi Sameinuðu þjóðanna.
Mér finnst engu að síður mikilvægast að ráðherrann skuli hafa tekið undir gagnrýni mína frá því í fyrra einfaldlega með því að breyta atkvæði Íslands aftur þegjandi og hljóðalaust yfir í það sem það var, þannig að það fari ekkert á milli mála að í fyrra hafi þarna verið um ákveðin mistök að ræða.
Ég hafði hugsað mér að víkja örlítið að utanríkisviðskiptum og alþjóðlegum viðskiptamálum. Hér segir í skýrslu ráðherra með leyfi forseta: ,,Á alþjóðlegum vettvangi munu Íslendingar taka þátt í samstarfi á ýmsum sviðum með það að markmiði að stuðla að auknu frelsi í viðskiptum hvar sem því verður við komið.`` Þetta er auðvitað mjög jákvæð og eðlileg yfirlýsing og stefnumörkun af Íslands hálfu þó svo að síðar komi í ljós að við þetta eru þó alls kyns undarlegir fyrirvarar.
Má ég, með leyfi forseta, vitna hér í skýrslu utanrrh. á öðrum stað, en á bls. 48 segir: ,,Með markvissum aðgerðum til að lækka tollmúra og draga úr öðrum viðskiptahindrunum aukast viðskipti þjóða á milli öllum til hagsbóta.`` Mikið rétt, hárrétt, nákvæmlega rétt. Þetta eru almenn sannindi sem við hljótum öll að taka undir. Aukning alþjóðaviðskipta, t.d. frá því í lok síðustu heimsstyrjaldar, er eitt af því og sennilega það sem hefur mest bætt lífskjörin í heiminum. Aukin verkaskipting þjóða í milli hefur gert þjóðunum kleift að hagnýta framleiðsluþætti sína á mun hagkvæmari hátt en ella væri. Það eru augljós sannindi að engir eiga meira undir slíkri verkaskiptingu og þeirri hagkvæmni sem henni fylgir en þau ríki sem eru eins háð utanríkisviðskiptum og verslun og við Íslendiangar.
Í framhaldi af þessu, virðulegi forseti, er á bls. 13 í skýrslu ráðherra vikið að fundi leiðtoga EFTA-ríkjanna sem haldinn var í Osló fyrir skömmu. Þar er því lýst hvernig yfirlýsing fundarins hljóðar. Þar segir m.a. að EFTA-ríkin séu tilbúin að efna til könnunarviðræðna við Evrópubandalagið um alla þætti
innri markaðar bandalagsins, þ.e. óhindruð vöruviðskipti, þjónustuviðskipti, fjármagnsflutninga og flutning fólks milli landa að því marki sem unnt væri. Sömuleiðis er því lýst á bls. 45 með dramatískum hætti að Íslendingar hafi ákveðið að setja fyrirvara við alla yfirlýsingu leiðtogafundar EFTA þar til ljóst væri að fríverslun með fisk næðist fram og í yfirlýsingunni yrði tekið fram og fallist á fríverslun með sjávarafurðir innan EFTA. Hér segir, með leyfi forseta: ,,Þessum fyrirvara var haldið til streitu og á lokamínútum þessa fundar samþykktu Finnar ...`` Þar með var hindruninni rutt úr veginum og væntanlega fallið frá fyrirvaranum.
Málið er nú engu að síður það, virðulegi forseti, og það kemur aftur fram á bls. 13 að Steingrímur Hermannsson forsrh. gerir í ræðu sinni ,,ýmsa fyrirvara`` um hin atriðin þrjú, þ.e. þjónustuviðskipti, fjármagnsflutninga og flutning fólks milli landa að því marki sem unnt væri vegna einhæfs efnahagslífs og fámennis þjóðarinnar. Hins vegar væru þeir reiðubúnir til fullrar þátttöku í ýmsum öðrum málaflokkum o.s.frv. Mér er spurn, virðulegi utanrrh. Hvernig getur maður sem gerir fyrirvara við yfirlýsingu út af tilteknu atriði, fær sínu framgengt að því er varðar það atriði, síðan gert fyrirvara við alla yfirlýsinguna? Hvers konar vinnubrögð eru það? Slík vinnubrögð tíðkast ekki í samskiptum manna á meðal eða í samskiptum
einstakra hópa, hvað þá í samskiptum ríkja.
Ef maður les saman yfirlýsingu EFTA-fundarins, sem er birt sem fskj. V í skýrslunni, bls. 69 og ræðu hæstv. forsrh. á bls. 71 er ekki að sjá að verið sé að tala um sama hlutinn. Það er ekki að sjá að hæstv. forsrh. sé yfirleitt að tala um þetta plagg. Ég verð að lýsa alveg sérstakri undrun og furðu minni á því hvernig þessar yfirlýsingar hafa verið túlkaðar sem einhver sérstakur allsherjarfyrirvari Íslands við þessa mikilvægu EFTA-yfirlýsingu sem gengur nákvæmlega út á þau sömu stefnumið um frjálsa verslun og alþjóðaviðskipti og ég var að lesa upp úr skýrslu utanrrh. Ég verð að lýsa furðu minni á almennum fyrirvara af hálfu forsrh. um þessa merkilegu yfirlýsingu.
Ég get hins vegar tekið undir að haldbær rök séu fyrir því að Íslendingar vilji gá að sér að því er varðar frjáls viðskipti með fjármagn, vinnuafl og jafnvel þjónustu, þó að það sé nú langsóttara. Hvað segir þá í yfirlýsingunni sjálfri, virðulegi ráðherra? Þar segir í 11. lið: ,,Við gerum ráð fyrir því að samningaviðræður mundu leiða til samkomulags að svo miklu leyti sem það er mögulegt um óhindraðan flutning á vöru, þjónustu, fjármagni eða fólki með það að markmiði að koma á einu samræmdu evrópsku efnahagssvæði.`` Að svo miklu leyti sem það er mögulegt. Hvað heitir þetta orðalag á íslensku? Þetta er fyrirvari. Þetta er almennur fyrirvari inni í skjalinu sem allir gera, að svo miklu leyti sem það er mögulegt, að svo miklu leyti sem það hentar hverju ríki og aðstæðum á hverjum stað. ( Utanrrh.: Just.) Just, virðulegi ráðherra. Hvað á það að þýða af hálfu forsrh. Íslands og af hálfu utanrrh. að taka það upp í skýrslu sína að það sé fyrir utan þetta einhver almennur fyrirvari við öll meginatriði málsins? Hvað á það eiginlega að þýða, virðulegi ráðherra? Hvers lags misskilningur er þá hér á ferðinni?
Ef það er svo, eins og lýst er í skýrslunni, að Íslendingar hafi gert fyrirvara um að afgreiða þetta mál vegna þess að ekki tókst að fá samþykki um frjálsa verslun með sjávarafurðir, þá er það auðvitað hneisa að halda sig við fyrirvarann eftir að fallið er frá því skilyrði, eftir að það mál hefur náð fram að ganga. Og ef það er svo að menn vilja engu að síður hnykkja á sérstöðu Íslands að því er varðar frelsi í flutningum fjármagns, fólks og þjónustu á milli landa, þá á auðvitað að gera það í undirbúningsvinnunni.
Ég geri ráð fyrir því að fulltrúar Íslands við samningu þessa skjals hefðu með hægu móti getað hnykkt á þessum fyrirvara í yfirlýsingunni sjálfri sem ég var að lesa ef ástæða hefði verið talin til þess, ,,að svo miklu leyti sem það er mögulegt`` og að svo miklu leyti sem það hentar aðstæðum í hverju landi, hverju ríki. Þetta eru auðvitað eðlileg og rétt vinnubrögð að standa þannig að málinu, gera það við undirbúning málsins, en koma ekki síðan eftir á og flytja einhverja ræðu, sem manni sýnist að sé um eitthvert allt annað mál heldur en þetta skjal, vera svo uppi með einhverja fyrirvara út og suður og standa svo upp og segja: Ja, það vita allir að við erum svo
sérvitrir hér á Íslandi, eins og hæstv. forsrh. hefur látið hafa eftir sér.
Nei, það er kannski eilítil ósanngirni, virðulegur forseti, að vera að beina spjótum sínum að utanrrh. vegna þessa, því að hann hefur ekki flutt þessa ræðu sem hér er vitnað til eða hér er birt á bls. 71. Þetta er ræða forsrh. Íslands, en ekki utanrrh. Mér býður í grun að utanrrh. sjálfum finnist þetta ekki allt of þægilegt eða t.d. viðskrh., en þeir hafa báðir tjáð sig um þetta efni.
En ég tel þessi vinnubrögð afar ámælisverð og síst til þess fallin að auka traust eða hróður Íslendinga í þessu samstarfi. Það ber nú mjög vel í veiði að væntanlegur fastafulltrúi hjá EFTA skuli enn vera hér á meðal vor og heyra þessi ummæli mín, því að ég veit vel að hefði hann t.d. átt aðild að samningu þessa skjals, eða í framtíðinni þegar til þess kemur, þá hefði honum auðvitað
verið fulltreystandi til þess að koma inn í sjálfa yfirlýsinguna öllu því sem við Íslendingar vildum sagt hafa um þessi mál og þeim fyrirvörum sem við teljum nauðsynlegt að gera. En þessi vinnubrögð sem ég var að lýsa ná auðvitað engri átt að mínum dómi og rýra traust okkar og álit út á við. Ekki bara í þessum tiltölulega litla og þrönga EFTA-hópi heldur einnig í víðara samhengi.
Læt ég nú útrætt um þessi atriði en mig langar hins vegar, virðulegur forseti, án þess að ætla nú að tefja þessa umræðu mjög mikið, að víkja eilítið að afvopnunarviðræðunum í Vínarborg, sem menn hafa vikið hér að, og afstöðu Íslendinga til þess fundar og undirbúningi fyrir þann fund. Þannig er að í janúar sl. undirrituðu sendiherrar viðkomandi ríkja eða settu stafi sína við sérstaka dagskrá fyrir þennan fund. Það voru miklar og strangar samningaviðræður sem leiddu að lokum til þess að um dagskrána náðist samkomulag. Og eins og ráðherrann sagði réttilega í sinni ræðu í gær og segir réttilega í sinni skýrslu er ekki gert ráð fyrir því að í þessum viðræðum um fækkun hefðbundinna vopna á meginlandi Evrópu verði fjallað um kjarnorkuvopn né heldur sjóheri eða efnavopn.
Mönnum verður tíðrætt um þessar mundir um nauðsyn þess að fækka kjarnorkuvopnum á höfunum og minnka sjóherina, draga úr vopnabúnaði á höfunum. Það er út af fyrir sig auðvitað mjög verðugt umræðuefni og keppikefli. Auðvitað er það svo að okkur Íslendingum ber að huga vel að umhverfismálum og mengunarvörnum, en okkur ber jafnframt að gera greinarmun á umhverfismálum og öryggismálum. Það hygg ég að sé jafnframt ljóst og röksemdir fyrir umhverfisvörnum og mengunarvörnum verður jafnframt að meta í ljósi öryggis- og varnarhagsmuna.
Því geri ég þetta að umtalsefni hér, virðulegur forseti, að það vakti undrun ýmissa að í nafni utanrrh. Íslands þegar þessi ráðstefna hófst var flutt ræða þar sem í voru ummæli sem komu mönnum nokkuð á óvart að þessu leyti til, vegna þess að hér er um að ræða ráðstefnu þar sem dagskráin er alveg ákveðin og umsamin fyrir fram --- og ég hef hana hér í
höndunum. Það kom mönnum nokkuð á óvart að í nafni íslenska utanrrh. skyldi fitjað upp á umræðuefni sem segir skýrt og skorinort í dagskránni að sé ekki til umræðu.
Spurningin er þá sú hvers vegna utanrrh. hafi látið sendiherra sinn í þessum viðræðum gera tillögu um umræður um afvopnun á höfunum þótt sá sami sendiherra hafi u.þ.b. mánuði áður undirritað samkomulagið um dagskrána, þar sem skýrt er tekið fram að þetta mál sé ekki til umræðu á fundinum.
Í öðru lagi vaknar sú spurning hvort utanrrh. hafi greint sínum samstarfsmönnum innan Atlantshafsbandalagsins, kollegum sínum í NATO, frá þessari tillögu sinni áður en hún var nefnd í þessari ræðu, eins og áskilið er í samþykktum bandalagsins um pólitískt samstarf og samráð á hinu pólitíska sviði. Nú hafði t.d. utanrrh. tækifæri til þess á venjubundnum fundi utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins í Brussel í desember að gera grein fyrir þeim hugmyndum og tillögum sem hann hefði hér að lútandi. Og ég vil fá svar við því hvort hann kynnti þessa tillögu t.d. á þeim vettvangi þegar hann var þar á ferð eða við önnur tækifæri sem hann hefur haft til þess að hitta sína starfsbræður innan Atlantshafsbandalagsins.
Nú svo vaknar auðvitað líka sú spurning hver hafi orðið viðbrögðin við þessari tillögu, bæði frá bandalagsríkjum okkar og öðrum sem taka þátt í ráðstefnunni, þ.e. Varsjárbandalagsríkjunum, hver hafi orðið viðbrögðin formleg eða óformleg frá öðrum aðilum. Ég er ekki, virðulegi forseti, mikið í sambandi við erlenda diplómata en ég hef engu að síður verið spurður út í þetta mál. ( Utanrrh.: Hver spurði?) Það var sendimaður NATO-ríkis hér á Íslandi. Okkur náskyldur. Og ég vek athygli á því að í Morgunblaðinu 21. mars ritar Hreinn Loftsson lögfræðingur grein þar sem þetta er rakið og átalið.
Nú vil ég taka það skýrt fram að ég er ekki né væntanlega Hreinn Loftsson, sem ég vitna í, er auðvitað ekki andvígur því að um þessi mál verði talað og samið þegar þar að kemur. Athugasemdir okkar lúta hins vegar að málsmeðferðinni. Við erum í samstarfi frjálsra bandalagsríkja sem hafa komið sér saman um ákveðið pólitískt samráð. Við heyrum það í fréttunum í dag m.a. hvernig Þjóðverjar, þegar þeir eru ósammála t.d. Bandaríkjamönnum, eiga við þá viðræður áður en mál sem ágreiningur er um eru kynnt annars staðar sem formleg tillaga. Í því tilfelli eru þýsku stjórnvöldin andvíg því að skammdræg kjarnorkuvopn í Evrópu verði endurnýjuð, en Bandaríkjamenn og hæstv. utanrrh. Íslands, að því er kemur fram í þessari skýrslu, eru þeirrar skoðunar að rétt sé að endurnýja þessi vopn, eða í það minnsta telur utanrrh. Íslands að það komi vel til greina --- og ég er honum sammála um það, en það er náttúrlega ekki það sem skiptir máli hér. Þessi spurning er um vinnubrögð, hún er um málsmeðferð, hún er um að standa þannig að málum innan bandalagsins að Ísland komi ekki bandalagsríkjum sínum að óvörum með tillöguflutningi sem skapar óvissu, vekur tortryggni og
spurningar. Þess vegna spurði ég ráðherrann að því hvort hann hefði notfært sér hið pólitíska samráð innan bandalagsins til þess að kynna þetta mál.
Ég hygg að ráðherrann sé mér sammála um það að hið pólitíska samráð innan
bandalagsins sé kjörinn vettvangur og réttur vettvangur til skoðanaskipta um þetta efni og auðvitað er það á þeim vettvangi sem við Íslendingar eigum að beita okkur í þessu máli. Það er auðvitað þar sem á fyrst að telja Atlantshafsbandalagsríkin á okkar band og síðan á þetta bandalag að koma sameinað til viðræðna við gagnaðila um fækkun vopna á höfunum. En við skulum nú engu að síður gá að einu, ekki síst vegna frammíkalls hv. 2. þm. Austurl., að hvað sem líður nú frómum óskum hans og okkar hinna hér á hv. Alþingi þá verða það engar slíkar óskir sem munu ráða úrslitum um það hvort kjarnorkuvopnum fækkar hér í höfunum í kringum Ísland. Það er því miður ekki þannig. Og þessu máli verður ekkert komið áleiðis nema með samkomulagi þeirra ríkja sem eiga þessi vopn. Það er kjarni málsins. Einhver tillaga í Osló eða Moskvu um einhverja alþjóðlega ráðstefnu hér á Íslandi um þessi efni er auðvitað út í bláinn vegna þess að vopnum fækkar ekki nema þau ríki sem eiga þau og stjórna þeim komi sér saman um að fækka þeim.
Þá kem ég að því, eins og réttilega er vikið að í skýrslu utanrrh., að í Genf eiga sér nú stað svokallaðar START-viðræður þar sem stórveldin eru að ná samkomulagi um hvorki meira né minna en 50% niðurskurð á langdrægum kjarnavopnum. Það hefur nú einhvern tímann þótt muna um minna. Það á að vera okkar krafa gagnvart okkar bandalagsríki, Bandaríkjunum, að inni í þessum 50% niðurskurði sé veruleg fækkun kjarnavopna á hafsvæðinu hér í kringum Ísland. Þá kröfu eigum við að gera gagnvart okkar bandalagsríki, að þeir beiti sér fyrir því að sú fækkun geti orðið. Þar er verið að tala um þessi mál í alvöru. Og þar er reyndar, að því er manni skilst, mjög langt komið með að ná samkomulagi um mjög mikilvægan texta í þessu efni.
Ég vek athygli á þessu og undirstrika það sem fram kemur í skýrslu ráðherrans, einmitt um mikilvægi þessara viðræðna. Það á að vera okkar krafa að START-viðræðurnar leiði til raunhæfs niðurskurðar á langdrægum kjarnavopnum, ekki bara á landi eða í flugvélum heldur sömuleiðis í kafbátum hér á svæðinu í kringum Ísland.
En að gera því skóna að í þessum efnum sé það eina sem gildir að halda nógu fjölmennar alþjóðlegar ráðstefnur ríkja, sem ekki ráða yfir þessum vopnum, það er bara ósköp einfaldlega misskilningur að mínum dómi.
Ég skal ekki orðlengja frekar um þetta en ég tel að sú ræða sem flutt var í nafni utanrrh. og þetta mál sem ég hef verið að fjalla um sé afar ógætilegt. Ég ætla ekki að fara sterkari orðum um það en að segja að þessi málsmeðferð og þessi vinnubrögð sem ég hef gagnrýnt séu afar ógætileg gagnvart því samstarfi sem við erum aðilar að en ekki síður og auðvitað enn
fremur gagnvart þeim gagnaðilum sem þarna er verið að semja við.
Ég treysti því að við utanrrh. séum innst inni á sama máli um þessi efni þó svo að þarna greini á um málsmeðferð. En það er mjög mikilvægt að rækta það samstarf og það samráð sem fyrir hendi er innan Atlantshafsbandalagsins í þessum efnum eins og aðrar þjóðir gera sem standa að þessu samstarfi með okkur.
Ég hef ekki hugsað mér að hafa þetta mikið lengra, virðulegi forseti. Það er margt forvitnilegt í skýrslu utanrrh., þó svo að ræða hv. 2. þm. Austurl. væri að sínu leytinu miklu fróðlegri því að hún lýsti svo ótrúlega forneskjulegum viðhorfum á okkar dögum að mér finnst. Ég skal ekki fara frekar út í það. En ég vil leyfa mér að andmæla því sem hv. 2. þm. Austurl. sagði hér um varnarmálaskrifstofu utanrrn. og starfsmenn hennar. Ég tel að það fólk sem þar starfar og hefur gert á undanförnum árum hafi rækt sitt starf afar vel og það sé fullkomlega tilhæfulaust að vera hér á Alþingi sí og æ með einhverjar beinar eða óbeinar árásir á þá starfsemi sem þar fer fram. En það kom fram bæði í ræðu hv. 2. þm. Austurl. og t.d. í ræðu hv. 1. þm. Norðurl. v. hér í umræðum á Alþingi fyrir nokkru síðan.
Ég skal ekki hafa þetta mikið lengra. Ég bíð eftir því með nokkurri athygli að sjá hinar nýju starfs- og skipulagsreglur sem utanrrh. hefur kynnt varðandi utanrrn. Hann hefur að því er fréttir herma t.d. ákveðið að sendiherrar skuli ekki gegna störfum lengur en til 65 ára aldurs á erlendri grund. Og án þess að ég sé að gagnrýna það á einn eða neinn hátt þá er það undarleg tilviljun að það skuli vera eitt hans síðasta embættisverk áður en þessi ákvörðun er tekin að skipa í embætti sendiherra sem er að verða 66 ára. En ég veit að sá sendiherra er reyndar í fullu fjöri enn og mun eflaust gegna --- og örugglega gegna sínum skyldum og störfum af alúð og samviskusemi þrátt fyrir þennan aldur. Það vekur því þá spurningu hvort þessi nýja regla hjá utanrrh. sé hugsuð til hlítar.