Utanríkismál
Þriðjudaginn 25. apríl 1989

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir):
    Hv. 8. þm. Reykv. hefur kvatt sér hljóðs um þingsköp en áður en hann tekur til máls vill forseti taka fram að það hafa verið gerðar ítrekaðar tilraunir til að finna hæstv. fjmrh. Það hefur því miður ekki tekist. Ég get upplýst að hann mun vera á fundi einhvers staðar í Reykjavík ef hv. þm. er einhvers virði að vita það.