Utanríkismál
Þriðjudaginn 25. apríl 1989

     Forseti (Valgerður Sverrisdóttir):
    Forseti vill taka fram að nýlega var haft samband við heimili hæstv. fjmrh. og þar liggja fyrir honum skilaboð um að hafa samband við Alþingi þegar hann kemur heim og þar sem nú er miðnætti þá held ég að það hljóti nú að styttast í það að hæstv. fjmrh. skili sér heim. Og jafnvel gæti svo farið að hann birtist hér áður en umræðunni lýkur þar sem enn eru nokkrir á mælendaskrá þannig að það er ljóst að umræðum mun ekki ljúka alveg strax.