Guðmundur H. Garðarsson:
Virðulegi forseti. Ég skal ekki flytja hér of langa ræðu þar sem orðið er áliðið kvölds, en ég vildi gera grein fyrir störfum þeirrar nefndar sem tekur þátt í þingmannasambandi NATO eða Atlantshafsbandalagsins. En áður en ég geri það vildi ég víkja örfáum orðum að því sem gerðist hér fyrr í umræðunni í kvöld. Það var þegar hv. þm. Eiður Guðnason ræddi um hv. þm. Hjörleif Guttormsson.
Ég verð að segja eins og aðrir þingmenn hafa sagt hér fyrr í kvöld eftir þessa ræðu hv. þm. Eiðs Guðnasonar að það var, ég vildi jafnvel segja hálfskelfilegt að hlusta á það hvernig þessir stjórnarþingmenn tala hver við annan. Það er skelfilegt að verða vitni að því að hér komi hver stjórnarþingmaðurinn á fætur öðrum og tali með þeim hætti sem þeir gera í þessum málum, sem eru varnar- og öryggismál sérstaklega, sem og í öðrum málum hér á þessu háa þingi.
Það er furðulegt raunverulega að þetta stjórnarsamstarf skuli enn vera við lýði. Þegar maður hlýðir á þessa þingmenn, þá hlýtur maður að spyrja sjálfan sig að því: Hvernig geta þessir menn starfað að jafnalvarlegum málum og varnar- og öryggismálum með þeim hætti að það sé traustvekjandi? Maður hlýtur að efast um það að hæstv. utanrrh., sem sér nú ekki sóma sinn í því að sitja hér inni, (Gripið fram í.) já, ég tek eftir því hæstv. ráðherra. Það er ekki traustvekjandi að hlusta á það að aðalstuðningsmenn hæstv. utanrrh. skuli tala eins og þeir gera í varnar- og öryggismálum og utanríkismálum almennt. Hér koma málsmetandi þingmenn í Alþb. og tala þvert gegn þeirri stefnu sem hæstv. utanrrh. boðar bæði í sínu plaggi um utanríkismál, sem hefur verið lagt hér fram, skýrsla Jóns Baldvins Hannibalssonar utanrrh. til Alþingis, sem og gegn því sem hæstv. ráðherra segir í sínum ræðum hér. Það hlýtur að vera lágmarkskrafa bæði okkar hv. þm. sem og Íslendinga almennt að þeir fái að vita hvar þeir raunverulega standa í þessum málum. Hver er raunveruleg stefna þessarar ríkisstjórnar í utanríkismálum? Hver er raunveruleg stefna þessarar ríkisstjórnar í varnar- og öryggismálum? Eða er eitthvað að marka það sem hæstv. ráðherrar yfirleitt segja?
Það virðist vera þannig t.d. í þeim málum sem hér eru til umræðu að þar hafi alþýðubandalagsmenn neitunarvald. Frá því var skýrt í fréttum í kvöld að einn hv. þm., Hjörleifur Guttormsson, hefði lýst því yfir að ef hæstv. utanrrh. léti framkvæma svokallaða forkönnun í sambandi við hugsanlegan varaflugvöll þá mundi það varða stjórnarslitum, þá mundi stjórnin fara frá, þá nyti hún ekki lengur stuðnings. Ég skildi það þannig af fréttunum. Þar sem hv. þm. hlýtur að vigta töluvert í sínum flokki, þá mundi Alþb. ekki lengur vera í þessari ríkisstjórn. Þetta er náttúrlega mjög alvarlegt mál, ekki aðeins fyrir hæstv. utanrrh. því að ríkisstjórnir koma og fara og hann hefur kannski ekki lag á því að koma sér aftur í ríkisstjórn, það er annað mál. En það er náttúrlega mjög alvarlegt mál ef alþýðubandalagsmenn geta stöðvað eðlilegar
varnarframkvæmdir.
Ef svo er þá hlýtur það að leiða hugann að því að með þeim hætti eru þeir beint eða óbeint að styðja svokallaða Norðurlandaáætlun Gorbatsjovs sem hann kynnti á sínum tíma í Murmansk árið 1986 varðandi afstöðu og stefnu Sovétríkjanna til Norðurlandanna og hver væri hans skoðun og Sovétríkjanna um það með hvaða hætti Norðurlöndin ættu að haga sinni utanríkisstefnu og utanríkismálum. En í stuttu máli má segja það að samkvæmt svokallaðri Norðurlandaáætlun Gorbatsjovs er lögð áhersla á það að framkalla ákveðið hlutleysi, ákveðið varnarleysi af hálfu vestrænna þjóða í Norður-Atlantshafi.
Nú vitum við það allir, og það hefur margoft komið fram í ræðum manna hér í dag og hæstv. utanrrh. veit það mjög vel, að NATO-ríkin hafa rekið svokallaða varnarstefnu í sínum hermálum ef ég mætti orða það þannig, sérstaklega hér á Norður-Atlantshafi, en Sovétríkin hafa hins vegar byggt upp og rekið ákveðna sóknarstefnu. Um það vitna bæði framkvæmdir Sovétmanna á Kola-skaganum sem og athafnir þeirra í Norður-Atlantshafi. Þess vegna hlýtur maður að spyrja hæstv. utanrrh. að því hvort hann hafi ekki kynnt sér þessa svonefndu Norðurlandaáætlun Gorbatsjovs sem birtist í margumtalaðri ræðu sem var flutt í Murmansk árið 1986 og hann hefur áréttað og ítrekað í ræðum sínum á sl. ári. Maður hlýtur að spyrja hæstv. utanrrh. að því hvort hann vilji ekki greina frá því hér í umræðunni í hverju þessi áætlun er fólgin því það er auðvitað liður í því, til þess að skapa tiltrú og öryggi í þessum málum, að þá hljóti utanrrh. að vera vel upplýstur um ráðagerðir þessa annars mesta herveldis heimsins, sérstaklega þar sem það snertir okkur Íslendinga svo mjög.
En meginkjarni þessarar stefnu er einmitt að framkalla ákveðið hlutleysi í norðurhöfum og einnig að framkalla ákveðna stöðvun í öllum varnarframkvæmdum innan NATO-ríkjanna, ekki aðeins hér á Íslandi heldur einnig í Noregi. Þessi stefna miðar sérstaklega að því að gera hafið milli Íslands og Noregs og Íslands og Grænlands hlutlaust svæði í þeirri merkingu að Sovétríkin hafi frjálsan aðgang að því að sigla þar um óáreitt á sama tíma sem unnið er að því að brjóta niður eftirlitsmöguleika og varnarmöguleika vestrænna þjóða. Það er
mjög mikilvægt, þar sem það kemur nú fram í þessu plaggi hæstv. ráðherra um utanríkismál að aðild Íslands að NATO sé eiginlega hornsteinn utanríkisstefnu Íslendinga og grundvallaratriði og meginforsenda, eins og hv. þm. Ragnhildur Helgadóttir kom mjög vel að í ræðu sinni hér áðan.
Samstarfið hefur gengið vel innan Atlantshafsbandalagsins. Það vitum við öll. En það er náttúrlega mjög alvarlegt mál ef menn vegna innlendrar valdabaráttu leyfa sér þann munað, ég segi þann munað, að vera með innan ríkisstjórnar menn eða stuðningsmenn sem ég vil segja óafvitandi --- því að ég ætla þeim það ekki að þeir gangi erinda Sovétríkjanna á Íslandi, alls ekki, þá skuli vera menn
sem raunverulega eru að framkalla þá niðurstöðu sem Norðurlandaáætlun Sovétríkjanna felur í sér. Það er mjög alvarlegt mál og snertir m.a. margumtalaðan varaflugvöll sem ég mun víkja að hér á eftir.
Það hefur ekki mikið verið vikið að því í sambandi við þessa skýrslu að hlutverk Atlantshafsbandalagsins er annað og meira en að sinna hermálum. Það sem hefur gerst á síðustu árum sérstaklega er að innan NATO hefur að sjálfsögðu verið unnið að því að efla varnir og öryggi, en hins vegar hefur verið lögð aukin áhersla á það að þessi ríki ynnu saman á sviði stjórnmála, efnahagsmála, einnig í tengslum við vísindi og einnig hefur verið lögð áhersla á það að auka almenn samskipti. Þetta er öllum hv. þm. kunnugt um. En eftir sem áður er náttúrlega meginþunginn í samstarfi NATO-þjóðanna á sviði varnar- og öryggismála.
Til þess að undirstrika þessar, ég vil segja breyttu áherslur fyrir utan varnar- og öryggismálin, þá er hægt að nefna það að það hafa átt sér stað aukin samskipti á öðrum sviðum, t.d. eru tíðari ráðherrafundir um mikilvæg mál sem varða bæði innri mál og samstarf NATO-ríkjanna sjálfra og í öðru lagi í sambandi við afstöðu þeirra til annarra ríkja, svo sem til Varsjárbandalagsins, í sambandi við samninga um eldflaugar og fleira og í þriðja lagi hafa NATO-ríkin aukið sitt samstarf til þess að framkalla sameiginlega afstöðu í viðræðum um samninga varðandi afvopnunarmál, eyðingu kjarnorkuvopna o.fl.
Þingmannasamband NATO, sem hefur ekki látið mikið að sér kveða innan bandalagsins til þessa, hefur núna á síðustu árum stóreflt sína starfsemi. Það hefur ekki komið mikið fram í umræðum á hinu háa Alþingi í gegnum árin í hverju starf þessa þingmannasambands væri fólgið.
Þingmannasambandið var stofnað 14. júlí 1955 og Ísland var aðili frá upphafi og hefur jafnan átt aðild að því. Fyrstu fulltrúar Íslands á fundum þingmannasambandsins voru Jóhann Hafstein, Guðmundur Í. Guðmundsson og Björn Björnsson, en núverandi fulltrúar eru Guðmundur H. Garðarsson, Jóhann Einvarðsson og Karl Steinar Guðnason og til vara eru þingmennirnir Salome Þorkelsdóttir og Ingi Björn Albertsson. Aðalstöðvar þingmannasambandsins eru í Brussel og er starfsemin í stórum dráttum þannig að það kemur saman tvisvar á ári, vor og haust, en á haustfundum fer raunverulega fram aðalþinghaldið og stendur yfir í viku. En það sem hefur gerst á síðari árum, og er mikil breyting frá því sem áður var, er að þingmannasambandið hefur stóreflt alla sína starfsemi á milli þessara tveggja meginþinghalda og gerist það í starfi nefnda sem ég mun víkja að hér á eftir. Einnig hefur svokölluð fastanefnd, sem er stjórn þingmannasambandsins, reglulega fundi sem við Íslendingar getum því miður ekki tekið þátt í sem skyldi. En Ísland á einn fulltrúa í fastanefnd eins og öll önnur NATO-ríki nema hin stærri sem eiga tvo fulltrúa, þ.e. hin fjölmennari ríki, eins og Bandaríkin, Bretland, Frakkland, Ítalía og Vestur-Þýskaland, eiga tvo fulltrúa í fastanefndinni en hin ríkin einn.
Þessi fastanefnd sem starfar, eins og ég sagði áðan, mjög mikið á milli þinghalda hefur starfsliði á að skipa og hefur sínar aðalstöðvar í Brussel og starfar sjálfstætt, þ.e. starfar ekki á vegum eða í sambandi við NATO sem slíkt. Á fundum fastanefndar er fjallað um það hvernig unnt er að auka samstarfið innan NATO-ríkjanna og til þess eru m.a. notaðar starfsnefndir, en þær hinar helstu eru: Stjórnmálanefnd, efnahagsnefnd, félags- og menningarmálanefnd, öryggis- og varnarmálanefnd og vísindanefnd.
Virðulegi forseti. Ég er að gefa hér munnlega skýrslu sem ég fer nú að ljúka. Í þessum nefndum eru fulltrúar Íslands að sjálfsögðu. Í stjórnmálanefnd er Jóhann Einvarðsson, formaður utanrmn. Alþingis. Í efnahagsnefnd er Guðmundur H. Garðarsson. Í félags- og menningarmálanefnd er Karl Steinar Guðnason. En varamennirnir, Ingi Björn Albertsson er í öryggis- og varnarmálanefnd og Salome Þorkelsdóttir í vísindanefnd.
Þessar nefndir hittast mjög oft, starfa mjög skipulega og hafa starfsmönnum á að skipa, bæði föstum starfsmönnum sem og tilkvöddum sérfræðingum og á vegum þeirra eru margar undirnefndir. M.a. er mjög þýðingamikil nefnd núna að störfum sem fjallar um samskipti austurs og vesturs. Í tengslum við þá nefnd hefur m.a. verið efnt til sérstakra ferða fulltrúa fastanefndar til Austur-Evrópuríkjanna, svo sem til Póllands og Tékkóslóvakíu og fram undan er ferð til Moskvu, til þess að ræða þar við ráðamenn. Þá er undirnefnd í viðskiptamálum sem er talin mjög mikilvæg í sambandi við samskipti
Norður-Ameríkuríkjanna, þ.e. Bandaríkjanna og Kanada, annars vegar og Vestur-Evrópuríkjanna hins vegar og inn í þær viðræður koma mjög mikið Evrópubandalagsmál. Þá er undirnefnd í svokölluðum afvopnunarmálum o.s.frv.
Ég gat um það, virðulegi forseti, að því miður hefðum við Íslendingar ekki getað tekið sem skyldi þátt í störfum þessara nefnda vegna takmarkaðs fjár. Það hefur verið fjárskortur sem hefur takmarkað þátttöku okkar, en ég vil undirstrika það, virðulegi forseti, að þingmannasamband NATO er orðin mjög virk stofnun og er það miður að við Íslendingar skulum ekki geta tekið þátt í störfum þess sem skyldi.
Ég vil einnig skýra frá því að fastanefnd hefur það fyrir reglu að halda fundi sína í hinum ýmsu NATO-ríkjum til skiptis. Á næsta ári mun fastanefndarfundur verða haldinn hér á Íslandi, þ.e. í Reykjavík, og er stefnt að því að sá fundur verði í apríl árið 1990. Á þessum fundi munu að sjálfsögðu fastanefndarmenn mæta ýmsir, en einnig munu koma með þeim sérfræðingar. Þessi fundur mun verða allfjölmennur eða um 100 manns. Meðal hinna erlendu aðila verða ýmsir áhrifamiklir stjórnmálamenn frá NATO-ríkjunum og munu þeir sitja á þessum fundi undir forsæti breska þingmannsins Patricks Duffy sem er núverandi forseti þingmannasambandsins.
Ég vil, virðulegi forseti, ljúka þessari munnlegu
skýrslu minni með því að segja að það mun verða lögð hér fram á þessu þingi ítarleg skrifleg skýrsla um þátttöku okkar á þessum vettvangi. Það hefur víst ekki verið venja hingað til en það mun verða gert eftirleiðis.
Ég vil svo víkja nokkrum orðum, virðulegi forseti, að öðrum atriðum og ég vildi gjarnan að hæstv. utanrrh. væri viðstaddur. ( Utanrrh.: Hann heyrir það.) Ég skal segja þér, hæstv. utanrrh., að ég nenni ekki að tala við menn í gegnum dyr. Ég hef aldrei gert það og ætla ekki að byrja á því. --- Já, ég skil hvers vegna hæstv. ráðherra vill vera þarna. En ég vil helst geta horft framan í hann þegar ég legg fyrir hann spurningar.
Virðulegi forseti. Ég vildi gjarnan fá að leggja hér nokkrar spurningar fyrir hæstv. utanrrh. og óska eftir því að hann svari þeim hér á eftir.
Fyrsta spurningin sem ég vildi leggja fyrir hæstv. ráðherra er á þá leið að ég spyr hvort hæstv. utanrrh. ætli að láta yfirlýsta andstæðinga NATO í áratugi kúga sig til að þjóna þeim neikvæða málstað að koma í veg fyrir að sú forkönnun verði gerð um varaflugvöll á Íslandi sem ég veit að hugur ráðherra stendur til. Ég notaði þarna orðið kúga vegna þess að það er staðreynd. Það hefur aldrei verið farið dult með það að varaflugvöllur, sem er náttúrlega nauðsynlegur vegna alþjóðaflugs á friðartímum og við sem höfum verið að berjast fyrir því að slíkur flugvöllur yrði byggður hér á landi höfum aldrei farið dult með það og höfum gert okkur grein fyrir því allan tímann að slíkur varaflugvöllur mundi auðvitað þjóna varnarmarkmiðum NATO á Íslandi ef þörf krefur. Það er því rétt, sem andstæðingar NATO segja, að með því að byggja þennan flugvöll er auðvitað verið að styrkja varnarkerfi Atlantshafsbandalagsins í Norður-Atlantshafi. En með því að koma í veg fyrir það að þessi flugvöllur verði byggður er verið að tryggja framkvæmd svonefndrar Norðurlandaáætlunar Sovétríkjanna, sem ég gat um áðan, sem er að hindra það að Ísland geti tekið þátt í þeim vörnum og þeim öryggishagsmunum sem breyttar aðstæður krefjast. Það er fyrst og fremst fólgið í því að með því að hafa hér varaflugvöll, þá styrkjum við möguleika NATO til þess að hafa hér nauðsynlegt eftirlit með því sem er að gerast í Norður-Atlantshafi, sérstaklega á milli Íslands og Noregs og Íslands og Grænlands.
Sá hörmulegi atburður sem átti sér stað við Bjarnarey fyrir nokkrum vikum, þegar sovéskur kafbátur fórst þar, undirstrikar nauðsyn þess að auka eftirlit í norðurhöfum, þannig að við þurfum ekki að eiga von á því að vakna einn góðan veðurdag upp við það að sovéskir kafbátar séu innan íslenskrar landhelgi án þess að nokkur hafi hugmynd um það. Það er því nauðsynlegt að fá það upplýst hvort hæstv. ráðherra ætlar að láta, eins og ég sagði og undirstrika, yfirlýsta andstæðinga NATO koma í veg fyrir það að þessi forkönnun eigi sér stað.
Ég tel að ef ráðherra ætlar ekki að hafast neitt að í þessu máli annað en að mæla hér fögur orð eða tala
tvírætt, þá jafngildi það því að verið sé að reka fleyg í varnaruppbyggingu NATO-ríkjanna og þar með hafa andstæðingar þessa samstarfs frá upphafi náð þeim árangri sem að er stefnt. Það getur einnig hugsanlega stórskaðað samningsstöðu NATO-ríkjanna í samningum við Varsjárbandalagið um afvopnun eða eyðingu kjarnorkueldflauga. Þessi staða styrkir nefnilega stöðu Sovétríkjanna og veikir stöðu Atlantshafsbandalagsins.
Ég vil einnig spyrja hæstv. utanrrh. að því hvernig hann hyggist efla þá starfsemi í utanrrn. er lýtur að varnar- og öryggismálum. Ég vil undirstrika það eins og hv. þm. Geir H. Haarde gerði áðan að í minni spurningu felst ekki gagnrýni á núverandi starfsmenn ráðuneytisins sem fjalla um þessi mál. Ég vil láta styrkja þeirra stöðu og þeirra starfsemi og ég vil láta framkalla það skipulag á þessum málum að þessir starfskraftar sem og fleiri sem nauðsynlega þarf til að kveðja geti sinnt þessum málum sem skyldi.
Þá vil ég einnig spyrja hæstv. ráðherra að því hvernig hann ætli að fara að því að tryggja það að Íslendingar hafi eðlilegan aðgang að upplýsingum er máli skipta fyrir okkur um umsvif NATO og Varsjárbandalagsins í Norður-Atlantshafi. Ég tel að það séu ekki nægilegar upplýsingar fyrir hendi um það.
Einnig vil ég spyrja hæstv. ráðherra að því hvort hann hafi í huga að tryggja það að Íslendingar fái eðlilega þátttöku í sameiginlegum viðræðum NATO við Varsjárbandalagið í þeim málum sem skipta máli fyrir bandalagið í heild og svo okkur Íslendinga sérstaklega. Við skulum hafa það í huga að þær viðræður sem hafa átt sér stað í Evrópu um þessi mál á undangengnum árum geta framkallað breytt vægi ríkja og landsvæða og þá er mikilvægt að við Íslendingar gerum okkur grein fyrir því í hverju breytingarnar eru fólgnar.
Undirrót alls þess sem við tölum um varnar- og öryggismál er auðvitað sú að við leggjum áherslu á það að tryggja frið og öryggi. Við sem höfum stutt aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu allt frá því að Ísland gekk í NATO árið 1949 teljum að við höfum tekið þátt í því að tryggja frið og öryggi á okkar svæðum, þ.e. í Evrópu og á Norður-Atlantshafi, þannig að það er fyrst og fremst sú forsenda sem ýtir undir okkur að á þessum málum sé haldið með öðrum hætti í framtíðinni, þ.e. við breyttar aðstæður sé nauðsynlegt að við Íslendingar komum að þeim með þeim hætti sem ég hef áður lýst. Ég tel að það vanti mikið á að svo sé og vil m.a. undirstrika það að eins og utanrrn. hefur þróast er það gjörsamlega útilokað að einn ráðherra geti haft umsjón með öllum þeim þáttum sem þar koma við sögu. Og ósjálfrætt læðist að manni sá grunur að varnar- og öryggismál mæti þar afgangi. Ég sagði að það læðist að manni sá grunur að svo sé, en því miður hafa dæmin sýnt, eins og gerðist hér um daginn þegar umræddur kafbátur fórst, þá kom í ljós að utanrrn. og hæstv. ráðherra voru alls ekki undir það búnir og höfðu ekki þær upplýsingar sem nauðsynlegt og æskilegt hefði verið
að þeir hefðu haft. Það var eitthvert sambandsleysi þar á ferðinni sem er bæði hættulegt og óæskilegt.
Þá eru hérna spurningar í sambandi við utanríkisviðskipti. En áður en ég kem að því finnst mér eðlilegt að varpa fram spurningum í sambandi við utanrrn. Eins og skýrsla um utanríkismál ber með sér er utanrrn. orðið mjög stórt og viðamikið ráðuneyti. Og þá kemur upp sú spurning: Er það yfirleitt framkvæmanlegt fyrir einn og sama ráðherrann að hafa yfirumsjón með og fjalla um
1. almenna utanríkisþjónustu,
2. að fylgjast með því sem gerist í sambandi við alþjóðastofnanir sem Íslendingar eru aðilar að,
3. að fylgjast með öllu því er viðkemur utanríkisviðskiptum,
4. að fylgjast með öllu því er lýtur að varnar- og öryggismálum,
5. að fylgjast með öllu er lýtur að hafréttarmálum,
6. að fylgjast með því sem er að gerast í tengslum við Evrópubandalagið
á sama tíma sem viðkomandi maður, og það vill svo til að núv. hæstv. utanrrh. sem situr hér á Alþingi er einnig þingmaður, og hann er einnig formaður í stjórnmálaflokki. En ég vil taka skýrt fram, að það gæti alveg eins verið svipað ástatt um einhvern úr öðrum flokki eins og hæstv. utanrrh. þannig að spurningin er ekki persónubundin við hann í þessu starfi. Maður sér það fyrir sér í öðrum flokkum að sá möguleiki gæti einnig komið upp að það væri formaður úr öðrum flokki í sæti utanrrh. og þarf ekki að fara langt aftur í tímann til þess að finna slík dæmi.
Ég spyr: Er þetta framkvæmanlegt? Er það framkvæmanlegt að einn maður, einn ráðherra sé með öll þessi svið á sinni ábyrgð? Er það framkvæmanlegt?
Ef maður lítur á vægi þessara þátta --- ég hef nú talað um varnar- og öryggismálin töluvert, mönnum er tíðrætt um þau --- tökum þá utanríkisviðskiptin. Það þarf ekki að fara langt frá þeim málafllokki til þess að koma að Evrópubandalagsmálunum. Það er nýverið búið að gefa út nokkur rit um Evrópubandalagið sem þingnefnd hefur staðið að. Þar að baki er mikil vinna.
Ég veit að núv. hæstv. utanrrh. er hæfileikamaður á ákveðnum sviðum. En samt leyfi ég mér að efast um að hann geti fylgst svo vel með öllum þessum málum að fullnægjandi sé. Eitthvað hlýtur að láta undan og ég verð að segja, og það á því miður við hjá fleiri ráðherrum en núv. hæstv. utanrrh., að einhvern veginn læðist sú hugsun að mér að sá þáttur, sem utanrrn. á að fjalla um, sem hefur orðið út undan sé fyrst og fremst varnar- og öryggismál og það er mjög alvarlegt mál svo ekki sé meira sagt.
Ég vildi gjarnan heyra skoðun hæstv. utanrrh. á þessu, hvort ekki sé tímabært að stokka hér eitthvað upp og breyta til. Það er hægt að stofna ný ráðuneyti án þess að efna til þess með ærnum tilkostnaði. Það er hægt að færa til menn og færa saman. Það mætti t.d. hugsa sér að í tengslum við það að setja á laggirnar sérstakt varnar- og öryggismálaráðuneyti
mætti sameina það dómsmálum og löggæslu þannig að úr því yrði nokkurs konar innanríkis- og öryggismálaráðuneyti sem væri rökrétt. Ég veit að hæstv. utanrrh. er maður sem horfir fram í framtíðina og kærir sig nú ekki um að sitja að málum þannig að þau séu ekki framkvæmd. Það væri gaman að heyra skoðanir hans á þessari
hugmynd.
Þá vil ég víkja nokkrum orðum að utanríkisviðskiptum, en áður en ég geri það, vil ég segja, virðulegi forseti, að það er ekkert furðulegt þótt hv. þm. séu hér kvöld eftir kvöld eða dag eftir dag að fjalla um skýrslu utanrrh. vegna þess að málaflokkarnir bjóða upp á það. Ef við bara ræðum um utanríkisviðskiptin ein út af fyrir sig, þá erum við að tala um inn- og útflutning. Við erum að tala um grundvallarforsendur þess að Ísland geti þróast með þeim hætti sem nútímamenn gera kröfur um. Nú er svo komið að það er búið að vista utanríkisviðskiptin alfarið í utanrrn., þ.e. bæði inn- og útflutningsviðskiptin. Og þá vaknar upp sú spurning: Til hvers var verið að flytja þetta allt í utanrrn.? Ég fæ ekki svör við því í þessari skýrslu utanrrh. Sá kafli sem lýtur að utanríkisviðskiptum er afskaplega fróðlegur svona almennt um utanríkisviðskipti. Þetta er eins og menn taka saman hjá útflutningssamtökunum. Það er hægt að segja góða sögu af því að þegar þau eru búin að búa til sínar skýrslur og senda þær í ráðuneytin og í opinberu stofnanirnar, þá er stundum hringt aftur í viðkomandi fyrirtæki og þau eru spurð um það hvort ekki sé hægt að gera hlutina einhvern veginn öðruvísi en gert hafi verið því eitthvað verða embættismennirnir að hafa sér til dundurs.
En ég spyr hæstv. utanrrh. Þessi skýrslugerð var að mig minnir upphaflega í Landsbankanum þegar Jóhannes Nordal var þar hagfræðingur bankans fyrir nokkrum áratugum. Síðan fluttist það í Seðlabankann. Svo fór það í Þjóðhagsstofnunina en núna er þetta komið í utanrrn. Það er allt gott um skýrslugerðir að segja í sambandi við utanríkisviðskipti, en það sem skiptir máli í sambandi við utanríkisviðskipti er að þau séu framkvæmd með eðlilegum hætti. Og þá er spurningin: Er verið að byggja hér upp bákn, kerfi, búa til stöður, búa til skrifstofuveldi? Er verið að stefna að því að auka afskipti hins opinbera af utanríkisviðskiptum? Um hvað snýst þetta tal sumra manna um aukið frelsi í viðskiptum, aukið útflutningsfrelsi? Hér áður fyrr börðust sumir gegn sölusamtökunum og töldu þau of stór, þar væri saman komið of mikið vald, of mikið skipulag. En mér sýnist að nú sé búið að færa þetta stjórnunarvald, ef það er hægt að orða það þannig, upp í ráðuneyti undir hæstv. utanrrh. Að vísu hefur núv. hæstv. utanrrh. ekki verið ráðherra í þessu máli nema í nokkra mánuði. Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra að því hvort það sé meining hans að auka afskipti hins opinbera af þessum málum. Ég tel það mjög hættulega þróun og hún verði mjög neikvæð.
Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að lengja umræðuna.
En ég hef nú lagt fyrir ráðherrann nokkrar spurningar. Ég ætlast til þess að hann svari þeim með þeim hætti að svör hans séu skýr. Það er grundvallaratriði að fá að vita það hvort hæstv. ráðherra ætlar að láta Alþb. beygja sig í því sem ég veit að hugur hans stefnir til sem er að það verði byggður hér varaflugvöllur sem þjóni Íslendingum sérstaklega. Á sama tíma gerum við okkur grein fyrir því að slíkur flugvöllur er þeirrar gerðar að hann þjónar varnarhlutverki Íslands innan Atlantshafsbandalagsins. Þetta veit hæstv. ráðherra. Því óska ég eftir því að fá skýr svör við því hvort hann ætlar að láta framkvæma þessa forkönnun eða ekki.