Hjörleifur Guttormsson:
Virðulegur forseti. Það eru nú liðnar 6--7 klukkustundir síðan ég tók hér þátt í umræðunni og hefur margt verið sagt síðan. Þetta hafa verið fróðlegar umræður sem hér hafa farið fram. Menn hafa lýst viðhorfum sínum til margra þátta sem tengjast þeim skýrslum sem hér hafa verið fram lagðar og við eigum eftir að heyra hér á eftir í hæstv. utanrrh., væntanlega áður en þessari umræðu lýkur, vegna þess að allnokkrar fyrirspurnir hafa verið fram bornar til hans.
Það eru fáein atriði hér sem fram hafa komið í máli manna sem ég tel ástæðu til að víkja að af minni hálfu og síðan eru það tvö atriði sem ég vildi nefna sem ég ræddi ekki sérstaklega í máli mínu fyrr í umræðunni. Það er lítillega um það sem snýr að utanríkisþjónustunni og síðan að mannréttindamálum og þá m.a. í ljósi atburða í Palestínu.
Hér var áðan flutt ræða af hv. 14. þm. Reykv. sem talaði sem mjög ötull stuðningsmaður Atlantshafsbandalagsins eins og raunar þeir fimm hv. sjálfstæðisþingmenn aðrir sem tjáð hafa sig hér í umræðunni og mun þeim áreiðanlega hlýna um hjartaræturnar sem kynnu að óttast eitthvað um hag þessa fertuga bandalags að heyra þann málflutning sem hér hefur verið uppi hafður og ætla ég ekki að kasta neinni rýrð á hann. Þar er mælt út frá því sjónarhorni sem þessir hv. þm. líta á málin.
Það kom fram í máli hv. þm. Guðmundar H. Garðarssonar að hann hefði beyg af því, og það gildir raunar um ýmsa fleiri sem hér hafa talað, t.d. hv. 17. þm. Reykv. Geir H. Haarde, að þeir hafa mikinn beyg af því að áhrif Alþb. á mótun utanríkisstefnunnar séu veruleg og háskaleg að þeirra mati og á ýmsa vegu, m.a. að því er snýr að hugsanlegum framkvæmdum eða framkvæmdum sem þeir telja nauðsynlegar og hafa sjálfsagt heyrt rætt um á vettvangi NATO og víðar að óskað er eftir af ýmsum hér á landi til að auka hér hernaðarumsvifin.
Það er nú svo að í ríkisstjórnum reyna menn að ná saman um ákveðin sjónarmið. Ég hefði sannarlega kosið að áhrifa Alþb. gætti meira formlega og með beinum hætti hvað snertir stjórnarsáttmála og einnig hvað snertir stjórnarákvarðanir til þessa á utanríkismálin og það kom fram held ég nokkuð skýrt í fyrri ræðu minni hér við umræðuna.
Ég bendi hins vegar á að um sitthvað af því sem fram hefur komið hjá hv. talsmönnum Sjálfstfl. hér í umræðunni má segja að þar er nú kannski nokkuð langt seilst að vilja gera það allt að sjónarmiðum Alþb. eða Alþb. eins í ríkisstjórn, hvað þá á Alþingi. Ég vænti þess að menn hafi lagt hér við hlustir þegar aðrir hv. þm. töluðu. Ég tók t.d. eftir því að margar áherslur komu fram hjá hv. 12. þm. Reykv. Kristínu Einarsdóttur sem falla mjög að þeim sjónarmiðum sem ég ber í brjósti í sambandi við þróun mála varðandi utanríkisstefnu Íslands. Og ég hygg að ef fleiri hv. framsóknarmenn hefðu tekið hér til máls, þá hefðu einnig komið fram sjónarmið sem eru ekki fjarri þeim viðhorfum sem ég hef mælt hér fyrir þannig að það
er nú engan veginn svo að Alþb. geti eitt, og ég segi sem betur fer, að Alþb. geti eitt helgað sér sjónarmið af því tagi sem hv. þm. Sjálfstfl. hafa verið að eigna því, t.d. varðandi varaflugvöll.
Halda hv. þm. að það sé ekki andstaða við hugmyndina um varaherflugvöll á Íslandi annars staðar en í röðum Alþb.? Hafa hv. þm. Sjálfstfl. ekki heyrt í talsmönnum Kvennalistans hér á Alþingi og heyrt ályktanir þeirra og áherslur, flokks sem hefur mælt meira fylgi í landinu heldur en Alþb. á þessu kjörtímabili? Hafa hv. þm. ekki heyrt í mörgum framsóknarmönnum, svo að dæmi séu tekin, sem mæla mjög eindregið gegn þessari framkvæmd? Og það bæði úr röðum yngri manna í þeim flokki og eldri manna og reyndra manna í þeim flokki, manna sem hafa nú ekki verið taldir í hópi þeirra sem ætla að reyna að koma fram Norðurlandaáætlun Gorbatsjovs hér á Íslandi, voru m.a.s. farnir að tala áður en Gorbatsjov setti fram sín sjónarmið í Murmansk sem hv. þm. Guðmundur H. Garðarsson hefur lofað mér að koma á framfæri en ekki efnt enn þá því að hann hefur rætt þessi áhyggjumál sín í utanrmn. þingsins --- og ég leyfi mér að nefna það eftir að hann hefur fært það hér inn í þingsali Alþingis --- og lýst þar þungum áhyggjum ekki aðeins vegna mín heldur vegna hv. þm. sem séu undir sterkum áhrifum af þessari Murmansk-ræðu Gorbatsjovs.
Sá maður, sem ég ætlaði að nefna þarna til sögunnar úr röðum eldri manna úr Framsfl., er Þórarinn Þórarinsson, fyrrum ritstjóri Tímans, sá maður sem ég fræddist meira af en nokkrum öðrum varðandi alþjóðamál í æsku og fram eftir ævi vegna þess að hann var mjög ötull að miðla fróðleik og þýða greinar um þessi efni í það heimilisrit sem helst barst inn á mitt heimili fyrir utan Ísafold og Vörð, en það var dagblaðið Tíminn og þótti mér það mjög fróðlegt og lærdómsríkt. Ég hef lesið það frá þessum ritstjóra, í seinni tíð einnig, að hann hefur varað mjög sterkt og eindregið við öllum hugmyndum um varaflugvöll. Hann þekkir til innan búðar hjá Atlantshafsbandalaginu og hefur ekki verið talinn þar sitja á sérstökum svikráðum við það bandalag, þó ég segi ekki að hann sé heittrúaður í þeim efnum eins og ætla mætti af málflutningi sumra hér á Alþingi. En ég mæli þessi orð vegna þess hvað menn hafa einfaldað þessa
umræðu mikið og ætlað að varpa henni bara inn á borð Alþb., þar séu þessir voðamenn sem vilji koma í veg fyrir þessa nauðsynjaframkvæmd að sumra mati. Málin eru sem betur fer ekki þannig. Sem betur fer.
En það er víða farið að gæta áhrifa Gorbatsjovs aðalritara, og forseta víst, er hann orðinn. Þeirra er víða farið að gæta. Eftir að ég talaði við umræðuna hér í dag greip ég niður í málgagn hæstv. utanrrh., eitt af þessum fáu beinu flokksmálgögnum á Íslandi, Alþýðublaðið frá 25. apríl 1989. Þar er grein sem fjallar um hinn margumrædda sokkna sovéska kafbát. Og hvað lesum við þar? Þar lesum við eftirfarandi, með leyfi virðulegs forseta, varðandi þessi mál:
Johan Jörgen Holst, en sá er varnarmálaráðherra í Noregi, hefur lýst yfir áhuga sínum á því að gera tvíhliða samning við Sovétríkin um ferðir kjarnorkuvopnaskipa og -kafbáta svipað og stórveldin hafa rætt um. Stórveldin hafa viðrað bann á kjarnorkuvopnum í kafbátum nema langdrægar kjarnaflaugar sem þýddi að kafbátar stórveldanna þyrftu ekki að sigla nálægt ströndum hvers annars. --- Ég kem því hér að, það er sérstakt áhyggjuefni hv. þm. Guðmundar H. Garðarssonar einmitt að þeim verði bægt frá landi, að þeir fái ekki að fara inn í landhelgina ef ég hef skilið hv. þm. rétt eins og hann talaði hér áðan. En það er einmitt þarna á dagskrá hjá Holst. --- Holst hefur lýst yfir vilja sínum til að gera samning við Sovétmenn um öryggisráðstafanir hvað Noregsstrendur varðar.
Hvernig líst nú hv. þm. Guðmundi H. Garðarssyni á? Og hvað segir hæstv. utanrrh. um þetta? Er þarna ekki einmitt komin hugmynd sem tengist þeim atriðum sem hæstv. ráðherra gerði að umtalsefni með verðugum hætti í ræðu sinni þar sem ráðherrann kom betur að þessu máli, gekk lengra en ég hafði þorað að vona fyrir fram í sambandi við nauðsynina á að ná fram afvopnun á höfunum? Hann er að vísu enn í þessu NATO-hafti í sambandi við að segja eftir Vín, eftir RÖSE, ekki fyrr, ekki fyrr á dagskrá, ekki líkur á að ná formlegum viðræðum, en hann er samt með einum og öðrum hætti að leita leiða, það heyrði ég í hans máli, til þess að taka á þessu efni. Og það er sérstök ástæða til að fagna því. Hér er hjá ... (Gripið fram í.) Ekki starfsbróður hans, það er ekki svo komið, hv. 14. þm. Reykv., að hann sé orðinn starfsbróðir Johans Holst í Noregi. Við erum ekki komnir með þetta hermálaráðuneyti hérna enn þá, en þarna er einmitt að finna mjög merkilegar og athyglisverðar hugmyndir. Hvernig væri það einmitt að hér á næstunni verði teknar upp viðræður, eins og við fjórir hv. þm. erum að leggja til í þáltill. um kjarnorkuafvopnun í norðurhöfum, verði teknar upp viðræður við kjarnorkuveldin um það að þoka kafbátaflota sínum og herskipum sem fjærst landi, út úr landhelginni með vissu, út úr efnahagslögsögunni í framtíðinni? Þetta væri raunhæft skref. Þetta væri raunverulegt. Og þarna er að finna vísi að þessari stefnu hjá varnarmálaráðherra Noregs, ef ég skil málgagn hæstv. utanrrh. rétt, og þar er vitnað í Arbeiderbladet frá 12. apríl ef ég hef tekið rétt eftir. Það er ekki langt síðan það birtust um þetta fréttir sem hefur verið ótrúlega hljótt um hér í fjölmiðlum á Íslandi vegna þess að þetta eru tíðindi sem þarna eru á ferðinni, þessar hugmyndir varnarmálaráðherra Noregs.
Auðvitað tengist þetta líka þeim hrolli sem fór hér um hv. 17. þm. Reykv. í umræðunni í dag þegar hann var að álasa hæstv. utanrrh. fyrir afar ógætilegt framferði á Vínarfundinum þegar hann var hafinn hér í fyrra mánuði, 6. mars, og haldin var ræða í nafni hæstv. ráðherra. Þá leyfði hæstv. utanrrh. Íslands sér að láta talsmann sinn við setningu fundarins impra á því að það væri áhugamál Íslendinga að Íslendingar
vildu í náinni framtíð sjá teknar upp samningaviðræður um traustvekjandi aðgerðir sem snertu hafið og að það væri sérstakt áhugaefni okkar að koma af stað eða sjá upp teknar viðræður að þessu leyti. Hvernig má það vera að það setji hroll hér að talsmönnum á Alþingi Íslendinga og að utanrrh. landsins verði fyrir ákúrum fyrir þá sök svokallaða að taka upp þetta brýna hagsmunamál landsins á alþjóðafundi suður í Vín? Þó hann hafi fengið orð í eyra frá bandamönnum, sem svo eru taldir vera, sem ekki vilja, sem standa í veginum fyrir því að þessar umræður séu upp teknar og segja: Ekki núna. Ekki í fyrirsjáanlegri framtíð, segja aðmírálarnir. Og ég býst við að hann segði það, sá sem hann var að kveðja í kvöld, McVadon, yfirmaður herliðsins í Keflavík. Hann mundi sennilega taka undir það. Og ef það væri komið þetta hermálaráðuneyti sem hv. 14. þm. Reykv. er að leggja til hér í sérstakri þáltill. á Alþingi ( GHG: Öryggis- og varnarmálaráðuneyti.) þá hefðum við nú þó haft utanrrh. hér og aðmírállinn hefði getað gert honnor fyrir raunverulegum hermálaráðherra Íslands sem hv. 14. þm. Reykv. telur að þyrfti að koma hér til þess að halda utan um hlutina, til þess að allt fari ekki á dreif. Því að það er aðaláhyggjuefni hv. 14. þm. Reykv. að hér liggur bara allt saman meira og minna galopið. Það er hið stóra áhyggjuefni þingmannsins að það sem snýr að hinum svokölluðu öryggismálum fari bara hér út um víðan völl, sé á dreif hjá óvönduðum aðilum sem séu að ganga erinda Gorbatsjovs hér uppi á Íslandi. Það hafa nú fallið orð víðar hér en á Alþingi.
Virðulegur forseti. Ég ætla ekki að fara nánar út í þessa sálma svo fróðlegt sem það væri og ekki að elta ólar við það sem hér hefur verið sagt, margar
mjög sérkennilegar staðhæfingar í sambandi við vígbúnaðarkapphlaupið, stýriflaugar, aukinn vígbúnað. Ég vil þó aðeins minna hv. þm. á hinar nýju flaugar sem Bandaríkjaher er að búa sig í að þróa, Scram-flaugarnar sem meiningin er að komi í F-111 þoturnar í Bretlandi, Scran-T-flaugarnar, 1300 talsins er óskatalan til þess að koma í 200 herþotur í Bretlandi, F-111. Og það eru uppi verulegar áhyggjur hjá þeim innan Bandaríkjaþings, sem vilja horfa á málin raunsætt og hafa raunverulegan áhuga á afvopnun, að þessi þróun setji INF-samninginn um meðaldrægar flaugar í mikla hættu. Lesið um þetta, hv. alþm., lesið um þetta í blöðunum, um þessa þróun og áhyggjur manna vestur í Bandaríkjunum og í Evrópu út af þessari þróun, aukningu vígbúnaðarins, nýjar flaugar í aukinn flota langdrægra sprengiþotna á grund í Bretlandi sem Margrét Thatcher hefur lýst yfir að hún er reiðubúin að fjölga úr 160 upp í 200 talsins eða svo. Svo eru menn hér að tala um aukinn vígbúnað hinum megin, rétt að fylgjast með því. Það eiga menn að gera grannt. En menn skulu skoða hlutina í eigin garði og í bakgarðinum hjá sér líka.
Þá vildi ég, virðulegur forseti, leyfa mér aðeins að víkja að utanríkisþjónustunni þó ég dræpi aðeins á einn þátt þess máls hér í umræðu fyrr í dag. Hæstv. utanrrh. hefur kynnt utanrmn. Alþingis tillögur um
breytingar á skipulagi og starfsmannahaldi utanríkisþjónustunnar. Svo fór, eins og drepið hefur verið á hér í umræðunni, að umrætt flokksmálgagn, Alþýðublaðið, birti þessar hugmyndir sem voru kynntar okkur sem trúnaðarmál á laugardaginn var þannig að þar liggur fyrir megnið af þessu. Ég veit ekki hvort fréttamenn hafa ekki trúað Alþýðublaðinu eða ekki lesið það, en það hefur lítið farið það ég hef heyrt út um þetta þannig að þetta er kannski enn þá trúnaðarmál að mestu.
Varðandi þessar tillögur tel ég að það sé allt of skjótráðið að ætla að fara að ganga frá þessum skipulagsbreytingum hér og nú af einum ráðherra í ríkisstjórn Íslands án undangenginnar verulegrar umræðu og athugunar máls, t.d. í utanrmn. Alþingis og hér á Alþingi, því að auðvitað á að ræða svona stórmál hér á Alþingi. Það eru þarna mörg álitamál að mínu mati og það segi ég einfaldlega sem áhugamaður um það að við getum náð fram sem bestri, hagkvæmastri og virkastri utanríkisþjónustu. Við erum á þessu sviði allt of lítilvirkir. Við búum allt of illa að þessari þjónustu okkar. Hún er ekki skipulögð samkvæmt réttum áherslum. Hún er auðvitað eins og kerfi vilja þróast og að því leyti tek ég alveg undir með hæstv. utanrrh. Það er full þörf á að fara yfir þetta og athuga um breytingar. Það er alveg ljóst að það er breytinga þörf. Þessu kerfi hefur kannski ekki verið breytt mikið á undanförnum árum og þó hafa þarna orðið breytingar sem við skulum taka með í umræðuna og geta verið full rök fyrir að viðhalda og taka inn í þetta nýja kerfi að athuguðu máli.
Ég vil segja það að formleg skipan þessara mála, t.d. varðandi sendiráð, að það er ekkert á móti því að fara yfir það hvar núverandi sendiráð eru starfandi og hvort það er rétt að breyta þeirri skipan og fjölga sendiráðum. Alveg sjálfsagt að athuga breytingar á því sviði. Hv. 1. þm. Suðurl. viðraði hér hugmyndir að þessu leyti. Þær á einnig að taka inn í athugun þessa máls að mínu mati. Ég er ekki að taka afstöðu til þeirra hér með. Alls ekki. En hæstv. utanrrh. hefur fyrst og fremst gert tvær tillögur varðandi skipan sendiherra. Hann hefur fjölgað sendiherrum um einn nú þegar, eða gerir það með skipan væntanlegs fastafulltrúa í Genf og kallar þá þann sendiherra sem fyrir er þar heim, ef ég hef skilið málið rétt. Þar fjölgar sendiherrum um einn. Síðan boðar hæstv. utanrrh. fjölgun sendiherra í Brussel, þar verði sjálfstæður sendiherra hjá Evrópubandalaginu auk sendiherra hjá Atlantsbandalaginu því að hann reiknar ekki með því að leggja það af þó að ófriðvænlegt sé þar innan búðar þessa stundina núna á 40. árinu. Enn þá gerir hann ráð fyrir sendiherra þar áfram, hjá NATO. Þetta eru breytingar sem ég er ekkert sannfærður um að séu réttar áherslur. Ég er ekkert sannfærður um það þó að það sé alveg ljóst að það þarf að styrkja starf sem lýtur að Evrópubandalaginu, athugun mála hjá því ekki síst hér heima, á heimavettvangi, og þær byrðar sem á okkur leggjast í EFTA á þessu ári og það aukna starf sem þar fer fram. Það kallar auðvitað á aðstoð.
En samhliða þessum tillögum, auk tilfærslna hér innanvert hjá ráðuneytinu, þá boðar hæstv. ráðherra að það verði ekki fjölgað mannafla. Það á að vera bara status quo, ef ég hef skilið málið rétt, nema það er fjölgað í efri lögunum en fækkað í neðri lögunum, hjá aðstoðarfólkinu á neðri þrepunum. ( GHG: Þetta er þróunin.) Já, hv. 14. þm. Reykv. Ég er nú ekki alveg viss um að þetta séu réttar áherslur eða þær séu framkvæmanlegar til þess að ná fram þeim árangri sem ég er viss um að hæstv. ráðherra stefnir að. Ég lýsi sem sagt efasemdum en ég er sannarlega reiðubúinn til umræðna um þessi mál og tel að þau séu fullkomlega þess virði að á þau sé litið, einnig tillögur hæstv. ráðherra, að sjálfsögðu, ég er alls ekki að hafna þeim öllum með þessum orðum mínum. Reglan um að kalla heim sendimenn 65 ára verður náttúrlega ekki tekin alvarlega eftir það sem gerst hefur í þeim efnum nýverið, ekki alvarlega í
bókstaflegum skilningi kannski en þar með getur hugmyndin átt rétt á sér.
Varðandi svo hverjir eru valdir til starfa þá hef ég lýst mínum sjónarmiðum að því leyti að ég tel ekki að Alþingi eigi að vera uppeldisstofnun fyrir utanríkisþjónustuna frekar en fyrir fjármálastofnanir eða bankana í landinu. Ég er bara einfaldlega þeirrar skoðunar að það eigi ekki við. Það eigi ekki heima. Alþingismenn eiga ekkert að vera í meiri vandræðum að framfleyta sér þó að þeir hverfi út af þingi heldur en aðrir þegnar í þjóðfélaginu og þurfa enga öryggispalla í þeim efnum. Þeir eiga að geta notið sín, eiga að vera eftirsóttir ef þeir hafa vakið á sér einhverja athygli hér á Alþingi með jákvæðum hætti, sem flestir væntanlega gera, þá ættu þeir ekki að vera í vandræðum með að fá verkefni við hæfi úti í þjóðfélaginu. Þeir hljóta að vera eftirsóttir fyrst menn hafa svona mikla trú á þeim í utanríkisþjónustuna og í bankana. Eru þeir þá ekki eftirsóttir annars staðar? En það er bara ekki á réttum stað að vera að taka menn hér út af vettvangi Alþingis og tengja þá inn í framkvæmda- og fjármálavald í landinu og þar með þeim pólitísku tengslum sem þeim fyljga. Það er málið. Við þurfum fagleg vinnubrögð í þessum stofnunum og í utanríkisþjónustunni og þau verða best tryggð með því að veita því liði, vel menntuðu og vel þjálfuðu, aðhald, góðu fólki og starfsmöguleika á þeim vettvangi.
Ég tek það fram að ég tala hér ekki fyrir minn flokk. Þar eru skiptar skoðanir í þessum efnum, en þetta eru sjónarmið sem ég held að sé réttmætt að heyrist hér á Alþingi og vil ekkert liggja á þeim. ( EKJ: Þú talar einn fyrir flokkinn hér. Þú hlýtur að tala fyrir hann úr því að hinir mæta ekki.) Hv. þm. Eyjólfur Konráð. Ég tala hér sem alþýðubandalagsmaður. (Gripið fram í.) Já, ég geri það sem þingmaður Alþb.
En nú ætla ég að víkja mér, virðulegur forseti, að því sem ég ætla að gera að síðasta þætti í mínu máli, en það er um mannréttindamál og í tengslum við það málefni Palestínumanna.
Í skýrslu hæstv. utanrrh. er farið á allnokkrum
stöðum yfir ýmsa þætti mannréttindamála og ég tek undir þær áherslur sem þar er að finna í þessum efnum. Þó ég sé ekki að vega og meta þar hvert orð, þá tek ég undir þær áherslur sem þar eru fram settar og undir það að við hér á Alþingi Íslendinga og Íslendingar í sínu starfi á alþjóðavettvangi eiga hvarvetna að reisa kröfuna um fyllstu mannréttindi, að mannréttindi séu virt og staðið sé við alþjóðasamninga að því leyti. Það er t.d. ósköp upp á að horfa, og hefur auðvitað verið lengi, í sambandi við málefni þjóða í Austur-Evrópu hvernig mannréttindamálum hefur þar verið fyrir komið, hvaða skrípamynd hefur ríkt þar í þeim efnum. Og þó að þar horfi til betri vegar núna seinustu árin, þá fer því víðs fjarri að þau mál sé þar í því horfi sem við teljum frambærilegt, hvað þá fyrirmynd og það er fullkomlega réttmætt að reisa kröfur á alþjóðavettvangi um það að þar verði úr bætt.
Það er t.d. ömurlegt upp á að horfa hvernig staða mála er í því ríki Rúmeníu, tiltölulega gjöfulu landi að ég hefði haldið, þar sem traðkað hefur verið á mannréttindum með þeim hætti sem menn hafa fengið nokkrar fregnir um og réttmætt er að benda á það hér bæði í skýrslu og hér í umræðum á Alþingi og gjarnan mættu koma hér fram þingmál því máli til stuðnings og víðar. En það eru fleiri svæði í heiminum þar sem á skortir og við megum ekki gleyma.
Hæstv. utanrrh. víkur að málefnum Mið- og Suður-Ameríku, rómönsku Ameríku í alllöngum kafla í sinni skýrslu og segir þar margt réttmætt varðandi stöðu mála. En mér finnst samt á skorta að þar séu mannréttindamálin tekin til umræðu og lýst á þá þætti á þann hátt sem ástæða væri til, á það hvernig fasistastjórnirnar og herstjórnirnar í ýmsum löndum rómönsku Ameríku traðka á mannréttindum. Í skjóli hverra? Þar eru það ekki Rússar. Þeir eru víst farnir að verða forgöngumenn fyrir mannréttindum að sagt er sums staðar í Austur-Evrópu seinni árin. (Gripið fram í.) Það eru ekki Rússar. En ætli þá sé ekki að finna öfluga aðila þar norðanvert í álfu sem við teljum hér margir hverjir okkar fremstu bandamenn, Bandaríki Norður-Ameríku, sem eru bakhjarlinn á bak við herforingjastjórnirnar sem halda fólkinu í fangelsum, pólitískum föngum svo hundruðum skiptir fyrir utan alla þá sem hverfa sporlaust.
Eigum við ekki að reyna að hafa samræmi í málflutningi okkar hér á Alþingi og kröfum okkar að þessu leyti? Ég sakna þess að það sé gert. Það eru hafðir út undan heilir heimshlutar þar sem þessi mál eru í mjög slæmu horfi. Þau lönd sem hafa verið að reyna að reisa sig með sjálfstæðum hætti undan oki amerísks imperialisma, amerískrar heimsvaldastefnu sem svo mætti kalla, þar sem auðhringarnir eru hinn raunverulegi drottnunarvaldur og njóta stuðnings erlendrar þjónustu til þess að tryggja völd sín og áhrif, ætli við þekkjum ekki dæmin? Ætli menn séu búnir að gleyma Chile og fleiri ríkjum af því tagi.
En svo aðeins Palestínu í þessu samhengi, virðulegur forseti. Fyrir þinginu liggur till. til þál. um
málefni um deilur Ísraels og Palestínumanna. Sú tillaga hefur verið rædd í utanrmn. en ekki enn afgreidd, en að því er stefnt að reyna að ganga frá þeirri tillögu hér til þingsins fljótlega og ég vænti að svo verði. Þar er verið að fjalla um mál sem hlýtur að brenna meira en flest
önnur efni á heimsbyggðinni, þeim sem fylgjast með og vilja reyna að vera stuðningsmenn mannréttinda og friðarberar í heiminum. Ég ætla ekki að fara að hefja langt mál. Það er þarflaust að draga upp mynd hér af því sem þar hefur verið að gerast. Við erum minnt á það daglega í fréttum. Núna um helgina 34 særðir, nokkrir fallnir, 34 særðir, 13 börn, fjögurra, sex, átta ára. Börn sem höfðu leyft sér að taka upp steina, að sagt var, gegn byssustingjum. Þetta eru fregnirnar sem við fáum hér daglega í gegnum fjölmiðlana um það sem er að gerast á herteknum svæðum. Við þurfum að muna eftir þessu fólki, þessu landlausa fólki sem þarna er að berjast fyrir sínum frumréttindum. Við eigum að minnast þeirra hér á Alþingi Íslendinga og álykta um málefni þeirra áður en þinginu lýkur. Ég treysti því að svo verði.
Ísland hefur sem betur fer tekið þátt í að styðja þessi efni á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í ýmsum ályktunum, þó ekki alltaf sem skyldi, en t.d. í ályktunum núna á yfirstandandi þingi, t.d. ályktun nr. 43/176 sem fjallar um málefni Palestínumanna og er samþykkt allsherjarþingsins um málefni Palestínu og Mið-Austurlanda. Þessa ályktun studdi Ísland á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, sem betur fer, og þar er að finna áherslur ekki ósvipaðar þeim sem við mælum fyrir sem berum fram þáltill. sem utanrmn. nú fjallar um, þar á meðal fyrir þátttöku PLO á jafnréttisgrundvelli í þeirri alþjóðlegu friðarráðstefnu sem boða skal til samkvæmt þessari ályktun og einnig er gert ráð fyrir í þáltill. sem ég tengi þessari umræðu hér. Þar er einnig vitnað til, auk ályktana öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna nr. 242 og 338, til lögmæts þjóðarréttar palestínsku þjóðarinnar. Og þar er einnig vitnað til öryggis, að tryggt verði öryggi allra ríkja, einnig þeirra sem talað er um í ályktun 181 frá 29. nóvember 1947, innan öruggra og þjóðréttarlega viðurkenndra landamæra. Þetta er allt efni sem við erum að biðja um að Alþingi Íslendinga álykti um. Og Ísland hefur fyrir tilstuðlan hæstv. utanrrh. stutt þessa ályktun á vettvangi Sameinuðu þjóðanna svo ég treysti því að með þessari tillögu sem þarna liggur fyrir og fleiri tillögum sem um er að ræða, t.d. tillögu nr. 43/58/B þar sem einnig er vikið að þessum málum og stöðu Palestínumanna með þeim hætti sem ég teldi vera sóma að fyrir Alþingi að taka undir.
Ísland er eitt Norðurlanda, virðulegur forseti, og á Norðurlandavettvangi fer fram mikið starf sem ég er þátttakandi í sem aðili að Norðurlandaráði og af því starfi mætti margt læra. Þar reyna íslenskir alþingismenn að leggja sitt af mörkum, hver á sinn hátt. Sumir staldra stutt við á þeim vettvangi, aðrir lengur. Virðulegur forseti Sþ., aðalforseti, hefur átt þar sæti. Ég tók við af henni í Norðurlandaráði. Ég vil nefna það hér að hún flutti þar mál sem fengu
framgang og undirtektir og er unnið að á þeim vettvangi, tillögu sem varð tilefni áætlunar um verndun hafsins gegn mengun og var fjallað um á aukaþinginu í Helsingör í nóvember sl. og sérstök áætlun sem er staðfest af Norðurlandaráði um það efni. Og ég leyfi mér að nefna það mál sem hún flutti sem varðar þjóðréttarsamning Norðurlanda, mál sem fékk mjög hraða afgreiðslu á þeim vettvangi og auk þess stuðning við athuganir og rannsóknir á svonefndum Suðurlandsskjálfta. Þetta leyfi ég mér að nefna hér sem árangur af starfi sem núverandi forseti Sþ. stóð fyrir á vettvangi Norðurlandaráðs. Og ef ég færi að tíunda afrek annarra á þeim vettvangi, þá gæti sá listi orðið nokkuð langur, sem betur fer, virðulegur forseti, en ég ætla ekki að lengja hann hér í þessari annarri ræðu minni hér við þessa umræðu.
Ég vil svo aðeins segja það að lokum í máli mínu hér að ég vænti þess að í framhaldi af þessari umræðu og eftir að hafa heyrt í mönnum hér taki hæstv. utanrrh. meðferð íslenskra utanríkismála til nokkurs endurmats í ljósi þess sem er að gerast á alþjóðavettvangi og í ljósi þeirra óska sem eru úti í samfélaginu á Íslandi. Þær óskir eru með allt öðrum hætti en þau viðhorf sem er verið að tengja hér hernaðarbandalögum og hernaðarumsvifum og menn eru að telja sér trú um að tengist grundvallarhagsmunum Íslendinga, en að mínu mati er það um margt á miklum misskilningi byggt.
Ég vænti þess að það gildi ekki aðeins um hæstv. utanrrh., þó að það skipti hvað mestu á meðan hann gegnir því þýðingarmikla starfi, að hann hlýði á þessar raddir, hann hlýði á þíðuna en ekki á frostbrestina í steingervingum fyrri tíðar. Þeir mega molna niður í þíðunni, þeir bráðna og þeir hverfa. En það er jarðvegurinn sem þarf að spretta upp úr um leið og árangur næst á sviði afvopnunarmála og í að skapa friðvænlegri heim, það er sá jarðvegur sem okkur ber að rækta og yrkja. Það verður vonandi hlutverk okkar Íslendinga að leggja þar lóð okkar á vogarskálir í framtíðinni og það fyrr en seinna með allt öðrum hætti heldur en verið hefur á þeim 44--45 árum sem lýðveldi hefur verið á Íslandi. Sú er mín ósk til þessarar ríkisstjórnar og þeirra sem á eftir fylgja.