Guðrún Agnarsdóttir:
Hæstv. forseti. Aðeins örfá orð til að styðja þetta mál. Hér er tvímælalaust um brýnt mál að ræða sem Alþingi á að leggja fé til og hefði reyndar mátt sjá sóma sinn í að sinna fyrr. Þær eru nefnilega ekki svo margar, gömlu og sögufrægu byggingarnar sem við Íslendingar höfum hlotið að arfi frá liðnum kynslóðum. Kostnaði við þessa sjálfsögðu viðgerð verður að halda í hófi og fylgjast með því að hann fari ekki úr böndum þó að öllum eðlilegum kröfum sé sinnt. Ég vil leggja ríka áherslu á það að kostnaður við þessa sjálfsögðu viðgerð sé ekki tengdur persónu forsetans eða embætti eins og óheppilega var gert í fjölmiðlum þegar þetta mál kom fyrst upp og almenningi var gert ljóst hversu illa Bessastaðastofa er í raun komin. Þetta mál er í raun ekki hluti af daglegum rekstri forsetaembættisins sem slíks. En ég vil að lokum leggja áherslu á stuðning okkar kvennalistakvenna við þetta mál.