Endurbætur forsetasetursins á Bessastöðum
Miðvikudaginn 26. apríl 1989

     Eiður Guðnason:
    Herra forseti. Í framhaldi af þeim orðum sem hér hafa fallið vil ég aðeins lýsa þeirri skoðun minni að hér sé hreyft hinu þarfasta máli og miklu nauðsynjamáli og ég mun beita mér fyrir því að það fái greiðan gang í gegnum hv. fjh.- og viðskn. þessarar deildar.