Frsm. allshn. (Jón Kristjánsson):
Herra forseti. Ég mæli fyrir áliti allshn. um frv. til laga um heimild fyrir ríkisstjórnina til að staðfesta samninga um réttarstöðu skrifstofu ráðherranefndar Norðurlanda og stjórnarnefndar Norðurlandaráðs og um réttarstöðu samnorrænna stofnana.
Þessir samningar voru undirritaðir í Osló 13. maí 1987 og í Stokkhólmi 9. des. 1988 eins og fram kemur í 1. gr. frv.
Nefndin varð sammála um að ekki væri ástæða til þess að tefja það að veita ríkisstjórninni þessar heimildir og leggur til að frv. verði samþykkt óbreytt. Undir nál. rita Jón Kristjánsson, Guðni Ágústsson, Kristín Halldórsdóttir, Geir Gunnarsson, Kristinn Pétursson og Friðjón Þórðarson.