Sparisjóðir
Miðvikudaginn 26. apríl 1989

     Einar Kr. Guðfinnsson:
    Herra forseti. Ég vil byrja á því að fagna mjög yfirlýsingu hæstv. viðskrh. sem hann flutti okkur rétt í þessu, að með þessu frv. að lögum um viðskiptabanka fælist ekki breyting á hlutverki bankaráðanna. Hér er náttúrlega um að ræða mjög þýðingarmikla yfirlýsingu sem ég hygg að komi ýmsum þeim sem harðast hafi barist fyrir þessari breytingu sem hér getur að líta mjög á óvart. Ég hygg að það hafi einmitt verið meginhugsunin hjá mörgum þeim sem hafa unnið að þessum breytingum, talað fyrir þeim hér á hinu háa Alþingi og úti í þjóðfélaginu, að það væri verulegur ávinningur að því að breyta svo skilgreiningu á hlutverki bankaráðanna að þau hefðu með höndum annað hlutverk og meira heldur en þeim er ætlað í dag, að vera mótandi um meginstefnu bankans. Hér liggur sem sagt fyrir skilningur bankamálaráðherra, hæstv. viðskrh., á þessu atriði og sá skilningur er í andstöðu við þann skilning sem Samband íslenskra viðskiptabanka lagði í þetta frv. ( Viðskrh.: Réttara væri að segja Samband íslenskra viðskiptabankastjóra.) Já, ég kýs að uppnefna sambandið ekki eins og hæstv. viðskrh. gerir, ( Viðskrh.: Það er réttnefni.) en hann er auðvitað frjáls að því.
    Kjarni málsins er sá að viðskiptabankarnir eru þessarar skoðunar, hafa túlkað málið þannig. Þetta kannski undirstrikar enn það sem ég sagði í upphafi ræðu minnar hér áðan um viðskiptabankana að nauðsynlegt hefði verið að þetta frv. væri samið með vitund og að einhverju leyti í samráði við Samband viðskiptabankanna. Engum dettur annað í hug en að auðvitað eigi að taka hina pólitísku ákvörðun á eðlilegum vettvangi, en hitt hefði verið nauðsynlegt að þeir aðilar sem gleggst vita um málin og þurfa um þessi mál að fjalla hefðu verið hafðir með í ráðum þó að ákvörðunina hefði að lokum átt að taka hjá ráðherranum og löggjafarsamkomunni. Það hefði a.m.k. getað girt fyrir þann sérkennilega misskilning sem nú virðist vera kominn upp og þá mismunandi túlkun sem er á frv. í huga viðskrh. og í hugum Sambands ísl. viðskiptabanka sem svo heita að réttu.
    Varðandi annað atriði sem hæstv. viðskrh. vék að og sneri að meintum hagsmunaárekstrum sem gætu komið upp í litlum byggðarlögum. Ég held að það geri sér allir grein fyrir því að það er alls ekkert einfalt mál að semja gallalausar reglur um þessi atriði og við sem skipum 1. minni hl. höfum lagt áherslu á það að vitaskuld þurfi að koma í veg fyrir slíkan hagsmunaárekstur. En ég held að það þjóni ekki þeim megintilgangi laganna sem hæstv. viðskrh. vék að, að búa þannig um hnútana að þessar innlánsstofnanir, sem gegna svo mikilvægu hlutverki í smæstu byggðarlögunum, geti ekki einu sinni endurnýjað sín veigamestu og nauðsynlegustu tæki vegna svo strangra ákvæða um eignfjárhlutfall sem í lögunum er gert ráð fyrir. Það var þess vegna býsna þýðingarmikið að fram kom í máli viðskrh. að hann teldi að túlka ætti þessi atriði nokkuð rýmilega. Sú heimild sem honum er veitt í frv. til þess að víkja frá þessari almennu

reglu er auðvitað mjög grundvallandi, skiptir máli, en þá skiptir líka miklu máli hvernig farið er með hana. Ég vona að þessi yfirlýsing ráðherrans sé á einhvern hátt stefnumótandi fyrir þá framkvæmd sem verður á þessu ákvæði frv. ef að lögum verður.