Kristín Einarsdóttir:
Virðulegur forseti. Það kann að virðast nokkuð djarft af mér sem aðeins hef setið á tveim þingum að gerast meðflm. að því frv. til stjórnarskipunarlaga sem hér er til umræðu. Ég hef hins vegar sannfæringu fyrir því að hér er á ferðinni gott og gagnlegt mál þótt um það hljóti að vera skiptar skoðanir. Það á við um minn þingflokk, Kvennalistann, sem ekki hefur tekið afstöðu til frv. Sjálf gæti ég hugsað mér aðra skipan varðandi einstaka þætti málsins og ég er viss um að enginn einn þingmaður mundi skrifa sama frv. um breytingu á starfsháttum Alþingis á nákvæmlega sama hátt.
Eins og fram kemur í grg. hefur oft komið fram áhugi á að breyta málsmeðferð og starfsháttum Alþingis frá því sem nú er, m.a. í frv. sem dr. Gunnar Thoroddsen, fyrrv. forsrh., flutti sem afrakstur af starfi stjórnarskrárnefndar veturinn 1982--1983. Það varð hins vegar ekki útrætt og enn er að störfum nefnd sem vinnur að endurskoðun stjórnarskrárinnar og þá m.a. á þeim þáttum sem frv. þetta tekur til. Eins og þegar hefur komið fram í máli 1. flm. felst ekki nein gagnrýni af okkar hálfu á störf stjórnarskrárnefndar. Von okkar er sú að flutningur málsins geti fremur orðið til að auðvelda stjórnarskrárnefnd störf með því að skapa umræðu um þær hugmyndir sem hér koma fram því að ekki er stefnt að því að lögfesta þær um sinn. Því má segja að frv. sé hér komið fram fyrst og fremst til kynningar og umræðu.
Mér finnst kjarni þeirra hugmynda sem settar eru fram í frv. koma fram í hinni stuttorðu 6. gr.:
,,Alþingi starfar í einni málstofu.``
Sú breyting frá núverandi deildaskipan felur í sér mikla einföldun og gefur m.a. kost á að fækka fastanefndum þingsins um nærfellt helming. Þannig geta þingmenn einbeitt sér að vinnu í tveimur nefndum í stað þriggja, fjögurra eða jafnvel fleiri sem þeir eru knúðir til að starfa í vegna deildaskiptingarinnar. Fastanefndirnar eiga samkvæmt meðfylgjandi drögum að lögum um þingsköp að starfa allt árið í stað þess að þær starfa nú aðeins á þingtíma. Í þessu felst, ef að lögum verður, grundvallarbreyting á vinnulagi hér í þinginu og ég hef trú á að hún yrði til mikilla bóta, mundi m.a. skapa mun meiri festu í starfsháttum.
Núverandi deildaskipting er gamall arfur og byggir á allt öðrum forsendum en nú ríkja. Þetta var mönnum ljóst fyrir löngu eins og fram kemur í því að rætt var um að koma þinginu í eina málstofu strax árið 1934, þ.e. fyrir meira en hálfri öld. En tregðulögmálið er lífseigt hér sem annars staðar og vissulega má færa fram gild sjónarmið til stuðnings núverandi skipan. Það sem mér hefur þótt einna ankannalegast við deildaskiptinguna er hinn ójafni fjöldi þingmanna í efri og neðri deild. Af því leiðir m.a. að mál sem fram eru lögð í efri deild fá í fyrstu aðeins skoðun þriðjungs þingmanna. Eins og allir þekkja sem hér starfa fá frv. að jafnaði meiri umræðu og athugun í nefnd í fyrri deild og þetta veitir nokkuð ójafnan aðgang að meðferð mála, ekki síst í þeim
lotum sem einkenna um of starfshætti þingsins. Á sama tíma verður meira álag á þingmenn í efri deild vegna nefndastarfa og kemur það ekki síst niður á fámennum þingflokkum. Með því að fækka fastanefndum þingsins verður auðveldara að koma við bættri aðstöðu fyrir þær eins og mikið hefur verið rætt um að gera þyrfti. Mér finnst eitt brýnasta verkefni til úrbóta hér í þinginu vera að gera störf þingnefndanna markvissari, m.a. með því að þær starfi allt árið og hafi frumkvæði að því að taka upp mál til umræðu og athugana á sínum vegum.
Eitt af þeim álitamálum sem eru í þessu frv. er tillagan í h-lið 7. gr. um sérstaka stjórnsýslunefnd. Ég er ekki sannfærð um að við flm. höfum hitt þar naglann á höfuðið en það stafar m.a. af því að á litlu er að byggja varðandi reynslu af þeim rannsóknarnefndum sem heimild er fyrir samkvæmt gildandi lögum.
Ég vænti þess að nokkur almennur stuðningur sé við þau ákvæði frv. að setja meiri skorður en nú er við útgáfu bráðabirgðalaga. Slíkt er a.m.k. eðlilegt frá sjónarhóli þingsins og þörfin fyrir slíkt ákvæði hlýtur að vera minni frá sjónarhóli ríkisstjórna þegar litið er til þess ákvæðis frv. að kalla Alþingi saman eigi síðar en fjórum mánuðum eftir þingrof og þrem vikum eftir skipun nýrrar ríkisstjórnar.
Svipuðu máli gegnir um þær takmarkanir sem tillaga er gerð um að setja varðandi aukafjárveitingar. Í því felst aukið aðhald Alþingis að framkvæmdarvaldinu og ekki mun veita af.
Veigamikil breyting felst í því ákvæði að ráðherra í ríkisstjórn sé ekki um leið þingmaður heldur taki varamaður sæti hans ef hann er valinn úr hópi þingmanna. Við núverandi skipan hafa ráðherrar í raun ekki aðstöðu til að sinna þingskyldu nema að mjög takmörkuðu leyti, a.m.k. ef marka má þá mynd sem hér blasir við daglega. Það er ekki gert ráð fyrir að þeir taki þátt í störfum þingnefnda og í reynd er ekki gerð sama krafa til þeirra um viðveru eins og til annarra þingmanna. Með þessari breytingu skapast einnig skýrari skil á milli löggjafar- og framkvæmdarvalds sem ég er hlynnt og fram kemur einnig á fleiri stöðum í þessu frv.
Í hugmyndunum um breytingar á lögum um þingsköp eru helstu efnisbreytingar varðandi stjórn þingsins, sem m.a. leiðir af afnámi deildaskiptingar, og reglur til að gefa möguleika á fljótari afgreiðslu stjórnarfrv. með heimildum um skertan ræðutíma þingmanna skv. 36. gr. þessara draga. Ég tel að tillögurnar um svokallaða forsætisnefnd geti orðið til bóta en ljóst er að mikið verður lagt á aðalforseta þingsins í einni málstofu. Aðrar hugmyndir sem fram hafa komið og hv. þm. Kjartan Jóhannsson reifaði hér er alveg sjálfsagt að taka til athugunar.
Hugmyndin um sérstaka hraðbraut fyrir stjfrv. með skertum ræðutíma er mér hins vegar ekki að skapi og ég tel hana raunar varhugaverða. Sama má segja um þær hugmyndir sem síðasti ræðumaður, hv. þm. Kjartan Jóhannsson, kom með hér áðan. Ég tel það mjög mikið vafamál að skerða verulega ræðutíma
þingmanna og málfrelsi þar með, þannig að þetta tel ég að þurfi að taka til athugunar. Hins vegar er æskilegt að taka fyrr en seinna upp ákvæði 37. gr., um stuttar athugasemdir við einstakar ræður strax að loknum flutningi þeirra. Það mundi lífga upp á þinghaldið og að líkindum ýta undir viðveru þingmanna undir umræðum.
Eins og ég hef nefnt dæmi um ber ekki að líta á þetta frv. sem fullkomna smíð enda á þingið sjálft eftir að segja sitt orð og er það raunar eitt af markmiðum flm. að ýta undir umræðu um þessi efni, bæði hér í þinginu og annars staðar.
Ég hef trú á að sá rammi sem hér er gert ráð fyrir um þinghaldið yrði til að auðvelda almenningi skilning á störfum þingsins og greiða götu fyrir lýðræðislegum samskiptum löggjafarsamkomunnar og fólksins sem við eigum að starfa fyrir.