Stefán Valgeirsson:
Herra forseti. Ég heyrði það í fréttum hér á dögunum að á leiðinni væri frv. til stjórnarskipunarlaga og þar sem þetta er höfuðmál þings og þjóðar þá fagnaði ég því mjög. En ég varð fyrir mjög miklum vonbrigðum þegar ég sá þetta frv. vegna þess að það kemur ekki inn á neitt annað en stjórn og störf Alþingis. En áður en ég kem betur að því ætla ég aðeins að koma inn á tvö atriði sem hafa komið fram í ræðum manna hér.
Hv. þm. Ólafur G. Einarsson vill stytta alla fresti meira en er í því frv. sem hér er til umræðu. Frá sjónarhóli þéttbýlismannsins væri þetta kannski framkvæmanlegt en frá sjónarhóli og af reynslu þeirra sem eru fulltrúar strjálbýlis og hinna stóru landsvæða er áreiðanlega þessi frestur sem felst í frv. --- það má ekki lengra ganga.
Ég vil aðeins koma að einu atriði sem hæstv. fyrsti forseti deildarinnar kom inn á og það er um að takmarka málfrelsi. Ef ég hef skilið hann rétt þá ræddi hann um að það yrði gert með þeim hætti að þegar ákveðinn ræðutími væri búinn þá fengju hinir sem enn þá væru á mælendaskrá ekki orðið. Ég kann ekki við slíkar reglur. Það er allt annað mál að hafa ákveðin tímamörk á ræðumann, ég gæti vel fallist á það, en að taka málfrelsi af þingmönnum jafnvel þó að þeir hafi ekki beðið um orðið fyrsti, annar, þriðji eða fjórði maður, það nær engri átt. Líka vegna þess að umræðan getur snúist þannig að þó að menn hafi ekki ætlað að biðja um orðið þá sjái menn ástæðu til þess að taka til máls.
Ég vil koma aðeins inn á það, þó að ég sé alveg með því að ráðherrar séu ekki þingmenn samtímis, ef svona frv. ætti að verða að lögum t.d. eftir næstu kosningar, ef það ætti að samþykkja það fyrir kosningar og síðan að staðfesta það eftir kosningar, að þá held ég að það þurfi eitthvað að huga að húsakynnum Alþingis.
En út af þeim orðum sem ég lét falla áðan, um vonbrigði mín í sambandi við hvernig þetta frv. er ófullkomið miðað við þörfina, þá vil ég vitna í bréf frá umboðsmanni Alþingis, Gauki Jörundssyni. Hann skrifar 29. des. sl.:
,,Forsetar Alþingis. Á grundvelli 11. gr. laga nr. 13/1987 um umboðsmann Alþingis tel ég ástæðu til að vekja athygli á ófullkomnum ákvæðum til verndar mannréttindum í íslenskum lögum.
Ég bendi á, að í íslensku stjórnarskrána vantar almenn ákvæði um veigamikil mannréttindi. Sem dæmi má nefna skoðanafrelsi, jafnrétti, bann við afturvirkum refsilögum, vernd fjölskyldulífs og rétt til réttlátrar málsmeðferðar fyrir dómi. Ákvæði íslensku stjórnarskrárinnar um félagsleg mannréttindi eru og fábrotin.
Mörg mannréttindaákvæði íslensku stjórnarskrárinnar eru ófullkomin af ýmsum ástæðum. Ákvæði 63. og 64. gr. um trúfrelsi, 66. gr. um friðhelgi heimilis, 72. gr. um prentfrelsi og 73. gr. um félagafrelsi hefta ýmist í engu eða að takmörkuðu leyti vald löggjafans. Sum mannréttindaákvæði ganga
skammt efni sínu samkvæmt. Ákvæði 72. gr. nær þannig aðeins til prentfrelsis en eigi til tjáningarfrelsis almennt. 65. gr. fjallar fyrst og fremst um handtöku, sem er liður í rannsókn refsimála, en frelsi og réttaröryggi almennt nýtur þar ekki verndar. 66. gr. verndar ekki einkalíf manna yfirleitt, heldur takmarkast við ákveðna þætti þess.
Ég vísa einnig til þess, að Ísland er aðili þýðingarmikilla alþjóðasamninga um mannréttindi. Ég nefni hér Evrópuráðssamninginn um verndun mannréttinda og mannfrelsis (Mannréttindasáttmála Evrópu) frá 4. nóv. 1950, ásamt síðari viðaukum, alþjóðasamning um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi (Mannréttindasáttmála Sameinuðu þjóðanna) frá 16. des. 1966, Félagsmálasáttmála Evrópu frá 18. okt. 1961 og alþjóðasamning (Sameinuðu þjóðanna) um efnahagsleg, félagsleg og menningarleg réttindi frá 16. des. 1966. Aðstaðan er hér sú, að íslensk lög ganga a.m.k. að ýmsu leyti skemmra í vernd mannréttinda en þessir sáttmálar. Getur þetta valdið vanda í lagaframkvæmd hér á landi og jafnframt orðið til þess, að íslenska ríkið verði dregið til ábyrgðar fyrir þeim alþjóðastofnunum, sem ætlað er að framfylgja nefndum mannréttindasamningum.
Úrbætur í ofangreindu efni virðast mér einkum geta orðið með tvennum hætti. Fyrst er að nefna endurskoðun mannréttindaákvæða íslensku stjórnarskrárinnar. Legg ég áherslu á, að endurskoðun stjórnarskrárinnar er brýn einnig af öðrum ástæðum, sem ég rek ekki frekar að þessu sinni. Skoðun mín er sú, að setning nýrrar stjórnarskrár hafi dregist úr hófi, að frátöldum breytingum, er varða kosningar til Alþingis.
Ég tel einnig, að mjög kæmi til greina, að umræddir mannréttindasáttmálar eða hlutar þeirra verði teknir í íslensk lög. Þar rísa að vísu ýmis álitamál, er að sumu leyti tengjast annarri víðtækari spurningu um það, hvernig háttað sé tengslum íslensks réttar og alþjóðasamninga, sem Ísland er aðili að, og hvaða stefnu beri að móta á því sviði. Vísa ég um það nánar til meðfylgjandi greinargerðar Stefáns Más Stefánssonar prófessors, sem hann hefur samið á vegum embættis míns.
Á árinu 1989 verður víða minnst merks áfanga í sögu mannréttinda. Að mínum
dómi ætti vel við, að ríkisstjórn og Alþingi mörkuðu á því ári þáttaskil, að því er varðar vernd mannréttinda hér á landi.``
Svo kemur hér frv. um breytingu á stjórnarskrá þrátt fyrir þessar ábendingar umboðsmanns Alþingis. Og mér er spurn: Það er ekki langt síðan embætti um umboðsmann Alþingis var samþykkt hér á hinu háa Alþingi. Væri nú ekki rétt að efla það embætti í stað þess að fara að kjósa sérstaka nefnd í þeim tilgangi --- eins og segir í 42. gr., með leyfi forseta:
,,Alþingi kýs stjórnsýslunefnd til að rannsaka mikilvæg mál er almenning varða. Nefndin ákveður sjálf hvaða mál hún rannsakar en jafnframt getur Alþingi falið henni að rannsaka mál er það tiltekur. Nefndin hefur rétt til að heimta skýrslur, munnlegar
og skriflegar, af opinberum stofnunum, starfsmönnum, einstökum samtökum eða fyrirtækjum og einstaklingum.``
Ég man ekki betur en að þetta sé hlutverk umboðsmanns Alþingis ef það er skoðað og ég held að umboðsmaður Alþingis sé manna færastur til þess að verða við óskum sem koma frá almenningi og frá Alþingi.
Þó að margt mætti ræða frekar um þetta mál þá ætla ég að láta máli mínu lokið en vil skora á Alþingi og ríkisstjórn að láta nú verða af því að reyna að koma hér fyrir Alþingi frv. til stjórnarskipunarlaga sem felur í sér þau ákvæði sem umboðsmaður Alþingis hefur bent á og önnur ákvæði sem aðkallandi er að setja í stjórnarskrána.