Almennar stjórnmálaumræður
Fimmtudaginn 27. apríl 1989

     Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Umræðan fer þannig fram að hver þingflokkur fær til umráða hálfa klukkustund. Umræður verða tvær, 20 mínútur í fyrri umferð og 10 mínútur í síðari. Röð flokkanna verður þessi í báðum umferðum: Sjálfstfl., Framsfl., Kvennalisti, Alþfl., Borgaraflokkur, Alþb. og Samtök frjálslyndra hægri manna. Stefán Valgeirsson, 6. þm. Norðurl. e., talar síðastur í fyrri umferð.
    Ræðumenn flokkanna verða fyrir Sjálfstfl.: Ólafur G. Einarsson, 2. þm. Reykn., Pálmi Jónsson, 2. þm. Norðurl. v., og Birgir Ísl. Gunnarsson, 2. þm. Reykv., í fyrri umferð en Þorsteinn Pálsson, 1. þm. Suðurl., í þeirri síðari. Af hálfu Framsfl. talar Steingrímur Hermannsson forsrh. í fyrri umferð og Jón Kristjánsson, 3. þm. Austurl., í seinni. Ræðumenn Kvennalista verða í fyrri umferð Kristín Halldórsdóttir, 10. þm. Reykn., og Danfríður Skarphéðinsdóttir, 6. þm. Vesturl., en Guðrún Agnarsdóttir, 6. þm. Reykv., í síðari. Af hálfu Alþfl. tala Jón Baldvin Hannibalsson utanrrh. og Karl Steinar Guðnason, 9. þm. Reykn., í fyrri umferð og Árni Gunnarsson, 3. þm. Norðurl. e., í seinni umferð. Fyrir Borgaraflokk tala Júlíus Sólnes, 7. þm. Reykn., og Guðmundur Ágústsson, 5. þm. Reykv., í fyrri umferð en Óli Þ. Guðbjartsson, 6. þm. Suðurl., í þeirri síðari. Ræðumenn Alþb. verða Ólafur Ragnar Grímsson fjmrh., Margrét Frímannsdóttir, 4. þm. Suðurl., og Steingrímur J. Sigfússon landbrh. í fyrri umferð en Svavar Gestsson menntmrh. í seinni. Af hálfu Samtaka frjálslyndra hægri manna tala í fyrri umferð Ingi Björn Albertsson, 5. þm. Vesturl., og Hreggviður Jónsson, 11. þm. Reykn., en Hreggviður Jónsson, 11. þm. Reykn., talar einnig í þeirri síðari.
    Hefst nú umræðan og tekur fyrstur til máls hv. 2. þm. Reykn. Ólafur G. Einarsson.