Almennar stjórnmálaumræður
Fimmtudaginn 27. apríl 1989

     Birgir Ísl. Gunnarsson:
    Virðulegi forseti. Góðir áheyrendur. Já, það er valt, veraldargengið. Það hefur ríkisstjórnin mátt sannreyna. Hún tók við völdum fyrir rúmu hálfu ári með mikinn byr í seglum, enda drupu loforð af hverju strái. Nú er allt breytt. Skoðanakannanir sýna að þetta er óvinsælasta ríkisstjórn sem hér hefur setið og eru engin dæmi um svo snögg umskipti á jafnskömmum tíma.
    En hvers vegna hefur þetta farið svona? Allar ríkisstjórnir þurfa að fást við erfið mál og grípa til óvinsælla ráðstafana en hafa samt ekki hrapað jafnlangt niður í almenningsálitinu. Skýringanna er því annars staðar að leita.
    Meginástæðan fyrir lágu gengi ríkisstjórnarinnar er sá mikli trúnaðarbrestur sem orðið hefur milli hennar og þjóðarinnar. Í nánast öllum málum hefur ríkisstjórnin í heild, einstakir flokkar og einstakir ráðherrar hegðað sér öðruvísi og framkvæmt annað en þeir höfðu talið fólki trú um að þeir mundu gera. Við skulum fara yfir nokkur dæmi um þetta.
    Ég sagði áðan að ríkisstjórnin hefði hafið göngu sína með miklum loforðum. Við stjórnarmyndun báru þeir það fyrir sig að engan tíma mætti missa til að koma atvinnuvegunum til bjargar. Nú eru liðnir sjö mánuðir. Allt hjakkar í sama farinu. Heilum atvinnugreinum er að blæða út, atvinnuleysi hefur haldið innreið sína og allt logar í kjaradeilum. Stóru orðin í upphafi hafa reynst marklaus, orðin tóm. Að tala er sérgrein ráðherranna. Að taka ákvarðanir og framkvæma er ekki þeirra sterka hlið. Þess vegna hefur þjóðin orðið fyrir miklum vonbrigðum. Trúnaðarbrestur hefur myndast.
    Tökum fleiri dæmi um orð og efndir. Nú standa yfir víðtæk verkföll, m.a. kennara í framhaldsskólum. Í rauninni hefur verið óvenjuhljótt um þessi verkföll. Í fyrri verkföllum höfum við séð næstum dag hvern mótmælafundi og mótmælagöngur hér í miðbænum. Fremstir í flokki hafa verið ýmsir þingmenn Alþb. Hver man ekki þá Ólaf Ragnar eða Svavar Gestsson standa á kössum eða í ræðustól í fararbroddi kennara eða annarra verkfallsmanna og steyta hnefa gegn fjandsamlegu ríkisvaldi eins og það hefur verið kallað? Nú eru þeir orðnir ríkisvaldið og þeir gerðu alveg eins og Albert, neituðu að greiða út laun fyrir fram til verkfallsmanna. Þá aðgerð kallaði Svavar Gestsson 1984 ruddaskap, löglausa launasviptingu, fádæma óbilgirni, gikkshátt í garð opinberra starfsmanna, svo að vitnað sé í orð Svavars Gestssonar frá 1984. Nú er hann sjálfur menntmrh. og aðili að sams konar aðgerð. Er nokkur furða þótt trúnaðarbrestur verði milli þjóðarinnar og þessara manna?
    Á þessum vetri hafa skattar á einstaklinga og fyrirtæki verið hækkaðir um 7 milljarða. Sú ráðstöfun hefur þrengt hag alls almennings og einnig þrengt hag fyrirtækja og dregið úr möguleikum þeirra til þess að bæta kjör fólksins. Meira að segja matarskatturinn er orðinn alveg heilagur. Ég var að fletta í þingtíðindum frá því í fyrra og lesa umræðurnar um matarskattinn.

Það vantaði ekki stóru orðin hjá þeim sem nú eru ráðherrar Alþb. Við erum andvíg matarskattinum, burt með matarskattinn, sögðu Svavar Gestsson og Steingrímur J. Sigfússon í þessum umræðum. Nú sitja þeir í ríkisstjórn, una glaðir við sitt og alls ekki má hrófla við matarskattinum. Ólafur Ragnar telur nefnilega ekki enn nóg að gert í hækkun skatta. Þessir menn hafa brugðist trúnaði fólksins.
    Lægst er gengi Alþfl. um þessar mundir. Skýringin á því er auðsæ. Hver man ekki formann Alþfl. fyrir síðustu kosningar? Hann hélt 100 fundi vítt og breitt um landið, fór um eins og frelsisriddarinn hugumstóri, boðaði aukna samkeppni í atvinnulífinu og nútímalega viðskiptahætti og sagði miðstýringu í efnahagslífinu stríð á hendur, ekki síst flóknu sjóðakerfi með pólitískri stjórnun. Flokkurinn fékk talsvert fylgi út á þennan frelsisboðskap. En hvað nú? Ástandinu verður best lýst með orðum leiðara Alþýðublaðsins fyrir nokkrum dögum. Þar sagði:
    ,,Meginvandi Alþfl. í dag er hins vegar það rót sem komist hefur á stefnumál flokksins með þátttöku í núv. ríkisstjórn. Alþfl. getur ekki verið sæmdur af stefnu til langs tíma sem miðar að aukinni miðstýringu, vaxandi sjóðakerfi og kerfisspillingu.``
    Þetta sagði Alþýðublaðið og bragð er að þá barnið finnur, enda hrynur fylgið af flokknum og forustumennirnir sitja fastir í faðmlögum við Alþb. og framsókn og þora ekki að hreyfa sig af ótta við kosningar. Það hefur orðið trúnaðarbrestur milli kjósenda og Alþfl.
    Virðulegi forseti. Góðir áheyrendur. Þetta kjörtímabil hefur einkennst af ringulreið og óvissu. Raunar lá það þegar fyrir eftir síðustu kosningar að svo mundi verða. Flokkunum hafði fjölgað og þeim fjölgar enn. Og Sjálfstfl. kom ekki nægilega sterkur út. Þess vegna er hver höndin upp á móti annarri í íslenskri pólitík í dag. Þessi ringulreið getur ekki staðið öllu lengur. Að því kemur fyrr en síðar að þjóðin fái í kosningum að stokka upp í stjórnmálunum. Skoðanakannanir sýna að Sjálfstfl. er að endurheimta sitt fyrra fylgi. Fólkið finnur að það vantar kjölfestu í íslensk stjórnmál.
    Sjálfstfl. hefur ávallt verið boðberi frjálslyndis. Við treystum fólkinu betur en pólitískum miðstýringarskrifstofum. Við setjum manngildið ofar
pólitískri ráðstjórn. Við bendum á að einmitt nú höfum við góðan samanburð á glundroðastjórn vinstri flokka í landsmálum annars vegar og sterkri, athafnasamri stjórn Sjálfstfl. í borgarstjórn Reykjavíkur hins vegar. Þar fer saman kraftur og athafnasemi, menningarlíf og mannúð í reynd. Þessi samanburður kallar á sterkari Sjálfstfl. í landsmálum. Það kemur að því fyrr en síðar að fólkið fái að kveða upp sinn dóm. Ég þakka þeim sem hlýddu. --- Góða nótt.