Almennar stjórnmálaumræður
Fimmtudaginn 27. apríl 1989

     Karl Steinar Guðnason:
    Frú forseti. Góðir Íslendingar. Nú á fyrstu sumardögum er stormasamt í stjórnmálunum. Ungur námsmaður, sem nýkominn er til landsins, vék sér að mér í gær og sagði: Hvað gengur eiginlega á? Það er allt öfugt frá því í fyrrasumar. Nú er Sjálfstfl. farinn að hamast gegn sköttum sem þeir samþykktu með glöðu geði í fyrra. Þá stóðu þeir á torgum og vörðu skattheimtu á matvæli og annað. Nú hafa þeir skipt um skoðun, bara við það að missa ráðherrastólana. Ég átti langt samtal við þennan unga mann. Honum blöskraði tvískinnungurinn og refshátturinn í íslenskum stjórnmálum. Hann ræddi við mig um erfiðleika móður sinnar sem hefur nú beðið í um tvö ár eftir húsnæðisláni, um vextina sem væru að sliga vini sína og um það hversu atvinna hefði dregist saman. Þetta er reyndar algengt umræðuefni í dag. Það er hins vegar athyglisvert hvað unga fólkið er næmt á samhengi atburðanna og að það gerir kröfu til þess að stjórnmálin fari ekki niður á það stig sem við blasir.
    Það eru liðnir örfáir mánuðir síðan Sjálfstfl. hrökklaðist frá ábyrgð og ríkisstjórnarþátttöku. Um það leyti var að koma í ljós hvað frjálshyggjuævintýri fyrri ára kosta atvinnulífið og alþýðuheimilin í landinu. Í fyrrahaust var atvinnulífið komið að fótum fram. Þau voru mörg varnaðarorðin sem komu frá þeim sem þekkja kviku atvinnulífsins. Þá var forusta ríkisstjórnar í höndum sjálfstæðismanna. Sú forusta reyndist átakanlega úrræðalaus. Þorsteinn Pálsson, þáv. forsrh., vísaði málum frá sér, skipaði svokallaða forstjóranefnd til að leysa málin. Þaðan komu tillögur og uppástungur en sami forsrh. tók ekkert mark á þeim og sat síðan eftir með spurningarmerki í augum.
    Sjálfstfl., sem eitt sinn var kenndur við kjölfestu í íslenskum stjórnmálum, hefur allra flokka harðast ákallað frelsi, frelsi í vaxtamálum, frelsi fyrir gráa markaðinn, frelsi þeirra ríku til að ráða málum án tillits til heildarinnar. Því miður var látið undan þessu sérkennilega frelsistali sem síðan hefur birst í stjórnlausu vaxtaokri á gráa markaðinum. Afleiðingarnar hafa birst í gjaldþroti heimilanna og atvinnufyrirtækja. Í reynd er ástandið í dag merki um skipbrot meginhugsjóna Sjálfstfl.
    Þegar Sjálfstfl. hafði gefist upp vegna úrræðaleysis var fyrst mögulegt að hefja varnarbaráttunna jafnframt uppbyggingarstarfi. Ríkisstjórnin hefur undanfarna mánuði verið að hreinsa til, hreinsa til í rústunum sem frjálshyggjuævintýrið skildi eftir sig. Það spyr margur hver árangurinn hafi orðið. Ekki skulum við gleyma því að strax í október spáði Vinnuveitendasambandið og helstu forustumenn Sjálfstfl. að um þetta leyti yrðu a.m.k. 10--15 þúsund manns atvinnulausir. Erfiðleikar í atvinnulífinu hafa vissulega orðið til þess að atvinnuleysi var meira í vetur en fyrr. Það er hins vegar mikill árangur að forða því að hrollvekjuspá sjálfstæðismanna rættist.
    Í vaxtamálum hefur einnig náðst árangur þótt enn sé fjármagnskostnaður allt of hár. Þegar Sjálfstfl. gafst upp voru nafnvextir yfir 40% en nú eru þeir um 25%. Þegar þeir gáfust upp voru raunvextir 10--12% en eru

nú 7--8%. Ríkisstjórnin og við stuðningsmenn hennar teljum alls ekki nóg að gert, en gleymum því ekki að vegna uppgjafar sjálfstæðismanna hefur tekist að stugga við frjálshyggjuófreskjunni. Það hefur nú fyrst tekist með löggjöf að koma höndum á gráa markaðinn. Það er staðreynd að undirstöðuatvinnuvegir okkar hafa barist í bökkum. Er það einkum vegna fjármagnskostnaðar og verðbólgu sem étið hefur eiginfjárstöðu fyrirtækjanna. Það er oft sagt að það búi tvær þjóðir í landinu. Sjaldan hefur sú fullyrðing átt betur við en nú. Það er eins og stórir hópar landsmanna skilji ekki hver er undirstaða lífskjaranna, skilji ekki að ef sjávarútvegur og fiskvinnsla skila ekki viðeigandi afrakstri eru lífskjörin í hættu. Þeir sem starfa í þessum greinum skynja vandann. Verkafólkið og sjómennirnir sem hafa orðið vitni að lokun fiskvinnsluhúsa og atvinnubrestinum gera sér grein fyrir vandanum.
    Skuggi kjaradeilna grúfir yfir þjóðfélaginu. BSRB hefur þegar lokið samningsgerð. Það má vissulega um það deila hvort það er eðlilegt að ríkið gangi á undan í samningagerð þegar undirstöðugreinarnar berjast í bökkum. Hins vegar ber að fagna því að kjarasamningar BSRB marka tímamót að því leyti að nú náðust fram ýmis merk ákvæði sem lúta að réttindabaráttu kvenna og launajöfnuði. Sá þáttur er ríkisstjórninni og forustu samtakanna til sóma.
    Alþfl. er þeirrar skoðunar að þegar kreppir að í þjóðfélaginu beri að sinna þeim fyrst og fremst sem lægst hafa launin. Alþýðusambandsfélögin hafa staðið í samningaviðræðum í margar vikur. Það er eðlilegt og sjálfsagt að atvinnurekendur gangi nú til samninga. Það verður aldrei þolað að verkafólk fái ekki sömu hækkanir og opinberir starfsmenn. Ríkisstjórnin verður að leggja sitt af mörkum til að liðka fyrir samningum. Annað kostar styrjöld, stríð við það fólk sem undirstöðuna skapar. Þá er það skoðun mín að verkalýðshreyfingin og ríkisvaldið eigi að taka höndum saman við að verja og bæta velferðarkerfið í landinu, gera kjarasáttmála til að styrkja lífskjörin.
    Átök um húsnæðismál hafa markað umræðu undanfarinna daga. Langflestir, og
þar á meðal ég sem var einn af þeim sem sömdu í kjarasamningum um núverandi húsnæðislánakerfi árið 1986, hafa lýst vonbrigðum sínum með það hvernig kerfið hefur virkað. Það var ekki hugsun okkar að öll þjóðin færi í biðröð eftir láni. Það var ásetningur okkar að framkalla stórkostlegar umbætur. Það tókst að vísu að beina gríðarlega miklu fjármagni í húsnæðislánakerfið en þrátt fyrir það er ástandið skelfilegt.
    Nú er beðið eftir láni í allt að 37 mánuði. Flest bendir til þess að óbreyttu að biðtími eftir lánum lengist á næstu tveimur árum. Nú er lánað til fólks óháð þörfum þess, efnahag og eignum. Þá eru lánsloforð seld með miklum afföllum. Alþfl. undir forustu Jóhönnu Sigurðardóttur hefur barist fyrir því að þessu oki verði létt af fólkinu í landinu. Húsbréfakerfið er tákn nýrra tíma, tákn nýrra og betri tíma í þessum efnum. Verði það samþykkt lækkar

útborgun í íbúðaviðskiptum úr 75% og niður í 35% af kaupverði. Kaupandi fær 65% íbúðarverðs að láni til allt að 25 ára. Afgreiðslutími lána styttist frá því sem nú er í 2--3 vikur, takið eftir, 2--3 vikur. Húsbréfin auðvelda og einfalda fasteignaviðskipti fólks á landsbyggðinni. Í húsbréfakerfinu felst félagslegur jöfnuður. Stjórnarandstæðingar hafa farið hamförum gegn þessum stórkostlegu úrbótum. Verstur er Sjálfstfl. Þeir fögnuðu þessum breytingum við 1. umr. á Alþingi, en nú hóta þeir að greiða atkvæði á móti.
    Andstæðingar Alþfl. hafa sagt málið illa undirbúið og hafa allt á hornum sér. Staðreyndin er sú að ekkert mál sem fram hefur komið á Alþingi í vetur hefur verið betur undirbúið. Það var heilt ár í smíðum. Að gerð þess komu allir stjórnmálaflokkar og aðilar vinnumarkaðarins. Fyrir liggja allar hugsanlegar upplýsingar sem málið varða. Það er skoðun mín að í framtíðinni verði afstaðan gegn þessu framfaramáli tekin sem dæmi um tvískinnung og pólitískan refshátt andstæðinganna. Ég á líka von á því að afstaða Kvennalistans til þessa máls verði metin um allt þjóðfélagið.
    Íslenskir aðalverktakar eru eitt stærsta atvinnufyrirtæki í landinu. Það hefur starfað í vernduðu umhverfi einokunar sem hefur valdið óánægju þeirra sem fyllilega valda því að taka að sér þau verkefni sem þeir framkvæma. Hjá þessu fyrirtæki starfar fjöldi fólks sem krefst atvinnuöryggis. Það er sjálfsögð krafa sem Alþfl. mun fylgja eftir. Utanrrh. hefur náð árangri í að breyta fyrirtækinu sem mun skapa jákvæða þróun á starfssvæðinu.
    Í umræðum um skýrslu utanrrh. í vikunni kom fram að Sjálfstfl. hefur skipt um skoðun í þessum málum sem öðrum. Nú boðar Sjálfstfl. að í verktöku á Keflavíkurflugvelli skuli ríkja lögmál frumskógarins þar sem frjálshyggjuófreskjan leikur lausum hala, þar sem hver undirbýður verk fyrir öðrum, verktakar koma og fara, starfsfólkið situr uppi atvinnulaust, atvinnuöryggið brestur. Ameríski herinn græðir, allir hinir tapa. Einokun verktakanna er tímaskekkja sem nú er verið að breyta. Ráð sjálfstæðismanna eru líka tímaskekkja Íslendingum til mikillar óþurftar.
    Okkur Íslendingum hættir til að sjá tilveruna í svörtu og hvítu. Sjólag hefur verið erfitt undanfarna mánuði en það er víst að fram undan er betri tíð. Svartnættisraus og bölsýni stjórnarandstöðunnar skaðar þjóðfélagið. Það dregur kjark úr fólki. Það hefur neikvæð áhrif á allt mannlíf. Ríkisstjórnin mun áfram beita sér fyrir heilbrigðu atvinnulífi. Það verður leitað á ný mið nýjunga og nýrra tækifæra. Það er verðugt verkefni að auka stóriðju í landinu til að treysta atvinnuöryggið. Í því sambandi er mikil nauðsyn að byggja nýtt álver og huga að nýjum virkjunum til að mæta þörfum framtíðarinnar í raforkuframleiðslu.
    Ríkisstjórnin hefur náð árangri, en það er mikið starf fram undan. Nú reynir á samstöðu þeirra flokka sem eru vinstra megin við miðju. Alþfl. og Alþb. hafa áratugi eldað grátt silfur. Það er mikil nauðsyn fyrir launafólk í landinu að liðsmenn þessara flokka lyfti hugum sínum ofar dægurþrasinu, myndi samstæða

heild sem verður í framtíðinni valkostur gegn afturhaldi og frjálshyggju. Þá mun takast að móta fylkingu sem hefur velferð heildarinnar í fyrirrúmi. Þá mun velferðarþjóðfélagið ná þeirri reisn sem jafnaðarmenn geta verið stoltir af. Hlutverk okkar jafnaðarmanna er að breyta hinu pólitíska litrófi þannig að félagshyggja verði ofar frjálshyggju þannig að traust lífskjör og jafnrétti verði ofar pólitískum refshætti eiginhagsmuna og misréttis.