Ingi Björn Albertsson:
Hæstv. forseti. Góðir áheyrendur. Nú þegar senn líður að lokum þessa þings er ekki óeðlilegt að litið sé yfir farinn veg og kannað hvernig til hefur tekist. Til þess að gera slíkt hlýtur að vera einfaldast að líta yfir loforðalista ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar og gera á honum snögga athugun, hvort staðið hafi verið við gefin loforð.
Það sjáum við með því að fletta upp í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar sem er að finna í þessum græna bæklingi. Kemur þá fljótlega í ljós að við fá loforð hefur verið staðið. Tökum nokkur dæmi:
Á bls. 9 undir kaflanum Byggðamál segir m.a., með leyfi forseta: ,,Gerðar verða ráðstafanir til jöfnunar á flutningskostnaði og kostnaði við síma, húshitun og skólagöngu.`` Kannast nokkur við efndir á þessum loforðum? Nei, auðvitað ekki því þær eru engar.
Þá segir enn fremur í sama kafla, með leyfi forseta: ,,Unnið verður að því að bæta aðstöðu verslunarfyrirtækja í dreifbýli.`` Þarna hefur ríkisstjórnin ekki setið aðgerðalaus því hún hefur hækkað skatta á verslunar- og skrifstofuhúsnæði um lítil 100% og telur sig væntanlega með því hafa bætt stöðu verslunarinnar á landsbyggðinni.
Þá ætlaði ríkisstjórnin einnig að treysta atvinnuöryggi í landinu en það fór á sama veg og hjálpin við dreifbýlisverslunina. Hér hefur ekki verið annað eins atvinnuleysi um langan tíma og ef eitthvað er þá fer það vaxandi.
Ríkisstjórnin hefur misst öll tök á verðbólgunni sem nú er komin upp í um og yfir 30%. Það muna e.t.v. einhverjir eftir stefnuræðu forsrh. í haust þar sem hann tilkynnti þjóðinni að verðbólga yrði um 6%. Það þarf ekki að hafa mörg orð um það hver áhrif það hefur á allt efnahagslíf þjóðarinnar að missa enn eina ferðina tökin á verðbólgunni.
Það virðist vera nákvæmlega sama hvar gripið er niður. Alls staðar er þessi óvinsælasta ríkisstjórn allra tíma með allt niður um sig, enda varla von á öðru þar sem minnisleysi hefur gert vart við sig hjá blessuðum hæstv. forsætisráðherranum okkar svo að vart er við því að búast að hann muni hverju hann lofaði þegnum þessa lands, hvað þá hvernig á að stjórna því.
Á síðasta ári talaði hann um að Róm væri að brenna sem svo sannarlega var rétt, enda gerðu allir þá kröfu til hans að fyrst hann gerði sér grein fyrir því gerði hann eitthvað til að slökkva eldana. En einhverra hluta vegna gerði hann það ekki. Hvers vegna veit ég ekki, en hann gæti þó hafa gleymt sér.
Þá hefur sami ráðherra lýst því yfir svona rétt til þess að auka tiltrú lánardrottna okkar erlendis á okkur að aldrei fyrr hafi íslenska þjóðin staðið nær þjóðargjaldþroti.
Nei, það vantar ekki yfirlýsingarnar. Það eru aðgerðirnar sem skortir á. Nú segir hæstv. forsrh. að helsti prófsteinninn á stjórnarsamstarfið sé hvort ríkisstjórninni takist að ná fjármagnskostnaði niður, lækka vexti og ná hagræðingu í bankakerfinu. Þetta muni ráða því hvort þessi ríkisstjórn lifi eður ei og til
þessa hefur hæstv. forsrh. ætlað ríkisstjórninni tvo mánuði. Nú er bara sá galli á gjöf Njarðar að vegna fenginnar reynslu tekur ekki nokkur heilvita maður mark á þessum orðum forsrh. Engu að síður verður að spyrja hæstv. ráðherrann hvert sé hið raunverulega takmark hans og hvernig hann ætli sér að ná því. Hvað ætlar hann að ná fjármagnsmarkaðinum langt niður og hvernig? Hvað ætlar hann að ná vöxtum langt niður og hvernig? Og hvar ætlar hann að ná hagræðingu í bankakerfinu og hvernig?
Þá verður enn fremur að spyrja til hvaða aðgerða ríkisstjórnin ætlar að grípa til þess að draga úr atvinnuleysinu og hvernig hún ætlar að mæta fyrirsjáanlegu atvinnuleysi námsmanna. Hvar eiga þeir að fá vinnu og hvernig á að standa undir þeim launagreiðslum?
Ríkisstjórnin virðist treysta alfarið á að fiskverð fari hækkandi, en fari nú svo að það gangi ekki eftir, hvað hyggst ríkisstjórnin þá gera? Það getur ekki gengið endalaust að hafa öll eggin í sömu körfu.
Góðir áheyrendur. Svona er hægt að kasta fram spurningu eftir spurningu til þessarar ríkisstjórnar. Við engri þeirra á hún svar. Og hvers vegna? Jú, vegna þess að hún er með öllu stefnulaus. Í engu máli hefur hún heilsteypta stefnu. Í engu máli eru stjórnarflokkarnir sammála nema e.t.v. því sem ríkisstjórnin boðaði þegar í upphafi ferils síns og hinn þá stolti forsrh. tilkynnti í stefnuræðu sinni, að þessi ríkisstjórn mundi beita fyrir sig mannréttindabrotum.
Ég ætla ekki að eyða frekari tíma á hæstv. forsrh., heldur leyfa mér að fara örfáum orðum um aðra hæstv. ráðherra og þeirra málefni. En áður en ég byrja á því langar mig að vitna hérna til nokkurra orða hæstv. menntmrh. er hann viðhafði í þessum umræðum í fyrra, nánar tiltekið 3. maí 1988, en þá hafði hann þessa skoðun á núverandi samstarfsflokkum sínum, með leyfi forseta:
,,Tvöfeldnin, margfeldnin og hræsnin hefur verið megineinkenni Framsfl. í gegnum söguna en nú hefur Framsfl. öðlast keppinaut þar sem er Alþfl. og stendur framsókn víða á sporði í hræsni, tvískinnungi, að ég segi ekki ómerkilegheitum í málflutningi gagnvart kjósendum þessa lands.``
Það stóð ekkert á hæstv. menntmrh. að ganga til liðs við þessa tvo flokka sem hann lýsir svo og því er freistandi að spyrja hann hvort sú lýsing sem hér var eftir honum höfð eigi nú ekki við einn flokk í viðbót, Alþb.
Eins og alþjóð man stóð Alþb. með okkur í stjórnarandstöðunni á síðasta þingi í hatrammri baráttu okkar fyrir afnámi matarskattsins. Og féllu þar mörg stór orð, m.a. þau frá núverandi fjmrh. að hæstv. núv. utanrrh. væri brennimerktur maður þar til hann aflétti matarskattinum. Sá sem brennimerkti og sá hinn sami sem stóð með geislabaug á kassa inni í versluninni Miklagarði og barði sér á brjóst og sagði matarskattinum heilagt stríð á hendur er nú fjmrh. Hann hefur því matarskattinn í hendi sér. En hvað hefur hann gert, þessi fulltrúi bandalags alþýðunnar? Felldi hann matarskattinn niður? Stóð hann við stóru
orðin? Nei, ekki aldeilis, heldur þvert á móti, hann krýndi sjálfan sig mesta skattakóng Íslandssögunnar. Minna mátti það nú ekki vera.
Það var því í hróplegu ósamræmi við baráttu okkar gegn matarskattinum, baráttu okkar fyrir lækkun á verðlagi, þegar hluti Borgfl. studdi vörugjaldsfrv. sem varð til þess að verðlag hækkaði enn frekar með tilheyrandi skerðingu kaupmáttar. Það virðist allt vera á sömu bókina lært. Ekki er samstaða um neitt af stærri málum þessarar ríkisstjórnar. Meira að segja einum af dyggustu stuðningsmönnum hennar, herforingja huldufólksins á þingi, Stefáni Valgeirssyni, er farið að ofbjóða aðgerða- og úrræðaleysi stjórnvalda til að mynda í vaxtamálum, og lái ég honum það ekki.
Húsbréfafrumvarp hæstv. félmrh. veldur illvígum deilum og virðist allt eins geta losað okkur við þessa ríkisstjórn fyrr en varir. Um það frv. vil ég aðeins segja að í meginatriðum er ég sammála ráðherra en tel hins vegar að enn séu of margir óvissuþættir varðandi afleiðingar frv. á fjármagnsmarkaðinum. Þess vegna sé rétt að skoða málið ögn betur og leggja það síðan fram á haustþingi, fullunnið, vitandi það að þá er nokkurn veginn full samstaða um málið. Á hinn bóginn er ég innilega sammála ráðherranum í þeirri skoðun hennar að núverandi húsnæðiskerfi er gjörsamlega handónýtt og beinlínis stórhættulegt og get vel skilið að hæstv. ráðherra vilji ekki una því að þurfa að starfa eftir slíku kerfi. Því tel ég að hún eigi nú að brjóta odd af oflæti sínu og doka til haustsins með afdrifaríkar ákvarðanir.
Þá eru uppi erjur í kringum vegáætlun, útvarpslög, heræfingar, stóriðju, varaflugvöll o.s.frv. o.s.frv. Reyndar hefur náðst lending í heræfingamálinu sem sýnir enn og aftur að Alþb. er tilbúið að gleypa hvað sem er til þess að halda sér í ríkisstjórn. Hjá því stendur ekki steinn yfir steini. Öllu hefur verið fórnað fyrir stólana. Nú er í lagi að hermennirnir komi til landsins þar sem búið er að fækka þeim um þriðjung. Ætli NATO fái þá ekki næst að byggja varaflugvöll hér ef flugbrautirnar verða styttar um þriðjung.
Atvinnuvegirnir um land allt eru í rúst og framtíð heilla byggðarlaga er í veði, sjávarútvegurinn rekinn með bullandi halla, iðnaðurinn berst í bökkum, landbúnaðurinn við það að heyra sögunni til, ferðamannaiðnaðurinn, sem er stórlega vanmetinn tekjumöguleiki, látinn reka á reiðanum. Sem sagt: Allt í rúst.
Brunarústir Rómarbrennu hæstv. forsrh. munu verða minnisvarði þessarar ríkisstjórnar.
Ríkisstjórnin hefur ekki náð að bæta rekstrarskilyrði atvinnuveganna þrátt fyrir skuldbreytingar og gengisfellingar enda tæplega við því að búast að rekstrarskilyrði batni þegar á hinn bóginn er verið að stórhækka skatta á fyrirtækin. Þetta skilar sér svo allt í stórauknu atvinnuleysi, gjaldþrotum heimila og fyrirtækja og því sem stjórnin stefnir leynt og ljóst að, hinum eftirsótta ríkissósíalisma.
Í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar segir, með leyfi forseta: ,,Ríkisstjórnin mun beita sér fyrir
fjórðungs lækkun á raforkuverði til fiskiðnaðar þar sem sólarhrings- og ársnotkun er tiltölulega jöfn.``
Mér vitanlega hefur ekki verið staðið við þetta loforð frekar en mörg önnur sem gefin eru í málefnasamningnum og því fyllilega tímabært að stjórnarliðið geri grein fyrir því hér og nú hvort við þetta loforð á að standa og þá hvenær ef svo ólíklega vildi nú til að þeir hafi hugsað sér að efna loforðið.
Svona er nú ástandið þrátt fyrir stóraukna skattheimtu sem virðist hvergi ætla að skila sér enda hallalaus fjárlög hæstv. fjmrh. þegar komin með bullandi halla og verða sennilega þau verstu í manna minnum þegar upp verður staðið. En þrátt fyrir þetta virðist ekki vera nokkur leið fyrir ríkisstjórnina að fara fyrir með góðu fordæmi í aðhaldi og sparnaði. Þeir áforma að eyða og eyða og eyða. Hótel Borg skal keypt og sett í stand fyrir nokkur hundruð milljónir. Stofna á nýtt ráðuneyti sem fylgir að sjálfsögðu verulegur kostnaðarauki o.s.frv. En við fólkið í landinu, allan almenning, er sagt: Það eru engir peningar til. Þið verðið að vera þolinmóð. Þið verðið að herða sultarólina, borða meiri graut o.s.frv. á meðan þeir sem hér ættu að sitja gera þveröfugt. Er nema furða að þessir menn skipi nú óvinsælustu ríkisstjórn sem nokkru sinni hefur setið við völd á Íslandi?
Þá fyrst tekur þó tappann úr þegar kemur að gjalddaga eignarskatts. Þá kemst
stór hluti fólks að því hversu gegndarlaus skattheimta ríkisins í rauninni er. Það er sorglegt að það hafi orðið örlög Borgfl. að verða guðfaðir þessarar hryllilegu ríkisstjórnar, að það skuli hafa orðið fyrir tilstilli Borgfl. að tekju- og eignarskattsfrv. var samþykkt hér á þingi fyrr í vetur með þeim afleiðingum að skattleysismörk lækkuðu frá því sem þau hefðu annars verið og eignaupptaka verður hér í stórum stíl vegna hinna gríðarlegu eignarskatta. Ekkjur, ekklar, aldraðir, sjúkir og einstæðir og fleiri munu þá minnast Borgfl. sem hafði það í hendi sér að koma í veg fyrir slysið. Þeir munu minnast þeirra sem samþykktu þetta frv. þegar þeir niðurlútir standa í því að pakka niður eigum sínum og flytjast á brott úr húsnæði því sem þeir með ráðdeild og sparnaði höfðu komið sér upp en missa vegna þessarar hörmulegu skattpíningar og eignaupptöku. Þessu þótti aðalstjórn Borgfl. rétt að hygla sérstaklega á síðasta fundi sínum.
Ég ætla að nefna hér lítið dæmi um hversu gríðarleg hækkun eignarskattsins í rauninni er. Aðili sem ég hef heyrt frá þurfti að greiða skatta af fasteign sinni árið 1988 að upphæð 93.300 kr. Árið 1989 þarf hann að greiða af sömu eign 222.200 kr. sem er hækkun um 138%. Ekki hafa laun þessa aðila hækkað sem þessu nemur og ekki skilar eignin auknum tekjum sem þessu nemur nema ef síður væri. Hvernig í ósköpunum er þá hægt að réttlæta slíka skattlagningu? Ekki veit ég það en eitt veit ég þó, að hún samræmist á engan hátt stefnuskrá Borgfl. þar sem segir m.a. að skattheimta ríkisins verði gerð einfaldari og réttlátari eða þar sem segir að Borgfl. vilji tryggja öldruðum áhyggjulaust ævikvöld. Og því segi ég að þeir sem
ekki fylgja þeirri stefnuskrá sem þeir buðu sig fram undir og kynntu sem skoðun sína og stefnu fóru inn á þing undir fölsku flaggi.
Við hv. þm. Hreggviður Jónsson og ég munum áfram starfa í anda þeirrar stefnu sem Albert Guðmundsson markaði og fram kemur í stefnuskrá Borgfl. Rauði þráðurinn í þeirri stefnu er mannúð og mildi. Það mun einnig verða svo í okkar nýja flokki, Frjálslynda hægri flokknum. Við munum halda áfram að berjast gegn skattpíningarstefnu þessarar ríkisstjórnar og stuðningsmanna hennar hér á þingi sem utan. Hér á þingi eru nú tveir þingflokkar hægra megin við miðju en fimm þingflokkar vinstra megin við miðju. Þetta segir sína sögu um vinstri stefnuna. Hún er stefna sundrungar og óheilinda og þess vegna rúmast hún ekki nema í fjölda smábrota. Frjálslyndir hægri menn munu starfa ötullega að því að leita leiða til þess að losa íslensku þjóðina undan því böli sem þessi ríkisstjórn er jafnframt því sem við munum berjast af alefli gegn þeim ríkissósíalisma sem hér er verið að koma á í einu og öllu.
Hæstv. forseti. Góðir áheyrendur. Það er mín skoðun að þessi ríkisstjórn verði að fara frá sem allra fyrst því lengi getur vont versnað.