Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Borist hefur eftirfarandi bréf:
    ,,Ólafur G. Einarsson, formaður þingflokks Sjálfstfl., hefur ritað mér á þessa leið:
    ,,Þar sem Friðjón Þórðarson, 2. þm. Vesturl., er erlendis og getur því ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér að hans beiðni með skírskotun til 130. gr. laga um kosningar til Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Vesturlandskjördæmi, Valdimar Indriðason, taki sæti á Alþingi í fjarveru hans.``
    Þetta er yður hér með tilkynnt, hæstv. forseti.
Kjartan Jóhannsson,

forseti Nd.``

    Valdimar Indriðason hefur áður tekið sæti á Alþingi á þessu kjörtímabili og býð ég hann velkominn til starfa.