Úrskurður forseta um takmörkun umræðna
Föstudaginn 28. apríl 1989

     Geir H. Haarde:
    Virðulegi forseti. Ég kveð mér hljóðs um þingsköp vegna úrskurðar um takmörkun umræðna sem forseti Sþ. felldi í umræðum um skýrslu utanrrh. aðfaranótt sl. miðvikudags. Fundurinn sem nú er að hefjast er fyrsti reglulegi fundur Sþ. frá því þá og ég leyfi mér að koma nú á framfæri mótmælum vegna þessa úrskurðar forseta.
    Málavextir voru þeir að hæstv. forseti tilkynnti í nefndum umræðum þegar klukkan var tíu mínútur gengin í fjögur aðfaranótt miðvikudags að hann hygðist beita ákvæðum 38. gr. þingskapa og takmarka ræðutíma þingmanna svo og ákveða lok umræðunnar. Tilkynnti forseti að umræðunni skyldi ljúka kl. 3.20, þ.e. tíu mínútum síðar, og þeir þrír þingmenn sem á mælendaskrá voru hefðu hver um sig tveggja mínútna ræðutíma.
    Þannig stóð á að hæstv. utanrrh. hafði, þegar hér var komið sögu, lokið síðari ræðu sinni, sem var rúmlega klukkustundar löng, þar sem hann svaraði fyrirspurnum sem til hans hafði verið beint í umræðunni. Sá sem hér talar hafði beðið um orðið næstur á eftir og hugðist gera stutta athugasemd við eitt atriði í svarræðu ráðherra. Sama hugðust hv. þm. Eyjólfur Konráð Jónsson og Guðmundur H. Garðarsson gera. Ég vil taka fram að ég hafði sérstaklega tjáð forseta að ég mundi verða mjög stuttorður, enda var ljóst að umræðunum var að ljúka og allra hagur að geta gengið til náða.
    Í 38. gr. þingskapa segir svo, með leyfi forseta: ,,Ef umræður dragast úr hófi fram getur forseti úrskurðað að ræðutími hvers þingmanns skuli ekki fara fram úr ákveðinni tímalengd. Forseti getur stungið upp á að umræðum sé hætt og einnig getur forseti lagt til, hvort heldur í byrjun umræðu eða síðar, að umræðum um mál skuli lokið að liðnum ákveðnum tíma. Eigi má þó, meðan nokkur þingmaður kveður sér hljóðs, takmarka ræðutíma við nokkra umræðu svo að hún standi skemur en þrjár klukkustundir alls. Tillögur forseta skulu umræðulaust bornar undir atkvæði í þingdeild þeirri sem hlut á að máli, eða sameinuðu þingi, og ræður afl atkvæða úrslitum.``
    Af þessari tilvitnun er ljóst að úrskurður forseta var efnislega rangur í báðum atriðum og fór í bága við þingsköp. Í fyrsta lagi var tillaga forseta í lok ræðutíma ekki borin undir atkvæði og í öðru lagi var umræðum að ljúka og höfðu ekki dregist úr hófi, en það er forsenda fyrir því að forseti geti ákveðið að beita tímatakmörkunum. Forseti sagði við þetta tækifæri að til takmarkana væri gripið með tilliti til þeirra anna sem fram undan væru daginn eftir og þess að inni væru hv. þm. sem ættu að vera komnir hingað aftur kl. 8 um morguninn. Ljóst hlýtur að vera að slíkar aðstæður jafngilda ekki því að umræður hafi dregist úr hófi, enda skipuleggja allir þingmenn viðveru sína á kvöld- og næturfundum að einhverju leyti með tilliti til starfa sinna næsta dag.
    Ég viðurkenni, virðulegi forseti, að úrskurðinum hefði átt að mótmæla þegar í stað, en ég lét það hins vegar undir höfuð leggjast, enda geng ég ekki með

þingsköpin á mér né kann þau utan að og vil geta treyst því að forseti misnoti ekki vald sitt og brjóti rétt á samþingsmönnum sínum. Úrskurður forseta var hins vegar ekki aðeins efnislega rangur, hann var að auki algerlega ástæðulaus þar sem ljóst var að umræðunni var að ljúka eins og ég hef útskýrt. En úrskurðurinn var einnig ranglátur og ósanngjarn í ljósi þess að einn þingmaður úr flokki hæstv. forseta hafði þegar talað tvívegis í umræðunni, í fyrra skiptið í rúmlega 1*y1/2*y klukkustund og í síðara skiptið um klukkustund, en þingmenn á mælendaskrá höfðu aðeins talað einu sinni. Það fær auðvitað ekki staðist þegar þingmaður úr stjórnarliðinu hefur talað tvívegis, samtals í um 2*y1/2*y klukkustund að skammta þá þingmönnum úr stjórnarandstöðunni, sem vilja hagnýta sér rétt sinn til að tala í annað sinn, tvær mínútur til þess. Þingmenn eiga auðvitað allir sama rétt á að tala hér á hv. Alþingi. Málfrelsi eins er jafnmikið og annars og ef talin er þörf á því að takmarka ræðutíma á vitaskuld að semja um það fyrir fram.
    Ég mótmæli harðlega þeim ranga og ósanngjarna úrskurði sem ég hef gert að umtalsefni og vil að þau mótmæli liggi fyrir í þingtíðindum þannig að ljóst sé að þessi úrskurður getur ekki haft neitt fordæmisgildi þótt honum hafi ekki verið mótmælt á staðnum.
    Það skal tekið fram að ég greindi forseta frá því þegar morguninn eftir umrætt atvik að ég mundi mótmæla á þessum fundi. Ég vil láta það koma fram, virðulegi forseti, að við sjálfstæðismenn munum ekki aftur sætta okkur við að forsetavaldi sé beitt með þessum hætti hér á hv. Alþingi, en ég vil leyfa mér að vona að hér hafi einfaldlega verið um mistök hjá forseta að ræða og vænti ég að það muni koma fram hjá forseta.