Úrskurður forseta um takmörkun umræðna
Föstudaginn 28. apríl 1989

     Halldór Blöndal:
    Hæstv. forseti. Það er billegt að vera með getsakir um fyrrv. forseta Sþ., en það fullyrði ég, svo að ég taki dæmi, að hvorki hv. 4. þm. Vestf. Þorv. Garðar Kristjánsson né t.d. maður eins og Eysteinn Jónsson hafi skilið ákvæði þingskapa á þann veg að spurning um löggildingu fundar í Sþ. væri sú hvort þingmaðurinn væri í kaffi niðri eða einhvers staðar í húsinu og þá dygði það, þá væri helmingur mættur, en hefði ekki skilið það á hinn veginn að helmingur þingmanna yrði að vera hér í fundarsal. Báðir þessir þingmenn gættu þess mjög rækilega að meira en helmingur þingmanna væri í fundarsal þegar þeir settu fundi og hvorugur þessara forseta, svo langt ég man, lét það henda sig í eitt einasta skipti að afgreiða gerðabók án þess að helmingur þingmanna væri viðstaddur. Það fullyrði ég. Mér þykir á hinn bóginn slæmt að hv. 4. þm. Vestf. skuli ekki vera við vegna annarra anna sinna sem þingmaður Vestfirðinga, en ég veit að hann mundi staðfesta þessi ummæli mín ef hann yrði spurður.