Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Ég hef leyft mér á þskj. 724 að bera fram fsp. til hæstv. samgrh. um Hornafjarðarós. Fyrirspurnin er svohljóðandi:
,,Hvaða athuganir hafa farið fram að undanförnu á breyttum aðstæðum við Hornafjarðarós og hvaða aðgerðir telja hafnamálayfirvöld að helst komi til greina til að tryggja innsiglinguna til Hafnar í Hornafirði?``
Hornafjarðarós er með erfiðari innsiglingum hér á landi og alveg sérstaklega valda breytilegar aðstæður erfiðleikum á vissum tímum. Það liggur einnig fyrir að við Hornafjarðarós eru í gangi og á þessu svæði breytingar sem ganga yfir á allnokkrum tíma og sem mikil ástæða er til að fá sem gleggstar upplýsingar um með nauðsynlegum athugunum og rannsóknum sem undirbúning að aðgerðum til úrbóta þannig að girða megi fyrir hættuástand í sambandi við innsiglinguna og breytingar á henni.
Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hvaða erfiðleika það skapar í einni öflugustu útgerðarstöð landsins ef þar verða þannig breytingar á innsiglingu að erfitt, ég tala nú ekki um illmögulegt er að koma þar inn fiskiskipum og öðrum skipum.
Breytingar á Hornafjarðarósi hafa orðið mjög miklar í tímans rás og um það eru til heimildir aftan frá miðöldum og frá síðari öldum og á þessari öld hefur einnig komið til verulegra breytinga á ósnum sjálfum við fjörumörk. 1979 að mig minnir urðu þar verulegar breytingar þannig að ósinn var nálægt því að skipta sér eins og gerðist að ég hygg á 18. öldinni að því er ég hef heimildir um að alger breyting varð á legu óssins. Breytinga varð einnig vart á liðnum vetri og það eru þær breytingar og áhyggjur manna af þeim sökum, bæði hafnaryfirvalda á Höfn í Hornafirði svo og auðvitað allra íbúa þess staðar, sem eru ástæðan fyrir því að þessi fsp. er nú hér fram borin.
Fram hafa komið þingmál varðandi þetta efni áður á fyrri þingum, um rannsóknir varðandi ósinn en ekki verið afgreidd og fyrir þinginu liggur sérstök þáltill. sem varðar þetta mál frá þremur hv. þm. Austurlands þar sem 1. flm. er hv. þm. Egill Jónsson. Allt lýtur þetta að hinu sama, að fá fram athuganir og aðgerðir til þess að tryggja sem best má verða innsiglinguna til Hornafjarðar.