Skyldleiki íslenskra laxastofna
Föstudaginn 28. apríl 1989

     Páll Pétursson:
    Frú forseti. Ég held að það sé ástæða til að hugleiða þetta mál nokkuð vandlega. Hér er um nýja atvinnugrein að ræða og hún er rekin í stærri stíl en víðast í nágrannalöndunum og það vakna margar spurningar. Ég held að það sé nauðsynlegt að hafa fyllstu gát á og reyna að ganga þannig fram að ekkert sé skemmt að óþörfu og fá svarað líffræðilegum spurningum áður en menn setja í hættu það umhverfi sem fyrir er í náttúrunni. Við eigum auðæfi í hinum villta laxi og þau ber að sjálfsögðu að varðveita. Villilaxastofninn er að verða æ fágætari í veröldinni. Ræktun er hins vegar í örum vexti og jafnvel þó að nú séu tiltölulega fáar kynslóðir frá því að sá lax sem hér er í kvíum eða undir manna höndum var villtur breytist á nokkrum kynslóðum eðli og hættir þessara fiska.
    Ég held að það sé hugsanlega rétt að bíða með að setja upp fiskeldisstöðvar eða á þeim landsvæðum þar sem bestar eru laxveiðiár fyrr en fást gleggri svör en nú liggja fyrir um hver áhrif laxeldið hafi á hina villtu stofna. Ég held líka að það sé fullkomlega ástæða til að fylgjast með mengun frá þessum stöðvum, t.d. á Sundunum hér í Reykjavík. Þegar mengun frá fiskeldi bætist við mengun frá byggð er fullkomin ástæða til þess að hafa á sérstaka aðgát.
    En ég tek fram að laxeldið er að ýmsu leyti mjög álitleg atvinnustarfsemi og í örum vexti. Við megum líka gæta þess að hagsmunir laxeldisins séu ekki fyrir borð bornir. Ég held að það megi láta þetta hvort tveggja fara vel saman, bæði hagsmuni laxeldisins og eins að koma í veg fyrir að laxeldið valdi náttúruspjöllum.