Skyldleiki íslenskra laxastofna
Föstudaginn 28. apríl 1989

     Fyrirspyrjandi (Guðmundur G. Þórarinsson):
    Forseti. Ég þakka ráðherra fyrir greinargóð svör og ítreka að þessi fsp. er auðvitað flutt til að vekja athygli á þessu vandamáli og óska eftir svörum um hvernig ráðuneytið hyggst taka á því. Það kann að vera að orð mín hafi á einhvern hátt misskilist vegna þess að hv. þm. Kristín Einarsdóttir lét að því liggja að ég hefði kannski ekki miklar áhyggjur af þessu máli. Það sem ég var að reyna að segja var að enn sem komið er er málið á byrjunarstigi vegna þess að sá eldislax sem við erum með er að mestu leyti beint úr hrognum frá viðkomandi fiski þannig að að mjög litlu leyti að mínu viti er hægt að tala enn þá um eldislax hér vegna þess að greinin er svo ung. Á þessu mundi verða grundvallarbreyting ef við hefjum kynbætur á eldislaxi og fáum fram hér eldislax.
    Í öðru lagi var ég að reyna að segja það að vegna þeirra ströngu reglna sem gilda um flutning á lifandi fiski á milli svæða eru menn í reynd ekki að tala um blöndun á villtum laxi yfir höfuð heldur um blöndun á villtum laxi innan ákveðinna svæða sem enn takmarkar málið og þó að íslenskir stangveiðimenn séu alveg skýrir á því að það er munur á laxastofninum á milli ánna er hann enn þá meiri á milli svæðanna eða landsvæða, landshluta. Í þessu sambandi vil ég benda á að í umræðum um Elliðaárnar hefur komið fram frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, sem hefur annast þær ár, að í fjölda ára fór öll ræktun á laxi í Elliðaánum fram á þann veg að sleppt var seiðum úr Soginu þannig að þessi Elliðaárstofn er kannski að verulegu leyti bættur með seiðum úr Soginu og við vitum að laxeldisstöðin í Kollafirði hefur dreift seiðum um land allt um árabil. Það sem ég er í rauninni að reyna að segja er það að menn segi ekki meira en þeir geti staðið við, að menn kanni hvað um er að ræða, hafi á sér allan vara og alla gát. Fsp. er flutt til að brýna ráðherra til þess að láta ráðuneytið og Veiðimálastofnun fylgjast sem allra best með þessu máli. Varnagli er að sjálfsögðu frysting svila sem ég held að sé rétt að hafa með í myndinni og athuga mjög vel.
    Að síðustu vil ég láta koma fram að þrátt fyrir að við viljum fara varlega í þessu og lýsum okkar áhyggjum er mér tjáð að engin þjóð veraldarinnar hafi strangari reglur varðandi þessi atriði en Íslendingar þó hafa sett nú.