Fiskeldisfyrirtæki
Föstudaginn 28. apríl 1989

     Fyrirspyrjandi (Egill Jónsson):
    Virðulegi forseti. Þegar lagðar eru saman báðar ræður hæstv. landbrh. er málið farið að skýrast og er ég honum þakklátur fyrir það. En það hlýtur að valda vonbrigðum, ekki síst miðað við þá umræðu sem fór fram fyrr á þessum vetri, að fiskeldisfyrirtæki búa eftir þennan vetur ekki að neinu leyti við betri kost að því er varðar afurða- og rekstrarlán en var þegar umræðan um Tryggingasjóð fiskeldislána fór fram í vetur. Það liggur nú fyrir og er hér staðfest af hæstv. landbrh. að sú ákvörðun hefur ekki orðið til þess að auðvelda þeim fyrirtækjum sem þá höfðu ekki komist í viðskipti um afurða- og rekstrarlán aðgang að slíkum lánum. Ég hygg að það megi líka fullyrða að þau séu fá og kannski engin fiskeldisfyrirtæki sem hafa fengið viðbótarlán við þau 37*y1/2*y% sem hafa gilt í þessari grein. Það er þess vegna ákaflega mikil ástæða til að ganga ríkulega eftir því sem fram kom í niðurlagi svars hæstv. landbrh., að hann skyldi ganga eftir því við bankamálaráðherra að fá breytingu á, og er vissulega fagnaðarefni að sú yfirlýsing skuli liggja fyrir. Það er fyrsta beina yfirlýsingin sem hefur fengist fram um þessi efni. En það ber hins vegar að harma og átelja hvað veturinn hefur illa verið notaður í þessum efnum og það hljóta að vera vonbrigði að verða nú vitni að því hvað Tryggingasjóður fiskeldislána hefur litlum árangri skilað þrátt fyrir öll stóru orðin og miklu áherslurnar frá því að sú umræða fór fram fyrr á þessu þingi.