Matthías Á. Mathiesen:
    Virðulegi forseti. Ég vildi aðeins mega taka undir ósk um það að það náist samkomulag á milli ríkisins og Félags lögreglumanna. Ég held að það væri okkur öllum til hneisu ef slíkt ástand héldi áfram og ég fagna því sem hér kom fram hjá hæstv. fjmrh. að honum sýndist að það væri komið að lokum þessarar deilu og að samkomulag gæti náðst.