Almannatryggingar
Föstudaginn 28. apríl 1989

     Fyrirspyrjandi (Málmfríður Sigurðardóttir):
    Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. heilbrmrh. mjög greinargóð svör og ágæt. Ég fagna því að komið er að lokum þessarar vinnu og vænti þess að þingmenn fái þá að sjá þegar henni er lokið að þar hafi verið tekið tillit til tillagna þeirra og ábendinga á undanförnum árum.