Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti getur upplýst að ekkert það hefur komið fram hingað til á fundum forseta þingsins sem breytir þeirri áætlun sem fyrir liggur að þingi ljúki 6. maí. Séu einhverjar hugmyndir uppi um annað hefur forseti engar spurnir af því haft.
    Ég vil jafnframt benda á að í stórum dráttum og öllum meginatriðum hefur starfsáætlun Alþingis verið haldin. Þingið hófst eins og þar segir, fundir voru ekki milli jóla og nýárs, umræður um þau mál sem getið er hafa þegar farið fram nema um Byggðastofnun og það er ekki sök forseta. Sú skýrsla er ekki komin og um hana er auðvitað ekki hægt að ræða fyrr en hún er fram lögð. Það er því ekkert sem mér er kunnugt um sem bendir til annars en að þessari áætlun verði haldið.
    Fari svo að framlengja þurfi þinghaldi verður það vitanlega gert í góðu samstarfi og samráði við formenn allra þingflokka og engar ákvarðanir um það teknar nema samráð verði haft. Forsetar hafa óskað eftir því við ríkisstjórnina að fram verði lagður svokallaður óskalisti. Ekki hefur það verið gert enn þá, enda eru e.t.v. öll mál á óskalista hæstv. ráðherra. Það er hins vegar óþarfi að segja hv. þm. það að auðvitað er það í þeirra valdi hvaða mál eru afgreidd í nefndum þingsins. Ráðherrar hafa engin ráð yfir því. Þessar upplýsingar vildi ég gefa áður en ég gef hv. 6. þm. Vesturl. orðið um þingsköp.