Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill upplýsa að ekkert hefur komið fram frá hæstv. forsrh. um fjarveru í næstu viku. Hann hefur hins vegar orðað það við forseta að hann verði fjarverandi og fari af landi burt þegar að þingi loknu, þ.e. eftir 6. maí. Aðrar upplýsingar hef ég ekki um ferðir hans.