Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Það kemur forseta dálítið á óvart hversu ákaft menn auglýsa eftir forgangslista hæstv. ríkisstjórnar. Ég tel eins og ég hef áður sagt að hv. þm. ráði sjálfir hvaða mál þeir afgreiða frá þessu 111. löggjafarþingi en ekki hæstv. ríkisstjórn.