Forseti (Guðrún Helgadóttir):
    Forseti vill gera að tillögu sinni að haldinn verði fundur forseta og þingflokksformanna í dag. Samráð eru nokkuð mikil en sá fundur hafði þó ekki verið boðaður. Til þess að bjarga þeim stundarfjórðungi sem eftir er af þessum fundi mælist ég til þess að menn geti fallist á að það væri lausn á þessari umræðu að sá fundur yrði haldinn í dag og upplýsingar gefnar um niðurstöðu hans hvort sem fundur verður á morgun eða á mánudag.