Frsm. iðnn. (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Hér mæli ég fyrir nál. á þskj. 960 um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 58 frá 4. júní 1981, um lagmetisiðnað og Þróunarsjóð lagmetisiðnaðarins, með áorðnum breytingum. Þetta álit er frá iðnn.:
,,Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk til viðtals Halldór J. Kristjánsson, stjórnarformann Þróunarsjóðs lagmetisiðnaðarins.
Í umræðum um málið í nefndinni komu fram þau viðhorf að gæta þyrfti þess þegar notuð er heimild samkvæmt frv. að hlutafjárframlög tengist þeim markmiðum að auka vöruþróun, framleiðni eða markaðsstarfsemi fyrirtækja. Varast beri að leggja hlutafé af mörkum nema heilbrigður rekstur sé tryggður án framlaga úr sjóðnum. Gert er ráð fyrir að ekki komi til að sjóðurinn eignist meiri hluta í fyrirtækjum nema í undantekningartilvikum og að um tímabundna eignaraðild verði að ræða. Æskilegt er að fyrirtæki sameinist um markaðsátak og þróunarstarf með þátttöku sjóðsins.
Með vísan til þeirra atriða sem hér hafa verið rakin mælir nefndin með því að frv. verði samþykkt.``
Undir þetta rita allir hv. fulltrúar í iðnn.