Vaxtalög
Föstudaginn 28. apríl 1989

     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Þetta frv. hefur verið til meðferðar hér í deildinni. Ed. breytti þessu frv. og bætti inn í 7. gr. þess orðunum ,,á óréttmætan hátt``. Við töldum að réttara og eðlilegra væri að hafa frv. eins og við gengum frá því og leggjum því til að þessi orð verði felld út úr frv. og frv. verði afgreitt á sama hátt og það var afgreitt hér fyrr í vetur.