Geir H. Haarde:
Virðulegi forseti. Þetta mál, sem hv. 1. þm. Norðurl. v. gerði að umtalsefni, er eflaust hið athyglisverðasta. Mér sem leikmanni í hreinræktaðri lögfræði leikur nokkur forvitni á því að vita hvaða ástæður skyldu liggja að baki því að orðunum þremur ,,á óréttmætan hátt`` skyldi hafa verið bætt á nýjan leik inn í þetta lagafrv. Ég þykist vita að þar að baki hljóti að liggja einhverjar lögfræðilegar ástæður. Ég hygg að virðulegur meiri hl. fjh.- og viðskn. Ed. hefði ekki tekið þetta inn á nýjan leik nema að vandlega athugðu máli. Það segir í 7. gr., með leyfi forseta:
,,Hver sem af ásetningi eða stórfelldu gáleysi hagnýtir sér á óréttmætan hátt fjárþröng viðsemjanda síns eða aðstöðumun þeirra að öðru leyti til þess að áskilja sér vexti eða annað endurgjald fyrir lánveitingu eða umlíðun skuldar umfram gildandi vaxtamörk, sambærilegra útlánsvaxta hjá viðskiptabönkum og sparisjóðum á þeim tíma er til skuldar er stofnað, sbr. 8. gr., skal sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að einu ári.``
Ég hygg að það sem vakti fyrir þeim sem beittu sér fyrir þessari breytingu í Nd. hafi verið að með þessu orðalagi væri gefið í skyn að einhver gæti hagnýtt sér bágindi eða fjárþröng viðsemjanda á lögmætan hátt ef þetta orðalag væri ekki þarna inni.
Mig mundi nú langa til að spyrja til að mynda hæstv. viðskrh. um það hvað þarna liggi að baki, hvort þessi breyting er komin inn á nýjan leik fyrir hans afskipti. Vera má að dómsmrh. hafi gert tillögu um þessa breytingu. Ég þekki það ekki. En ég tel að við deildarmenn, margir hverjir a.m.k., eigum erfitt með að gera upp við okkur þann greinarmun sem hér er verið að gera án skýringa á því hvers vegna þessi þrjú orð eru komin þarna inn á nýjan leik. Það er að vísu fleira í þessari grein sem liggur ekki alveg ljóst fyrir fyrir menn sem ekki eru hálærðir í lögfræði, eins og orðatiltækið ,,umlíðun skuldar``, en látum það liggja á milli hluta. Ég vænti þess að viðskrh. geti útskýrt þetta fyrir okkur hér í deildinni þannig að menn geti tekið efnisafstöðu til þessa atriðis.