Friðrik Sophusson:
Virðulegi forseti. Ekki ætla ég að gera stórmál úr þessu, en það er þó athyglisvert að meira að segja hæstv. ríkisstjórn Íslands getur ekki komið sér saman um hvort orðalagið á að nota og er það kannski táknrænt fyrir stjórnarsamstarfið um þessar mundir að hæstv. viðskrh. telur eðlilegt að frv. eigi að vera eins og það var upprunalega með hugtakinu ,,á óréttmætan hátt``, hann er reyndar aðeins viðskiptafræðingur eða hagfræðingur, en hins vegar er forsrh. verkfræðingur og um leið og hæstv. viðskrh. var búinn að segja sitt álit hlaut hæstv. forsrh. að koma upp til að segja þjóðinni frá því að hann hefði annað álit á þessu. Síðan fjalla menn um þetta. Einn af færustu lögfræðingum þingsins, hv. þm. Ragnar Arnalds, segir að þetta sé illskiljanlegur texti.
Ég efast um að nokkur frasi sé jafnalgengur í lagatexta eins og ,,á óréttmætan hátt`` og það veit auðvitað hv. þm. Ragnar Arnalds. Ef ég spyrði nú hv. þm. Pál Pétursson og hv. þm. Ragnar Arnalds að því: Hvar eru mörkin á ásetningsbrotum og öðrum brotum, hvað þýðir stórfellt gáleysi? þá vefst mönnum tunga um tönn. Það er nefnilega þannig að þessi hugtök hafa jafnvel verið að breytast í tímans rás, breytast eftir því hvernig dómar falla á hverjum tíma. Þetta ákvæði er sett inn til öryggis. Og af hverju er það gert? Það er gert vegna þess að hér er um að ræða sérstakt ákvæði um viðurlög. Það þýðir að sá sem gerist brotlegur við þessa grein getur þurft að sæta sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að einu ári ef um ítrekað brot er að ræða og sakir eru miklar. Það væri kannski ástæða til þess að spyrja þessa menn sem hafa svona gott vit á þessu: Hvað eru ,,miklar sakir``? Vill ekki hv. 1. þm. Norðurl. v., af því að hann er svo skýr í þessu öllu saman, segja okkur hvað séu ,,miklar sakir``? Vill hann koma hér upp og segja mér það hvað ,,stórfellt gáleysi`` er? Treystir hann sér til þess í stuttri ræðu, hann er alltaf stuttorður, að segja okkur hvað ásetningur sé og hvar mörkin liggi? Auðvitað getur hann þetta ekki og það getur enginn okkar í stuttu máli.
Hvers vegna breytir stjórnarmeirihlutinn í Ed. þessu ákvæði? Hvers vegna fellst stjórnarmeirihlutinn í Nd. ekki á það? Hæstv. viðskrh. segir að hann vilji, og hann er þó höfuðpaur hæstv. ríkisstjórnar í þessum málum, halda þessu inni eins og það var upphaflega. Hæstv. forsrh. er á annarri skoðun.
Ég hef ekki farið fram á annað, virðulegi forseti, en þessi ágæti þingmeirihluti fái smátóm, þó það séu ekki nema einn eða tveir dagar, til þess að koma sér saman um hvorn textann hann vilji hafa. Það er komið í ljós að hæstv. ráðherrar eru á öndverðum meiði. Ég ætla ekki að lýsa neinni skoðun á þessu. Ég hef hins vegar séð áreiðanlega í 100 lagaákvæðum hugtakið ,,á óréttmætan hátt``. Ég hygg að þetta sé gert vegna þess að ... (Gripið fram í.) Ja, ég hef séð þetta mjög víða. (Gripið fram í.) Jæja eða 99. Ég skal slá af um 1%. Ef lítilþægni hv. þm. Stefáns Valgeirssonar er sú að hann geti þá fallist á mitt mál skal ég gjarnan gera það. Ég held að ástæðan fyrir þessu sé
sú að hér er um það að ræða að það eru viðurlög í ákvæðinu og það er kannski meginregla í íslenskum rétti að þegar verið er að refsa mönnum, jafnvel með fangelsi allt að einu ári eða tveimur árum, þurfi að vera um nokkuð gróf brot að ræða. Þess vegna hygg ég að þeir sem hafa samið þennan texta hafi sett þetta orðalag í hann.
Ég hef ekki sagt að það sé útilokað að strika það út. En ég veit að sé hugtakið strikað út er útstrikunin lögskýringaratriði. Þess vegna hef ég beðið um haldbær rök fyrir því að strika textann út, ekki síst eftir að Ed. hefur sett hann inn aftur, að mati færustu lögfræðinga, eins og hæstv. ráðherra sagði áðan. Mér finnast ekki hafa komið fram nægilega skýr rök í máli hv. nefndarmanna og bið nefndina um að kalla þá til sín þá færustu lögfræðinga sem hæstv. ráðherra vísaði til og að því loknu geta þeir komið og sagt frá því hvort þeir hafi sannfærst eins og hv. efrideildarmenn og hæstv. ráðherra eða hvort þeir sitji enn við sinn keip. En mér finnst ekki hafa komið nægilega skýrt fram í þeirra máli af hverju þeir vilja fella þetta niður.