Vaxtalög
Föstudaginn 28. apríl 1989

     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Ég vil gera eina stutta athugasemd og minna á tilgang þessarar lagasetningar. Þessi lög um vexti eru sett til að reyna að koma vöxtum í þjóðfélaginu í eðlilegt horf, til að reyna að sporna gegn okri sem viðgengst í þjóðfélaginu. Það sem hér er verið að leggja til er að hver sem hagnýtir sér fjárþröng viðsemjanda síns eða aðstöðumun að öðru leyti til að áskilja sér vexti eða annað endurgjald fyrir lánveitingu eða umlíðun skuldar umfram gildandi vaxtamörk, sbr. 8. gr., skal sæta sektum, varðhaldi og fangelsi allt að einu ári o.s.frv.
    Mér finnst að sumir menn séu allt of viðkvæmir fyrir hagsmunum okraranna, vilji koma undir þá öryggisneti og koma í veg fyrir að yfir þá gangi lög. Með því að bæta þessum orðum inn í greinina er verið að draga tennur úr greininni þannig að þær bíti síður á okrarana. Það er spurning hvort afstaða deildarinnar er slík að starfsemi manna sem taka gífurlega háa vexti eigi að fá að þrífast, hvort við eigum að halda hlífiskildi yfir þeim. Ég gekk að þessari lagasetningu með því hugarfari að hún ætti ekki að þrífast, við ættum að sporna gegn henni og við ættum að reyna að koma í veg fyrir okur í þjóðfélaginu. Það mótar afstöðu mína. Og það hefur vafist fyrir mér eins og fleirum sem hér hafa talað hvernig hægt sé að fremja þennan verknað á réttmætan hátt. Ef ekki er hægt að fremja hann á réttmætan hátt eru þessi orð meiningarleysa og sómasamlegast að fella þau út.
    Ég sé ekki ástæðu til að vefja þetta lengur með okkur í nefndinni. Við höfum haft samband við ýmsa lögfræðinga sem við tökum hið besta mark á og borið undir þá hvort skaði væri að þessum orðum. Einmitt hef ég orðað þetta með þeim röksemdum og ábendingum sem hv. 3. þm. Reykv. hafði í frammi, þ.e. hvort þetta væri ekki svo mikilvægur frasi í lagamáli að óeðlilegt væri að fella hann niður. En þeir sem ég hef haft samband við og meðflm. mínir að málinu hafa haft samband við hafa ekki talið að svo sé.