Almannatryggingar
Föstudaginn 28. apríl 1989

     Frsm. heilbr.- og trn. (Guðrún Helgadóttir):
    Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar nr. 67/1971, með síðari breytingum. Þetta er frv. sem liggur frammi á þskj. 549 og er 300. mál þingsins og flm. er hv. 1. þm. Vestf. Matthías Bjarnason.
    Í þessu frv. er lagt til að unnt sé að greiða svokallaðan endurhæfingarlífeyri, eins og þar segir, þegar ekki verður séð hver örorka verður til frambúðar eftir sjúkdóma eða slys, í tólf mánuði og þó aldrei lengur en í 18 mánuði.
    Okkur í nefndinni fannst þetta frv. sem væri þess vert að styðja, en við höfum lagt fram brtt. á þskj. 942 þar sem við teljum nauðsynlegt að við bætist að unnt sé að greiða endurhæfingarlífeyri í allt að tólf mánuði eftir að greiðslu sjúkra- eða slysadagpeninga lýkur. Í öðrum greinum í tryggingalögunum eru afdráttarlaus ákvæði um að eftir að maður veikist eða verður fyrir slysi skuli eftir atvikum greiddir dagpeningar í allt að tólf mánuði.
    Það er kunnara en frá þurfi að segja að oft er það svo, sérstaklega eftir erfið slys, að það getur orðið nokkur bið á því að unnt sé að sjá fyrir hver raunveruleg örorka mannsins verður og þess vegna hefur það hvað eftir annað komið fyrir að dagpeningar hafa verið framlengdir. Nú vitum við öll hvernig er að lifa af þeirri upphæð sem þeir eru. Það eru líklega nú um 12 þús. kr. á mánuði. Ég tel að þarna sé mikilvægu máli hreyft, að unnt sé að greiða bráðabirgðalífeyri á meðan maður er að ná heilsu eða það verður sýnt hver varanleg örorka hans er. Við leggjum því til að frv. verði samþykkt með þessari breytingu.
    Undir það skrifa Guðrún Helgadóttir, Jón Sæmundur Sigurjónsson, Guðmundur G. Þórarinsson, Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir og Jón Kristjánsson.
    Fjarverandi afgreiðslu málsins á sama fundi og hér var áður til umræðu voru Geir H. Haarde og Ragnhildur Helgadóttir.
    Ég vil hins vegar nota þetta tækifæri, hæstv. forseti, til að vísa á bug dylgjum um að illa sé unnið í heilbr.- og trn. Það er engan veginn rétt. Þetta frv., sem var nýtt og þurfti þess vegna auðvitað skoðun, var sent til umsagnar bæði til tryggingaráðs, Öryrkjabandalags Íslands og heilbr.- og trmrn. Umsagnir voru jákvæðar og þess vegna töldum við rétt að veita því brautargengi. Hitt frv. er gamall kunningi sem nefndin taldi hins vegar ekki ástæðu til að senda enn einu sinni til umsagnar.
    Ég mælist til, hæstv. forseti, að hv. deild veiti þessu frv. brautargengi.