Almannatryggingar
Föstudaginn 28. apríl 1989

    ( Forseti (Hjörleifur Guttormsson):
    Forseti vill taka fram að ósk liggur fyrir um að umræðu ljúki ekki um þetta mál núna ( RH: Ekki þetta mál heldur?) af þeim ástæðum að flm. málsins er ekki viðlátinn, en ósk er uppi um það að hann geti kynnt sér þá breytingu sem lögð er til. Ég skil það svo að þetta þýði ekki miklar tafir á afgreiðslu málsins og mér finnst sjálfsagt að verða við því að fresta umræðunni, hvort sem það þýðir þangað til síðar á þessum fundi eða eitthvað lengur.