Almannatryggingar
Föstudaginn 28. apríl 1989

     Ragnhildur Helgadóttir:
    Herra forseti. Ég skal skýra hvernig á þessu stendur. Þannig er mál með vexti að formaður þingflokks sjálfstæðismanna, Ólafur G. Einarsson, hafði bundið það fastmælum við aðalforseta deildarinnar að þessu máli yrði frestað til þess að hann gæti rætt við hv. 1. flm. málsins um þær breytingartillögur sem til umfjöllunar væru. Ég á ekki von á að það tefji málið neitt að ráði, en þessi var ástæðan og forseti hafði fallist á það. Þess vegna var það sem bent var á það hér. Ég get ekki ímyndað mér annað en það hljóti að vera unnt að fallast á það.