Frsm. iðnn. (Hjörleifur Guttormsson):
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nál., sem er prentað á þskj. 966, um frv. til l. um stofnun hlutafélags um ríkisprentsmiðjuna Gutenberg. Þetta er frá iðnn.
Nefndin hefur fjallað um frv. og fékk á sinn fund framkvæmdastjóra Gutenbergs, Guðmund Kristjánsson, og fjóra fulltrúa starfsmanna sem nafngreindir eru á þskj. Í máli þeirra kom fram að breyting á rekstrarformi fyrirtækisins hefði vissa kosti í för með sér. Hins vegar væru uppi ýmsar spurningar og óvissa í hugum starfsmanna vegna þessa máls. Komi til þess að hlutabréf verði seld skv. 4. gr. telja starfsmenn eðlilegt að þeir fái a.m.k. tímabundinn forkaupsrétt og var vísað til breytinga á Landssmiðjunni í hlutafélag fyrir nokkrum árum.
Einnig töldu fulltrúar starfsmanna eðlilegt að starfsmenn eigi aðild að stjórn fyrirtækisins og mætti setja ákvæði um það í samþykktir fyrir félagið. Nefndin vekur athygli á athugasemdum við 1. og 4. gr. frv. þar sem fram er tekið að öll hlutabréfin verði í eigu ríkissjóðs og að þau verði ekki seld nema áður hafi verið leitað samþykkis Alþingis. Ef til þess kæmi er rétt að hafa í huga fyrrgreind atriði.
Nefndin mælir með því að frv. verði samþykkt, enda sé tryggt að hagur starfsmanna raskist ekki varðandi lífeyrisréttindi og varðandi uppgjör á lífeyrissjóði.
Undir þetta rita allir nefndarmenn iðnn.