Utanríkisráðherra (Jón Baldvin Hannibalsson):
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til l. um heimild fyrir ríkisstjórnina til þess að staðfesta samninga um réttarstöðu skrifstofa ráðherranefndar Norðurlanda og stjórnarnefndar Norðurlandaráðs og um réttarstöðu samnorrænna stofnana.
    Samningurinn um réttarstöðu skrifstofa ráðherranefndar Norðurlanda og stjórnarnefndar Norðurlandaráðs var undirritaður í Osló 13. maí 1987. Samningurinn er birtur sem fskj. 1 með lagafrumvarpi þessu.
    Með samningnum er skrifstofunum veitt sjálfstæð réttaraðild með sömu lögaðild og aðrir lögaðilar í landinu þar sem þær eru staðsettar. Jafnframt njóta þær friðhelgi. Í samningnum eru ákvæði um réttarstöðu starfsliðs skrifstofanna, skattgreiðslur, tollfrelsi, lífeyrissjóðsréttindi o.s.frv. Jafnframt eru ákvæði um að fastráðnir ríkisstarfsmenn sem gegna tímabundnu starfi á skrifstofunum fái leyfi frá störfum þann tíma sem ráðningin varir eða allt að átta árum.
    Við gildistöku samningsins fellur úr gildi samningur frá 12. apríl 1973 um skrifstofu ráðherranefndar Norðurlanda og réttarstöðu þeirra, með breytingu frá 22. nóv. 1984, ásamt viðbótarbókun frá 15. maí 1973 um skrifstofu stjórnarnefndar Norðurlandaráðs og réttarstöðu hennar og viðbótarbókun frá 22. nóv. 1984. Talið er því rétt að lög nr. 92/1973, sem veittu samningnum frá 12. apríl 1973 lagagildi, verði felld úr gildi.
    Samningurinn milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar um réttarstöðu samnorrænna stofnana og starfsfólks þeirra var undirritaður af samstarfsráðherrum Norðurlanda 9. des. 1988 í Stokkhólmi. Samningurinn er birtur sem fskj. 2 með lagafrumvarpi þessu.
    Samningurinn leysir af hólmi Norðurlandasamning um réttarstöðu starfsfólks við samnorrænar stofnanir sem undirritaður var í Reykjavík 31. jan. 1974.
    Í samningnum er samnorræn stofnun skilgreind og henni veitt sjálfstæð réttaraðild sem öðrum lögaðilum í landinu þar sem hún hefur aðsetur en í eldri samningnum var aðeins fjallað um réttarstöðu starfsfólks samnorrænna stofnana. Valdsvið samningsins er því mun víðtækara en í samningnum frá 1974.
    Í samningnum er jafnframt gætt samræmis við samning um réttarstöðu skrifstofa ráðherranefndar Norðurlanda og stjórnarnefndar Norðurlandaráðs.
    Samningurinn nær til 43 norrænna stofnana. Þar af eru tvær staðsettar á Íslandi, þ.e. Norræna húsið og Norræna eldfjallastöðin.
    Með lagafrumvarpi þessu fer ríkisstjórnin þess á leit að Alþingi heimili staðfestu samninganna beggja og veiti þeim lagagildi hér á landi.
    Virðulegi forseti. Allshn. Nd. skilaði nál. um þetta mál og lagði til einróma að frv. yrði samþykkt óbreytt.
     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Það þmfrv. þeirra Guðmundar G. Þórarinssonar og Inga Björns Albertssonar sem hér

kemur til meðferðar í hv. Ed. frá Nd. er hið athyglisverðasta mál og ég vil lýsa yfir stuðningi við það. Ég vil vekja athygli hv. þingdeildarmanna á því að ég hef frá áramótum þegar heimilað allt að 90 daga greiðslufresti við innkaup á frílistavörum frá útlöndum, en markalínan milli greiðslufrests á vörum og erlendrar lántöku er ekki alveg ljós. Í framkvæmd er þetta mark nú sett við 90 daga þótt reyndar séu veittir lengri greiðslufrestir á ýmiss konar annan varning en dagvöru og það sem ég vildi hér gera að tillögu minni og kemur fram á brtt. sem dreift hefur verið á þskj. 978 er eingöngu að kveða skýrar að orði í orðalagi þessarar tillgr.
    Ég vildi vekja athygli þingdeildarmanna á því að í þessari brtt. er eingöngu bætt við tilvísunarsetningu í síðasta málslið fyrri málsgreinar tillögunnar, þar sem segir áður: ,,Greiðslufrestur á vörum fellur ekki undir þetta ákvæði.`` Þar legg ég til að sagt verði: ,,Greiðslufrestur á vörum sem innflytjandi tekur án ábyrgðar banka eða annarra fjármálastofnana.`` En ég hef fylgt þeirri meginreglu að binda almenna notkun greiðslufrests því skilyrði að hann sé ekki tryggður með ábyrgð banka, sparisjóðs, tryggingafélags eða fjárfestingarsjóðs, hvað þá ríkissjóðs. Þetta skilyrði hefur að mínu áliti gefið góða raun og orðið til þess að fyrirtæki með sterka viðskiptastöðu og góð viðskiptasambönd geta notfært sér ódýra gjaldfresti á eigin ábyrgð frá seljendum margs konar erlendrar vöru, en þarna hefur þá ekki skapast þrýstingur á banka eða aðrar stofnanir sem ég hef nefnt til þess að standa þar að baki með tryggingum. Ég tel að slíkt skilyrði eigi að vera áfram í gildi, þ.e. að rýmkun greiðslufrests verði ekki til þess að auka á beina eða óbeina ábyrgð ríkisins eða ríkisstofnana.
    Ég vildi láta það koma hér fram að það spáðu því ýmsir að afleiðingar þessarar auknu heimildar frá áramótum yrðu þær að vörukaupaskuldirnar mundu stórhækka. Sumir sögðu að þær mundu tvöfaldast. Þetta fór alls ekki þannig. Reynslan fyrstu þrjá mánuðina er sú að vörukaupaskuldirnar hafa aukist um kannski fimmtung við það að þessi almenna heimild til þess að taka þriggja mánaða lán á eigin ábyrgð var veitt. Á móti hafa svo kaupendur vörunnar að sjálfsögðu notið hagkvæmari greiðslukjara sem hefur dregið úr verðhækkunum eða beinlínis komið fram í lægra vöruverði en ella.
    Þessa viðbótartillögu flyt ég hér auk þess sem ég legg til að reglurnar sem viðskrn. setur að höfðu samráði við Seðlabankann um erlendar lántökur og mörkin milli þeirra og greiðslufrests á vörum verði skýrð með reglugerð, þ.e. ég bæti við síðari málsgrein tillgr. orðunum: ,,og um mörkin milli þeirra og greiðslufrests á vörum.`` Þetta tel ég nauðsynlegt. Mér virðist að greiðslufrestur í venjulegum skilningi þess orðs geti numið allt að einu ári eftir atvikum og ég mun stefna að því að þær reglur sem settar yrðu mundu taka mið af því, enda er það eitt af þeim atriðum sem eru í áætlun efnahags- og fjármálaráðherra Norðurlanda um rýmkun gjaldeyrisviðskipta og fjármagnshreyfinga við önnur

lönd að yfirleitt verði greiðslufrestir allt að einu ári frjálsir í hreyfingum milli landa. Það er stefna sem ég styð, en ég tel að slíkar lántökur, slíkir greiðslufrestir eigi eingöngu að vera teknir á eigin ábyrgð viðskiptaaðilanna.