Skipan gjaldeyris- og viðskiptamála
Þriðjudaginn 02. maí 1989

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson):
    Virðulegi forseti. Það þmfrv. þeirra Guðmundar G. Þórarinssonar og Inga Björns Albertssonar sem hér kemur til meðferðar í hv. Ed. frá Nd. er hið athyglisverðasta mál og ég vil lýsa yfir stuðningi við það. Ég vil vekja athygli hv. þingdeildarmanna á því að ég hef frá áramótum þegar heimilað allt að 90 daga greiðslufresti við innkaup á frílistavörum frá útlöndum, en markalínan milli greiðslufrests á vörum og erlendrar lántöku er ekki alveg ljós. Í framkvæmd er þetta mark nú sett við 90 daga þótt reyndar séu veittir lengri greiðslufrestir á ýmiss konar annan varning en dagvöru og það sem ég vildi hér gera að tillögu minni og kemur fram á brtt. sem dreift hefur verið á þskj. 978 er eingöngu að kveða skýrar að orði í orðalagi þessarar tillgr.
    Ég vildi vekja athygli þingdeildarmanna á því að í þessari brtt. er eingöngu bætt við tilvísunarsetningu í síðasta málslið fyrri málsgreinar tillögunnar, þar sem segir áður: ,,Greiðslufrestur á vörum fellur ekki undir þetta ákvæði.`` Þar legg ég til að sagt verði: ,,Greiðslufrestur á vörum sem innflytjandi tekur án ábyrgðar banka eða annarra fjármálastofnana.`` En ég hef fylgt þeirri meginreglu að binda almenna notkun greiðslufrests því skilyrði að hann sé ekki tryggður með ábyrgð banka, sparisjóðs, tryggingafélags eða fjárfestingarsjóðs, hvað þá ríkissjóðs. Þetta skilyrði hefur að mínu áliti gefið góða raun og orðið til þess að fyrirtæki með sterka viðskiptastöðu og góð viðskiptasambönd geta notfært sér ódýra gjaldfresti á eigin ábyrgð frá seljendum margs konar erlendrar vöru, en þarna hefur þá ekki skapast þrýstingur á banka eða aðrar stofnanir sem ég hef nefnt til þess að standa þar að baki með tryggingum. Ég tel að slíkt skilyrði eigi að vera áfram í gildi, þ.e. að rýmkun greiðslufrests verði ekki til þess að auka á beina eða óbeina ábyrgð ríkisins eða ríkisstofnana.
    Ég vildi láta það koma hér fram að það spáðu því ýmsir að afleiðingar þessarar auknu heimildar frá áramótum yrðu þær að vörukaupaskuldirnar mundu stórhækka. Sumir sögðu að þær mundu tvöfaldast. Þetta fór alls ekki þannig. Reynslan fyrstu þrjá mánuðina er sú að vörukaupaskuldirnar hafa aukist um kannski fimmtung við það að þessi almenna heimild til þess að taka þriggja mánaða lán á eigin ábyrgð var veitt. Á móti hafa svo kaupendur vörunnar að sjálfsögðu notið hagkvæmari greiðslukjara sem hefur dregið úr verðhækkunum eða beinlínis komið fram í lægra vöruverði en ella.
    Þessa viðbótartillögu flyt ég hér auk þess sem ég legg til að reglurnar sem viðskrn. setur að höfðu samráði við Seðlabankann um erlendar lántökur og mörkin milli þeirra og greiðslufrests á vörum verði skýrð með reglugerð, þ.e. ég bæti við síðari málsgrein tillgr. orðunum: ,,og um mörkin milli þeirra og greiðslufrests á vörum.`` Þetta tel ég nauðsynlegt. Mér virðist að greiðslufrestur í venjulegum skilningi þess orðs geti numið allt að einu ári eftir atvikum og ég mun stefna að því að þær reglur sem settar yrðu mundu taka mið af því, enda er það eitt af þeim

atriðum sem eru í áætlun efnahags- og fjármálaráðherra Norðurlanda um rýmkun gjaldeyrisviðskipta og fjármagnshreyfinga við önnur lönd að yfirleitt verði greiðslufrestir allt að einu ári frjálsir í hreyfingum milli landa. Það er stefna sem ég styð, en ég tel að slíkar lántökur, slíkir greiðslufrestir eigi eingöngu að vera teknir á eigin ábyrgð viðskiptaaðilanna.