Tollalög
Þriðjudaginn 02. maí 1989

     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson):
    Virðulegi forseti. Það var haft á orði í hv. Ed. að hér væri á ferðinni stutt og laggott frv., enda hefur það fengið skjóta afgreiðslu í hv. Ed. Það felur í sér að Egilsstaðir og Sauðárkrókur eru teknir inn í tollalög til þess að auðvelda tollafgreiðslu á þessum stöðum. Ég vil geta þess að það færist nokkuð í vöxt að ferðaskrifstofur, erlendar og innlendar, hafi áhuga á því að geta flutt erlenda ferðamenn og einnig íslenska ferðalanga beint á milli útlanda og þeirra flugvalla og staða á landsbyggðinni þar sem aðstæður eru fyrir hendi og talið þá rétt að hinir erlendu ferðamenn og hinir íslensku farþegar hafi sams konar möguleika á þjónustu á þessum stöðum og ef farið væri frá Reykjavíkurflugvelli eða Keflavíkurflugvelli.
    Ég vænti þess að þetta frv. fái einnig hér skjóta afgreiðslu, en það skal tekið fram að það hefur ekki verið, enn sem komið er alla vega, tekin ákvörðun um það að hafa fastbundna fríhöfn á þessum stöðum.