Tekjuskattur og eignarskattur
Þriðjudaginn 02. maí 1989

     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson):
    Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til l. um breytingu á lögum nr. 75 frá 1981, um tekjuskatt og eignarskatt, með síðari breytingum. Hér er um þmfrv. að ræða frá hv. þm. Kjartani Jóhannssyni.
    Á þskj. 989 liggur fyrir álit fjh.- og viðskn. sem hefur rætt þetta frv. og aflað umsagna frá Ríkisendurskoðun og fékk til fundar Ævar Ísberg vararíkisskattstjóra, Lárus Ögmundsson og Maríönnu Jónasdóttur frá fjmrn. Nefndin mælir einhuga með samþykkt þessa frv.